Fálkinn - 02.12.1963, Síða 6
og njótið góðra veitinga í
kyrrlótu og þægilegu um-
hverfi í hjarta Miðbæjarins
TRÖÐ
á loftinu hjá Eymundssyni
Mœfíd
ykkur
mót
*
i
TRÖÐ
Hin fullkomna vöm gegn tannskemmdum þekkist
ekki. En þetta er víst. Glerungur tannanna þarf að
rofna, til að tannskemmdir geti hafizt. Fyrir nokkr-
um arum uppgötvuðu tannvísindamenn, að efnið
FLUORIDE styrkir glerung tannanna að miklum
mun og minnkar tannskemmdir um allt að 50%.
Ef þér viljið áfram hafa heilar tennur, þá breytið
um í dag og notið framvegis Super Ammident tann-
krem með FLUORIDE.
S FÁLKINN
Breytileiki í stjörnuspá.
Kæri Fálki.
Mig langar til að fræðast um
það, hvort stjörnuspáin nái
yfir vist tímabil, hvort hún sé
breytileg eða um misprentun
sé að ræða. Athugið 34., 35.,
37. tbl. Fálkans Sérstaklega
hvar 23. október er staðsettur
í 34. tbl.
Lesandi.
Svar:
1 þessum blööum sem Jiú tilnefn-
ir Lesandi góður hefur orðið nokk-
ur ruglingur í sambandi við
stjörnuspána. 23. október á að til-
heyra Sporðdrekamerkinu.
Sólgleraugu.
Háttvirta Pósthólf.
Mér þykir það sérlega ógeð-
fellt að sjá sumt fólk alltaf
með sólgleraugu hvernig sem
viðrar. Að maður nú ekki tali
um óskapnað að hafa sólgler-
augun uppi innan dyra. Það er
eins og fólkið sé að leyna ein-
hverju eða er það aðeins að
vekja athygli á sér. Kannski er
það svona bjartsýnt að það
verði að nota sólgleraugu.
Jói.
Svar:
Ef þér er svona iTla vi0 þetta
Jói minn þá skaltu bara fá þér
svo dökk sólgleraugu að þú takir
ekki eftir hvort aðrir séu með þau
en þú.
Það á að halda fyrir
munninn.
Kæri Fálki.
Það er ekki ósjaldan sem
maður sér fólk í strætisvögn-
unum hósta án þess að halda
fyrir munninn. Þetta er hinn
mesti ósiður sem fólki ber að
að leggja niður. Þegar ég var
ungur var þetta eitt af því
allra fyrsta sem ég lærði. Það
er annað en skemmtilegt að
sitja fyrir framan fólk sem
hóstar, ræskir sig og hnerrar
án þess að halda fyrir vitin.
Mummi.
Svar:
Þetta er alveg rétt hjá þér,
fólk á að halda fyrir munninn
þegar það lióstar. En það er nú
einu sinni svo að fólk gerir þetta
ekki alltaf. Sumir nenna ekki að
taka hendur úr vösum, aOrir
muna ekki eftir því og svo eru
sumir dónar.
Veðmál.
Kæri Fálki.
Þú getur víst ekki skorið úr
því fyrir okkur hvort sögnin
að unna sé ann eða unni í
fyrstu persónu nútíð? eða
hvernig hún beygist yfirleitt?
Þetta er veðmál.
Með beztu þökkum, og þökk
fyrir glæsilega stjörnuspá, sem
hingað til hefur reynzt æði
sannspá.
G. M.
Svar:
Fyrsta persóna nútíO er ann.
Sögnin beygist: Unna, unni unnaO
eða unnt, t. d. ég get unnt honum
þess.
Ávísanir tortryggðar.
Fálkinn, vikublað.
Það er ákaflega hvimleitt,, að
ekki verði meira sagt, þegar
maður að kvöldlagi þarf að fá
sér sígarettur og hefur ekki
annan gjaldmiðil en ávísanir.
Það eru algjörar undantekning-
ar ef verzlanir taka á móti
ávísunum. Það fer því oft svo
að maður getur ekki orðið sér
úti um sígarettur fyrr en bank-
ar hafa opnað hinn næsta dag.
Þetta er að mínu viti hið mesta
ófremdarástand.
Ávísanahafi.
Svar:
Því miður eru ekki allir jafn
heiOarlegir gagnvart sinum ávls-
unum og þú og af þvl stafar þetta
ófremdarástand. Ef allir vœru á
þessu sviOi heiðarlegir menn Jiá
kœmi þetta ekki til.
Perkins, Passer og Nörby.
Kæri Fálki.
Við höfum séð að undan-
förnu að þú hjálpar mörgum
um heimilisföng margra frægra
leikara. Eins vonum við að
þú hjálpir okkur. Helzt af
öllu um heimilisfang Anthony
Perkins. Og ennfremur ef þú
getur, heimilisföng Dirch Pass-
er og Gittu Nörby.
Við vonum að þú svarir
þessu sem fyrst. Svo þökkum
við allt skemmtilegt í blaðinu.
Tvær fróðleiksfúsar.
Svar:
Anthony Perlcins dvelst um
þessar mundir i Evrópu og mun
hafa aðalaösetur sitt í París. Þvl
miöur vitum viö ekki heimilis-
fang hans þar en viö höfum annað
vestan liafs og þar mun vera
lwegt aö ná sambandi viO hann:
Paramount Studios, 5!f51 Marc-
tlion Street Hollywood.
Og eins er Jiað meö lúna dönsku
vini okkar að við vitum ekki
þeirra heimilisföng en bréf skrifuö
til Nordisk Film í Kaupmanna
liöfn mundu áreiöanlega komast
til skila.