Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Page 7

Fálkinn - 02.12.1963, Page 7
Nú er rétti tíminn að kaupa fötin GLÆSILEGRA DRVAL EN NOKKRU SINNI FYRR. NYUSTU SNIÐIN. BEZTU EFNIN. mm & lautii h.f. Ókurteisi eða hvað? Kæri Fálki. Mig langar til að minnast á atvik sem kom fyrir á einum þekktasta veitingastað borgar- innar. Ég kom ásamt vinkonu minni og bandarískum her- manni þar inn og ætlaði að fá mér að borða. En á þennan stað höfðum við oft komið vegna þess að við töldum þetta rólegan og þægilegan stað. Nú en þegar við komum inn til- kynnti „daman“ okkur að það þýddi ekkert fyrir okkur að setjast vegna þess að við fengj- um enga afgreiðslu. Og hún gerði raunar meira. Hún hótaði að hringja í lögregluna ef við færum ekki út strax. Mér finnst þetta nokkuð langt geng- ið hjá þessari háttvirtu dömu jafnvel þó henni kunni að vera persónulega í nöp við Ameríku- menn. Það er ekki nein afsökun fyrir hana því ég veit að þessi staður er jafnt opinn fyrir þá og aðra útlendinga. Og hvorki þessi afgreiðsludama né annað af starfsfólki þessa staðar hafa neitt slæmt af neinu okkar að segja. Mér finnst þetta ekki beint góð kynning á hinni ís- lenzku gestrisni og kurteisi, er alltaf er verið að tala um. Nú langar mig til að leita eftir áliti ykkar á þessum at- burði. Finnst ykkur þetta ekki einum of frekt? Finnst ykkur að persónulegt álit afgreiðslu- dömunnar skipti máli á vinnu- stað? Svo þakka ég ykkur kær- lega fyrir birtinguna (þ. e. a. s. ef þið birtið bréfið). Eins þakka ég ykkur fyrir blaðið, sem er að mínu áliti bæði gott og skemmtilegt. Virðingarfyllst. N. J. Svar: Ef ekki hafa veriS neinar upp- festar tilkynningar á þessum veit- ingastaö um þaO aó Bandaríkja- hermönnum væri meinaður að- gangur þá má flokka þetta undir ðkurteisi. Og ef ekkert ykkar þriggja hefur nokkru sinni hegð- aö sér ósæmilega á þessum sama staö þá er þetta enn meiri ókurt- eisi. Persönulegt álit starfsfðlks- ins á ekki aO skipta máli á vinnu- staO. James Darrin kemur enn betur í leitirnar. í sumar birtum við bréf frá nokkrum lesendum þar sem beðið var um heimilisfang James Darren. Báðum við þá lesendur er vissu þetta heimilis- fang að senda okkur línu og gefa það upp. Um daginn barst okkur svo bréf sem við birtum hér á undan. í því bréfi er utanáskrift að vinnustað Darren. Nú hefur ekki borist annað bréf með heimilisfangi og birtum við það hér. Kæri Fálki. Ég hef tekið eftir því, að hér i Pósthólfinu hefur verið spurt um heimilisfang James Darren, en svar ekki fengist. En hér kemur það: Heimilis- fang James Darren er: 9614, Heather Road Beverly Hills, California, U.S.A.. Með kveðju, E. G. Viö þökkum þér E. G. fyrir þetta bréf. James Darren kemur í leitirnar. Háttvirta Pósthólf. Ég ætla að senda ykkur heimilisfang hins margum- spurða James Darren. Hann heitir fullu nafni James Ercol- ani og er fæddur 8. júni 1936 í Philadelphia og er giftur dönsku fegurðardrottningunni Ewy Nordlund og þau eiga einn son sem heitir Charles. Heimilisfangið er: James Darren c/o. Columbia pictures, 1488 N. Cower St. Holly- wood 28. Bless. M. Svar: ViO þökkum þér kærlega fyrir þessar upplýsingar M. og nú geta allir þeir, sem spurt hafa um þetta langþráOa heimilisfang skrif- aO kappanum og mun þaO án efa gleOja hann mikiö. Nokkur orð um Stjörnuspána. Kæri Fálki. Eitt af því sem ég les alltaf í Fálkanum er Stjörnuspáin. Nú er það svo að mér finnst þetta heldur furðuleg spá svona stundum og lítið af því kemur fram. Ég hefði gaman af því að sjá framan í þennan sem semur þessa spá fyrir ykkur. Ég held að hann ætti að æfa sig svolítið betur. Með þökk. Stjarni. Svar: ViO viljum í upphafi taka þaO fram að stjörnuspáin er ekki „samin" eins og þú virðist liálda. ViO fáum spána utanlanás frá, frá stofnun, sem hefur marga menn í sinni þjónustu viO aö lesa úr stjörnunum og spá fyrir fólk. ÞaO er ekki okkar sök þótt þú viröist ekki geta notiO stjörnu- spárinnar. ViO fáum. iöulega bréf frá lesendum þar sem þeir tala um hvaO spáin í Fálkanum sé góO. FÁLKINN 7

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.