Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 15

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 15
kyn afkvæmanna með 75% vissu. Hinar hægfara, en sterku kvensáðfrumur hjá karlmanninum lifa í tvær vikur, vill Asger halda fram. En hinar hröðu, veikbyggðu karlsáðfrum- ur deyja hins vegar innan viku. Dag hvern er framleiðslan 4 milljónir sáðfrumn af báðum kynjum í sæði karlmannsins. Ef þessi framleiðsla er geymd í þrjár vikur verður árang- urinn að lokum þessi: Framleiðsla fyrstu vikunnar er öll dáin. Frá annarri vik- unni lifa 14 millj. kvensáðfruma, og jafnmikill fjöldi karlsáð- fruma dáinn. En í þriðju vikunni er framleiðslan bæði karl- og kvensáðfrumur 14 milljónir af hverju kyni og eru allar lifandi Nú eru kvensáðfrumurnar orðnar tvöfalt fleiri en x upphafi. Ef frjóvgunin fer fram á þessu tímabili verður barnið þess vegna stúlka. Skilyrði er þó að samræði fari fram á hinum rétta degi, og stund svo frjóvgunin fari saman með egglosinu. Konan á þess vegna fyi'st í þrjá mánuði að mæla líkams- hita sinn á hverjum morgni. Toppur hitalínuritsins sýnir á eftir nákvæmlega þann tíma sem egglosið fer fram. Á þennan hátt getur Asger afráðið hvaða dag frjóvgunin á að fara fram, frá síðustu tíðum konunnai', svo hjón geti fengið hinn lang- þráða son. Eða dóttur. Þessi hundruð hjóna sem skrifa Asger Lindberg til að fá vitneskju um, hvei'nig þau geti eignast dóttur, fá eftirfarandi boð: Konan reiknar út daginn, sem hún byrjar tíðir og dregur síðan þrjár vikur frá þessum degi.Frá þeim degi skal maður- inn byrja að safna fyrir komandi frjóvgun. Næstu þi’jár vikurnar má maðurinn ekki hafa neitt samræði, svo að hann, á hinum ákveðna frjóvgunardegi hafi hinn ákveðna fjölda af karl og kvensáðfrumum. Á þeim degi, sem egglosið á sér stað hjá konunni, má aðeins vera eitt samræði á milli þeirra. Og með aðeins einu sáðfalli. Þá fæðist dóttir í fyllingu timans. En þau hjón.sem vilja þvert á móti eignast dreng, skulu sjá um að í sæði mannsins sé mikill fjöldi af nýgerðum karl- sáðfrumum. Þess vegna ráðleggur Asger verðandi foreldrum, sem ekki geta haft samræði 5—6 sinnum á dag, sem frjóvgun- armöguleikarnir til að eignast son eru mestir, að eyðileggja það sæði frá manninum sem er eldra en 4—5 tíma gamalt. Eftir þennan reikning fullvissar Asger okkur um, að við verðum foreldrar af því kyni, sem við einmitt óskuðum eftir. Hann fullyrðir minnst 97% öryggi fyrir þá sem fylgja ráð- um forskriftarinnar út í yztu æsar. Hann hefur þegar aðstoðað mörg hundruð hjón, og vinnur hann nú að því að safna nægilegum fjölda, eða 2—3 þúsund tilfellum, sem hann geti notað sem fullnægjandi sönnun í doktorsritgerð um þetta efni. Hann bendir líka á að hægt sé að nota kenningu sína til hins gagnstæða. Til að takmarka barneignir. Með því að leggja nokkuð að sér getur hver kona lært hvenær egglos hennar sé, og gæta sín svo vel næstu fjóra daga á undan og eftir til að eiga ekkert á hættu. En framleiðendur á lyfjum til getnaðarvarna eru ekkert allt of hrifnir að að fá mig í samkeppnina, segir Asger Lindberg hlæjandi, sem rétt fyrir þetta viðtal hafði fengið sönnun fyrir, hve mikilvæg uppfinning hans væri. Verkfræðingur í Kaupmannahöfn hefur nýlega skrifað Asger, Framh á bls. 29. 15 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.