Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 16

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 16
RAYMONP RADIOUET Ég hugsaði um Jacques. „Við skulum vona, að hann sé vopn- aður.“ Þótt ég væri svo hrædd- ur við dauðann, gugnaði ég ekki. Þvert á móti hefði ég verið samþykkur komu Jac- ques með því skilyrði, að hann dræpi okkur bæði. Önnur lausn virtist mér hlægileg. Að horfast rólegur í augu við dauðann hefur aðeins gildi, ef maður gerir það einn. Daúði með öðrum er ekki dauði leng- ur, jafnvel fyrir vantrúaða. Sorgin ligjgur ekki í því að yfir- gefa lífið, heldur það, sem gef- ur því gildi. Og ef ástin er líf okkar, hvar er þá munurinn á því að lifa saman og deyja saman? Ég hafði engan tíma til að líta á sjálfan mig sem hetju, því að með því að hugsa mér það, að Jacques dræpi aðeins mig eða aðeins Mörtu, kafaði ég í djúp minnar eigin sjálfs- elsku. Og vissi ekki hvort af slíkum slysum væri verra. Þegar Marta hreyfði sig ekki, hélt ég, að mér hefði orðið á skyssa og að einhver hefði hringt á dyr húseigandans. En bjallan glumdi aftur. „Þegiðu. Hreyfðu þig ekki,“ hvíslaði Marta. „Þetta hlýtur að vera mamma. Ég var alveg búin að gleyma því, að hún ætl- aði að koma við eftir messu.“ Ég var hamingjusamur að vera vitni að einni fórn hennar. Ef ástmær eða vinur er of seinn á stefnumót, lít ég strax á þau sem dauð. Svo að ég batt þessa kvöl við móður Mörtu og hlakk- aði yfir skelfingu hennar með þeirri hugsun, að það væri mér að kenna, allt, sem hún þjáðist. Við heyrðum garðhliðinu lokað eftir nokkrar samræður. (Frú Grangier spurðist ber- sýnilega fyrir um það á fyrstu hæð, hvort dóttir hennar hefði sést þennán morgun). Marta athugaði hana bak við gluggahlerana og sagði: „Það er mamma.“ Ég sjálfur gat ekki haft af mér þá nánægju að sjá frú Grangier fara, með bæna- bók í hendinni, áhyggjufulla yf- ir hinni óskiljanlegu fjarveru dóttur sinnar. Einu sinni enn sneri hún sér við og horfði á glugatjöldin, sem voru dregin fyrir. Nú þegar ég átti ekkert eftir til að óska mér, fór ég að verða ósanngjarn. Sú staðreynd trufl- aði mig, að Marta skyldi geta logið svo samvizkulaust að móður sinni, og í ósanngrni minni ásakaði ég hana fyrir að geta logið. Og þar sem ástin auk þess er sjálfselska tveggia, fórnar hún öllu til að þjóna eigin tilgangi og nærist á lyg- um. Knúinn af sama djöflinum ásakaði ég hana fyrir að hafa haldið leyndri fyrir mér komu eiginmanns síns. Fram að þessu hafði ég haft hemil á harð- stjórn minni og fundizt, að ég hefði engan rétt til að notfæra mér vald mitt yfir Mörtu. En ákafi minn hljóðnaði stundum, og þá stundi ég: „Brátt muntu hugsa um mig með hryllingi. Ég er eins og maðurinn þinn, alveg eins ruddalegur. „Hann er ekki ruddalegur," sagði hún. Og að svo búnu hélt ég áfram: „Svo þú svíkur okkur báða. Haltu á- fram, segðu að þú elskir hann. Hafðu ekki áhyggjur, eftir viku geturðu svikið mig með hon- um.“ Hún beit á vörina, grátandi: „Hvað hef ég gert til að gera þig svo ótugtarlegan? „Ó, eyðileggðu nú ekki fyrsta dag hamingju okkar.“ „Þinn fyrsta hamingjudag,“ hrópaði ég. „Þú hlýtur að hafa þokkalegt álit á mér, ef það er satt.“ Sá, sem greiðir slík högg, er sjálfur sá, sem særist af þeim. Ég trúði engu af því, sem ég var að segja, og samt fannst mér ég þurfa að segja það. Það var ómögulegt fyrir mig, að út- skýra fyrir Mörtu, að ást mín væri að aukast. Eflaust hafði hún þá náð þeim óþægilega aldri, og þessi illkvittna stríðni var breyting ástarinnar í ástríðu. Ég þjáðist og ég sárbændi Mörtu að gleyma árásum mín- um. Vinkona húseigandans ýtti bréfunum undir hurðina. Marta tók þau. Það voru tvö frá Jacques. Eins og til svars við efasemdum mínum sagði hún: „Gerðu það, sem þú vilt, við þau.“ Ég skammaðist mín. Ég bað hana að lesa þau, en aðeins fyrir sjálfa sig. Knúin af einu af þessum viðbrögðum, sem hvetja okkur til villtustu mik- ilmennsku, reif Marta annað bréfið. Það var svo erfitt að rífa það, að bréfið hlýtur að hafa verið langt. Þetta gaf mér nýtt tækifæri til að ávíta hana. Ég hataði þessa mikilmennsku- sýningu og iðrunina, sem hún myndi áreiðanlega finna til síð- ar. Þar sem ég vildi ekki, að hún eyðilegði seinna bréfið, lagði ég mig fram um að hindra það og minntist ekki á það, að þetta hefði sannfært mig um, að Marta væri langt frá því fullkomin. Hún las það sam- kvæmt ósk minni. Það getur verið, að eðlishvöt hafi knúið hana til að rífa fyrsta bréfið, en það var eitthvað annað sem kom henni til að gráta, þegar hún las hitt: „Guð hefur laun- að okkur fyrir að rífa ekki þetta bréf. Jacques segir mér, að öll leyfi hafi verið afturkölluð í hans deild, og hann verður ekki hér fyrr en eftir mánuð.“ Ástin ein afsakar slíkan skort á háttvísi. Þessi eiginmaður var farinn að fara í taugarnar á mér — jafnvel meira heldur en ef hann hefði verið viðstaddur og það hefði verið nauðsynlegt að vera viðbúinn. Bréf frá honum varð skyndilega jafnmikilvægt og vofa. Við borðuðum hádegis- mat seint. Um fimmleytið gengum við meðfram ánni. Marta stóð steinhissa, meðan ég dró körfu mína undan gras- hnappi beint fyrir augunum á varðmanninum. Henni var mjög skemmt að heyra söguna um körfuna. Ég var ekki lengur hræddur um, að hún væri hlægileg. Við gengum áfram og tókum það ekki til greina, hve ósiðsöm við hlutum að er 16 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.