Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Side 23

Fálkinn - 02.12.1963, Side 23
varð því í Danaveldi árið 1813, og urðu bankaseðlarnir dönsku nær því verðlausir. Fyrstu kynni íslenzkra kaupmanna, bænda og búaliðs af pappírs- peningum varð því bitur. Þeir töpuðu að mestu þeim verð- mætum, sem þeir höfðu unnið sér inn með hörðum höndum og sárum svita. Svo varð fyrsta gengislækkunin er íslendingar reyndu. íslenzkir alþýðumenn höfðu í marga áratugi hreina óbeit á bankaseðlum, og marg- ir voru, sem alls ekki vildu eiga þá nema um stundar sakir. Til þess er að rekja, að allir pen- ingasafnarar og peningamenn, áttu peninga sína í sleginni mynt lengi fram eftir 19. öld. Svo gróinn var ótti almennings við peningaseðla, að ég veit að eldra fólk, enn þann dag í dag, man eftir því, að fólk hafði óbeit á bankaseðlum. f gengis- hruninu danska í byrjun 19. aldar, hélt slegin mynt alveg verðgildi sínu. Þeir sem áttu peninga sína í slíkum verðmæt- um töpuðu því engu. Þess skal getið til fróðleiks, að að afstöðnum Napóleons- styrjöldunum, stofnuðu Rang- æingar til samtaka í verzlun. Sennilegt tel ég, að það séu elztu samtök til verzlunar hér á landi, jafnvel eldri en þing- eysku samtökin. r rlendur Helgason fór ungur í vist til bónda eins í Landsveit. Ekki er mér kunn- ugt um, hvað hann hét eða __. . Framh. á bls. 40, fXlkinn 23

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.