Fálkinn - 02.12.1963, Qupperneq 31
Liljur Sallyar
Framh. af bls. 28.
ég lágt, — og bláan vasa til að
setja þær í, af því að yður líkaði
þær, sagði hún. — Þér hafið
verið heppnir í tvö skipti. Og
annað skiptið nægir yður ekki.
Ég hoppaði upp í bílinn án
þess að kaupa sígarettur. Það
fyrsta sem ég sá þegar ég kom
inn í forstofuna, voru blómin í
bláa vasanum. Ég leit á þau
og fékk samvizkubit. Hún gerði
þetta til að gleðja mig, hugsaði
ég.
Celia! hrópaði ég tauga-
óstyrkur, næstum hræddur um
að það væri nú þegar orðið of
séint að fá hana aftur.
Hún kom fram á tröppubrún-
ina, hafði skipt um föt og þveg-
allt make-up af sér, og hárið
hangandi niður herðarnar, hún
leit út fyrir að vera fjórtán
ára.
— Komdu hingað, sagði ég
og rétti út hendurnar.
Hún leit undrandi á mig og
kom hægt gangandi til mín.
— Þú lítur út fyrir að vera
fjórtán ára, sagði ég, — elsku-
lega litla stúlkan mín. Ég hef
aldrei séð þig svona áður. Þeg-
ar þú ferð á blaðið ert þú alltaf
svo fín að þú lítur út eins og
sýningarstúlka. ....
Ég talaði mig hásan, en hún
skildi hvað ég var að reyna að
segja. Ég sá að spenningurinn
hvarf smám saman af andlitinu
Kæri Astró.
Mig langar mikið að vita
eitthvað um framtíð mína og
leita ég því til þín í von um
áð fá svar sem fyrst í vikublað-
inu Fálkanum. Ég er fædd
klukkan tvö að nóttu. Hvernig
verður heilsan í framtíðinni og
hef ég kynnzt tilvonandi eigin-
manni mínum, ef ég þá á eftir
að giftast og hve mörg börn
mundi ég eignast. Einnig lang-
ar mig til að vita hvort maður-
inn minn ef einhver verður
yrði yngri að aldri en ég og yfir-
leitt allt, sem hægt er að lesa úr
stjörnunum í sambandi við mig,
ef það er þá þannig að það
sé hægt að setja það á prent.
Hvort verð ég í dreifbýli eða
þéttbýli í framtíðinni. Gjörið
svo vel að sleppa fæðingardegi,
mánuði, ári og stað við birt-
ingu. Ég vonast fastlega eftir
svari sem fyrst. Með þakklæti
fyrir birtinguna.
Ein forvitin.
á henni, og heit bylgja af létti
gagntók mig.
Ég elska þig, hvíslaði ég, —
þig — þig,— Celia.
Hún hjúfraði sig upp að mér.
— Ég trúi því, hvíslaði hún
þreytt.
— Ég hef nokkuð að segja
þér sem þú kannski vildir
heyra. Þetta starf hjá „Gazette“
var bara laust í mánuð, því rit-
stjórinn yfir kvennasíðunni
kemur þá til baka af sjúkrahús-
inu.
— Ó, ástin mín, ég hef sakn-
að þín svo mikið.Við skulum
kaupa okkur minna hús þar sem
við getum lokað okkur inni tvö
ein. Ég leit á borðið. — Og hafa
liljurnar með. ÞÍNAR einka
liljur, elskan, og setja í bláan
vasa.
Hún hristi höfuðið. — Liljur?
í bláum vasa? En það tilheyrir
Sally. Ég hristi höfuðið. —
Harissi liljur eru fallegar í blá-
um glervasa. Það var Sally, en
þessar eru fyrir þig — og mig,
nú og alltaf — til að minna mig
á hvað mikið að ég elska þig.
Gleðin sem Ijómaði af andliti
hennar fékk mig til að finnast
ég vera mjög, mjög, lítill. Ég
elskaði hana með sterkri þrá og
löngun sem ég ekki hefði trúað
að ég ætti nokkru sinni eftir
að elska aftur. Ég leit á blómin
enn einu sinni og brosti með
sjálfum mér.
Hún hafði hagrætt þeim vand-
lega I vendi af liljum í gamal-
dags lágum vasa úr Ijósbláu
gleri.
Þú hefur nokkuð erfiðar af-
stöður varðandi hjónaband og
náinn félagsskap við sterka
kynið. Plútó í sjöunda húsi
bendir venjulega til þess að
undarlegar aðstæður skapist í
sambandi við giftinguna eða
óvenjulegar. Oft bendir hann
einnig til þess að fólk skilji að
skiptum um óákveðinn tíma og
taki saman aftur síðar. Af þess-
um sökum má vel vera að þú
hafir þekkt manninn áður, sem
þú spyrð um í bréfi þínu. Þeir
karlmenn, sem að öðru jöfnu
ættu bezt við þig eru þeir, sem
fæddir eru undir merki Ljóns-
ins eða á tímabilinu frá 24.
júlí til 23. ágúst eða undir merki
Bogmannsins frá 23. nóv. til 21.
des. Einnig undir merki Hrúts-
ins eða á tímabilinu frá 21.
marz til 20. apríl. Þau árin sem
framundan eru verða happa-
sælli í ástamálunum heldur
en verið hefur til þessa hjá þér,
og ekki trúlegt að undanfarnir
mánuðir og jafnvel siðastliðið
Hungurvaka
Framh. af bls. 25.
Ber, sem uxu rétt hjá, og blöð
plantnanna, sem greru allt í
kring, innihéldu 80% vatn. Það,
sem dró flugmennina daglega
nær dauðanum, var hungur,
sem berin gátu ekki satt:
hungur eftir eggjahvítuefnum.
Eggjahvítuskortur leiðir til
nokkurs konar andlegrar hnign-
unar, til sljóleika. Jafnvel ótt-
inn við dauðann gefur mönn-
um, sem þjást af þeim skorti
í ríkum mæli, ekki nægilegan
kraft til þess að hrista af sér
doðann. Dauði þeirra verður
eins og þegar skar útbrunnins
kertis lognast út af.
27. dagur í kjarrinu.
„Ég ætlaði að fara að fremja
heimskulegan verknað. En
héðan í frá mun ég halda söns-
um, allt til dauðans. Bíða ró-
legur unz Guð kallar mig.“
Rannsókn á líki da Costas
og á flugvélinni leiddu í ljós,
hvað hann átti við. Spegillinn
í flugmannsklefanum var brot-
inn. Da Costa hafði reynt að
skera sig á púlsinn.
33. dagur í kjarrinu.
Nemandinn Fernandes til
konu kennarans: „Maðurinn
yðar hefur beðið mig um að
skrifa yður. Hann hefur ekki
lengur kjark til þess. Hann er
alltaf að tala með tárin í aug-
ár kunni að marka tímamót í
þessum efnum hjá þér.
Það sem mesta athygli vek-
ur í sambandi við stjörnukort
er hve margar plánetur eru
staðsettar í öðru húsi. Þar er
að finna Venus, Mánann, Úran-
us, Sól, og Merkúr. Venusinn
og Máninn eru áhrifamestu
páneturnar þar eð þær eru
fremstar í húsinu og bendir til
lánsemi í fjármálunum yfirleitt.
Þér mundu t. d. fara vel úr
hendi gjaldkerastörf eða af-
greiðslustörf. Eftir samstöðu
Mánans og Venusar að dæma
þá ættirðu að eiga auðvelt með
að skapa þér vinsældir. Annars
benda þessar plánetur til þess
þér sé talsvert umhugað um
fjármuni, og ef til vill liggur
hér hundurinn grafinn út af
hverju þér hefur gengið sein-
lega að afla þér maka. Það
mun fátt fara eins mikið í
taugarnar á karlmönnunum
eins og það að stúlkur byrji
á því að spyrja þá um banka-
unum um ást ykkar, sem ekk'
vitið, hvort við erum lifandi
eða látnir.“
40. dagur í kjarrinu.
Nú skrifar da Costa aftur:
„Ef lík okkar finnast, vii ég
láta jarða mig í Catumbela,
þar sem ég á heima. Kona
mín og börn eiga að biðjast
fyrir við gröf mína á hverjum
laugardegi. Ég bið konu mína
um að gifta sig ekki aftur.“
Nemandinn, Fernandes, skrif-
ar ekki oftar. Bersýnilega eru
kraftar hans á þrotum.
51. dagur í kjarrinu.
„í vasa mínum er þúsund
Escudo seðill. (Nálega 1500
ísl. krónur). Hann er eign þess,
sem færir konu minni þessi
blöð.“
f vasa da Costa fannst aðeins
blár vasaklútur. Sýnilegt er
því, að er hann hefur þetta
skrifað, hefur hann ekki getað
hugsað skýrt lengur.
57. dagur í kjarrinu
„Ég, Acacio Lopes da Costa
óska utan úr alheiminum öll-
um gæfu og góðrar heilsu.
Sjáumst aftur hinum megin.“
Þessi orð eru tæplega lesandi,
en þó unnt að stafa sig fram
úr þeim. Talið er fullvíst, að
Costa hafi neytt síðustu krafta
sinna við að skrifa þau og dáið
fljótlega á eftir. Og nálega
samtímis nemanda sínum, Fern-
andes.
Hungurvaka þeirra í kjarr-
inu varði í 57 daga.
innstæður. Það á ekki við á
þessu stigi málsins að hefja
umræður um slíkt. Nógur tími
síðar.
Hið rísandi merki þitt er
Bogmaðurinn, bendir til þess
að fyrir þér eigi að liggja að
ferðast eitthvað til útlanda. Þú
þarft að kynna þér hinar ýmsu
hliðar trúarbragðanna og
heimspeki.
Þér mun vegna betur við að
búa í sveit heldur en kaupstað,
þar sem þú gætir lagt stund á
nautgriparækt.
Neptún í áttunda húsi bendir
til þess að þér stafi nokkur
hætta af eitrun niðursoðinna
matvæla, einnig vatni og táuga-
styrkjandi lyfjum séu þau notuð
í óhófi.
FALKINN
31