Fálkinn - 02.12.1963, Page 35
'0$*
T'••.'■*'.•■;•• *,*. •*.. -•.■ v •
$a • é ' *.
0000000í%0±
■í-vM%C®*«*SíSíoSíS
->íS
Ví.'-Vv.
KVENÞJOÐIN
Ritstjóri Kristjana Steingrímsdóttir
húsmæðrakennari.
Efni: 9 hnotur „Beehive Bouclé“ (28 g í hverri)
Prjónar nr. 3%.
Stærð: Lengd: um 140 cm, breidd 50 cm. 23 1. ú
breiddina = 10 cm.
Skammstafanir: Sl. = slétt, br. = brugðið, 1. =
lykkja, sm. = saman, s. u. á. = slegið upp á prjóninn.
Mynstrið: 1 umf.: ★ 3 sl., 2 br., endurtekið frá ★
út prjóninn endað með 3 sl.
2. og 4. umf.: ★ 3 br., 2 sl., endurtekið frá ★ út
prjóninn endað með 3 br.
3. umf.: ★ s. u. á., 1 1. laus fram af, 2 sl. sm. dragið
lausu 1. yfir, s. u. á., 2 br., endurtekið frá ★ út prjón-
inn, endið með s. u. á., 1 1. laus fram af, 2 sl. sm.,
dragið lausu 1. yfir, s. u. á.
Þessar 4 umf. mynda mynstrið.
Fitjið upp 114 1. á prj. nr. 3% og prjónið 3 cm
garðaprjón. Prjónið síðan mynstrið, að undanskyldum
8 yztu 1. hvorum megin. sem prjónaðar eru alla leið
með garðaprjóni. Þegar komnir eru 135 cm, eru
prjónaðir 3 cm garðaprjón. Fellt af.
Sjalið spennt út og pressað varlega. Hnýtið kögur
úr tvöföldu garni á báðar skammhliðarnar.
Nota þarf nokkuð djúpt eldfast mót, smurt vel. Sjóðið
medistapylsur (eða venjulegar pylsur), kljúfið þær að endi-
löngu og raðið þeim í mótið, sárið á að snúa upp.
Skerið soðnar kartöflur í sneiðar, hreinsið og skerið nokkra
lauka í sneiðar. Látið laukinn malla dálitla stund í feiti og
ögn af sykri á pönnu (laukhringarnir eiga að verða glærir).
Raðið lauknum og kartöflunum til skiptis milli pylsubit-
anna. Stráið dálitlu af papriku á pylsurnar og salti á kart-
öflurnar. Setjið litla smjörbita ofan á hér og þar, mótið sett
inn í heitan ofn, þar til allt er orðið vel heitt og það er orðið
dálítið brúnað að ofan.
Oft eru seldar jólagreinar með gervisnjó, en slíkan snjó,
er hægt að búa til á auðveldan hátt: Blandið saman 250 g af
salti og 1 tsk. af gipsi vætið það síðan með vatni, þar til úr
því verður þykkur grautur. Klístrið því síðan á greinarnar
hér og þar. Að 20—30 mínútum liðnum hefur saltið kristallazt
og glitrar, þegar ljósið fellur á það.
Ef vill má blanda dálitlu af glimmer I grautinn, svo grein-
arnar glitri enn meira.
FALKINN 35