Fálkinn - 06.01.1964, Síða 29
„Það er svoleiðis með mig,“
segir Rannveig, „að ég sé bara
allt í einu rautt.“
„Og hvers vegna sérðu allt
i einu rautt?“ segir fógetinn.
„Ég sé rautt þegar mér finnst
ég beitt órétti,“ segir Rannveig.
Hún lofar samt að bæta ráð
sitt, og er áreiðanlega öll af
vilja gerð. Sannleikurinn er
líka sá að fyrir utan þennan
eina ósið er hún einstaklega
prúð og væn stúlka, kurteis og
h'æglát og nægjusöm. Hún er
að vísu óánægð með kjörin hjá
kaupmanninum og kaupfélag-
inu og finnst það hart eins og
fleirum að þurfa að drepa sig
með vinnu til þess að geta lifað.
► En það er öðru nær en hún
gangi með eggjárn á sér. Það
er bara svona með fólk sem
vinnur í fiskhúsum: það má
' héita umkringt af bitvopnum.
Þegar Rannveig byrjaði að sjá
rautt, þurfti hún ekki annað
en teygja höndina í næsta bita
til þess að hafa hníf í henni.
Hún var líka alltaf óttalega
sorgbitin þegar hún var búin
að blóðga fólk, og hún bað til
dæmis Kjartan pólití afsökun-
ar árið um kring; og eftir fund-
inn hjá fógetanum tók hún það
upp hjá sjálfri sér að einsetja
sér að telja upp að tíu næst
þegar hún þættist verða þess
vör að byrjaður væri að renna
roði í umhverfið.
En góður ásetningur einn
saman er ekki nógur. Lítið á
allan þann stórkostlega ásetn-
ing sem fylgir í kjölfar timbur-
manna. Ef helmingurinn af
honum kæmist í gagnið, þá
gæti Áfengisverzlunin lokað
strax á morgun. Eins var það
með Rannveigu. Hún kreisti
aftur augun, beit saman tönn-
um og taldi upp að tíu. Og um
leið og höfuðið sagði tíu, seild-
ist höndin til hnífsins sem stóð
í bitanum, og verkstjórinn sem
hafði verið að ausa sér yfir
hana saklausa mátti í snar-
heitum fara til héraðslæknisins.
Jæja, þegar Rannveig af-
greiddi verkstjórann, var hún
orðin átján ára, sem er lög-
aldur sakamanna. Og þegar
Kjartan pólití leiddi hana fyrir
fógetann, þá þóttumst við í
Þrönguvík hafa ástæðu til að
ætla að nú mundi Rannveig
Jórunnardóttir fá sína af-
greiðslu líka. Þó vildi svo ein-
kennilega til að Kjartan pólití
var ósár aldrei þessu vant.
Hann hafði verið svo forsjáll
að fá lánaðan potthlemm í
kaupfélaginu áður en hann
lagði hendur á Rannveigu.
Kann líka að vera að fógetinn
Framhald á bls. 31.
FALKINN
Fyrir nokkru síðan kom
út í Danmörku bók sem
vakti allmikla athuygli.
Hér hún „Kan man det“
og höfundurinn var Sara
Kordon.
Nú hefur verið gerð
kvkmynd sem byggð er á
þessari bók og heitir
Rikki og mennirnir. Verð-
ur hún sýnd í Tónabíó.
Myndin segir frá ungri
konu, Rikki, og hefst hún
þegar hún er að skilja við
mann sinn. Við skilnað-
inn fær hún að halda
íbúðinni og dótturinn og
fer í þann starfa sem hún
hafði áður en hún giftist.
Síðan fylgjumst við með
henni, samlífi hennar með
tveimur elskhugum, fjár-
hagsvandræðum og þar til
svo er komið að hún er
farin að þiggja greiðslu
fyrir blíðu sína. Og
síðan ...
Gliita Nörby fer með
hluterk Rikki í þessari
mynd. Hún er okkur
löngu kunn fyrir leik sinn
í mörgum myndum sem
hér hafa verið sýndar
uppá síðkastið. Þó höf-
um við jafnan séð hana
í gamanmyndum.
Af öðrum leikurum í
myndinni má nefna Paul
Reichhardt. Hann lék m.
a. í Grænlandsmyndinni
Qivitoq, Taxa K 1640
eftrerlyst og Englen í
sort. Holger Juul Hansen,
Preben Marth, Bodil
Steen og Bendt Rothe.
RIKKI
o<; >brwiiiMn
í TÓNABÍÓ