Fálkinn


Fálkinn - 06.01.1964, Síða 37

Fálkinn - 06.01.1964, Síða 37
„Búðu þig, herra, tíminn er liðinn, nú er ég kominn eftir þér.“ Hertoginn svaraði þessu engu og stóð á fætur og þrammaði út í garðinn á eftir púkanum, en þar beið ógnarlegur mann- grúi. En í sama bili ryðst smalamaðurinn í gegnum mann- þröngina beint til púkans og sepir: „Flýðu, flýðu, eða þú munt hafa verra af.“ „Hvernig vogarðu þér að tefja mig? Manstu ekki, hvað ég sagði við þig?“ hvíslaði púk- inn að smalamanni. „Flónið þitt, mér er sama um hertogann, en ekki þig. Kata er lifandi og spyr eftir þér.“ Ekki hafði púkinn fyrr frétt af Kötu, en hann hvarf og skildi hertogann eftir. Smalamaður hló að sjálfum sér og var feg- inn að hafa getað frelsað her- togann með þessu bragði. í staðinn gerði hertoginn hann að ráðgjafa sínum og var við hann eins og bróður sinn. En þar var hann líka stálheppinn, því smalamaðurinn fátæki var ráðhollur hertoganum og hinn kurteisasti hirðmaður. Ekki hélt hann eftir skilding af gull- Stkkjunum tveimur, heldur skipti á milli þeirra, sem ráð- gjafarnir höfðu haft þá af, með rangindum. KvenþjóAin Framhald af bls. 35. cm. frá brún. Endið með lítilli stjörnu í hverju horni. Saumið einfaldan kross- saumsramma 1 cm. frá litlu stjörnunum. Brjótið sauiminn 1 cm. breið- an, faldið upp í höndunum á röngunni meðfram krosssaums- röndinni. Holdift er veikt Framh. af bls. 15. tilgangurinn með samkvæm- inu. Við hlógum þangað til við grétum. Frú Marin, sem hefði ef til vill verið mild í okkar garð, hefðum við hegðað okkur í samræmi við áætlun hennar fyrirgaf okkur ekki. Hún hataði okkur og var samt of huglaus til að sýna hatur sitt í verki. Það var Maímánuður. Ég hitti Mörtu sjaldnar heima hjá henni og svaf þar aðeins, þeg- ar ég gat skrökvað einhverju upp til að segja foreldrum min- um svo að ég gæti verið hjá henni um morguninn. Ég gerði þetta einu sinni eða tvisvar í viku. Mig furðaði hvað ég gat komizt upp með þessa lygi. Satt að segja þá trúði faðir minn mér ekki. Hann var ótrú- lega mildur og lokaði augunum fyrir öllu, með því skilyrði, að hvorki bræður mínir né þjón- ustufólkið vissi það. Það var nóg fyrir mig að segja eins og daginn, sem ég gekk til Sénart- skógarins, að ég yfirgæfi húsið klukkan fimm að morgni. En móðir mín pakkaði ekki lengur niður í körfu fyrir mig. Faðir minn lét sér þetta allt vel líka og svo gerði hann stundum uppreisn og ávítaði mig fyrir iðjuleysið án þess að nokkur breyting yrði. Rifrildið var ofsafengið, en hjaðnaði skyndilega eins og bylgjur sjáv- arins. Ástin þolir engan keppinaut. En ástin er góðviljað iðjuleysi, líkt og mildur regnúði frá himni, sem vökvar jörðina. Ef æskan er bjánaleg, er það af því að henni hefur verið eytt í iðjuleysi. Fræðslukerfi okkar eru gölluð, af því að þau eru ætluð fyrir meðalmennskuna, það er að segja fyrir fjöldann. Því að iðjuleysi er óþekkt fyrir- brigði framsæknum huga. Aldrei lærði ég meira en á þess- um löngu dögum, sem hefðu virzt tómir í augum venjulegs manns, á dögum sem ég hafði gát á mínu óreynda hjarta eins og nýliði hefur á framkomu sinni við kvöldverðarborð. Þegar ég svaf ekki heima hjá Mörtu eða með öðrum orðum, hér um bil á hverjum degi, fór- um við út eftir kvöldverð og gengum meðfram Marne til klukkan ellefu. Stundum leysti ég bát föður míns. Marta greip til áranna meðan ég lagðist niður og hvíldi höf- uðið í kjöltu hennar. Ég var fyrir henni. Skyndilega rakst ár í mig og minnti mig á, að þetta daður gæti ekki staðið að eilífu. Það virðist liggja í hlutarins eðli, að ástin deili fegurð sinni með öðru. Vegna þessa verður atkvæðalítil ástmær ástleitin og vefur örmum um háls elskhuga sins og finnur upp þúsund smá- atriði til að trufla hann, ef hann er önnum kafinn. Mig langaði aldrei eins mikið til að kyssa Mörtu eins og þegar einhver sýslan dró athygli hennar frá mér, aldrei langaði mig eins til að gæla við hár hennar og þegar hún var að greiða það upp, áður en hún fór út. í bátnum kastaði ég mér yfir hana og lét kossana rigna yfir hana svo að hún sleppti árunum og bátinn rak inn í grasið og hvítu og gulu vatnaliljurnar nálægt bakkanum. Ég var ekki lengur reiður út í fjandsemi húseigandans, sem gerði mér svo erfitt fyrir um að koma í heimsókn til Mörtu. Þrá mín til að eignast hana á þann hátt, sem Jacques hafði ekki verið fær um var óslökkv- andi. Öll ást á sína æsku, þroskaskeið og elli. Hafði mín ást náð lokastiginu nú þegar, fyrst beita þurfti brögðum til að seðja hana? Mér þótti svo vænt um vinstri bakka Marne, að ég eyddi miklum tíma á hægri bakkan- um, sem var gjörólíkur til að ég gæti horft á þá hlið, sem mér þótti vænt um. Hægri bakkinn er ekki eins mildur og þar halda sig grænmetissalar og bændur, en slæpingjar halda sig aftur á móti hinum megin. Við vorum vön að binda bát- inn fastan við tré og leggjast í hveitið. Kvöldgolan ýfði hveitiakrana, svo að þeir skulfu umhverfis okkur. Eigingirni okkar gleymdi hleypidómum sínum á þessum felustað, og eins og við höfðum fórnað Jac- ques, þannig fórnuðum við hveitinu til hagræðis fyrir ást okkar. Það var í okkar valdi að meta hið ljúfa líf; það að gera ekki neitt. Varúð var afsök- unin, sem ég hefði fyrir að eyða ekki nóttinni með Möí'tu. Hún dáðist að styrkri skapgerð minni. Ég ásakaði sjálfan mig fyrir gagnrýni mína og uppgerð og eyddi heilu dögunum í að spyrja sjálfan mig, hvort ég elskaði Mörtu eins mikið og ég hafði gert. Ást mín gerði allt há- fleygt. Alveg eins og ég rang- túlkaði setningar Mörtu, þanníg túlkaði ég nú þögn hennar á svipaðan hátt. Hafði ég á röngu að standa? Visst svar sem ekki er unnt að lýsa, segir okkur hvenær við höfum hitt naglann á höfuðið. Gleði mín og kvöl jókst núna. Þar sem ég lá við hlið hennar, greip mig skyndi- lega löngun til að vera einn í rúminu, heima hjá mér, og þetta kom mér í skilning um, hve óþolandi venjulegt líf væri. Á hinn bóginn mátti ég ekki til þess hugsa að lifa án Mörtu. Ég var farinn að taka út refsinguna fyrir hórdóm. Ég lét Mörtu gjalda þess, að hún hafði samþykkt, áður en við fórum að elskast, að búa hús Jacques húsgögnum með smekk mínum. Þessi húsgögn voru að verða andstyggileg í mínum augum af því ég hah'i' valið þau með það fyrir augui,. að gera Jacques gramt í geði en ekki til eigin ánægju. Eg varð leiður á þeim án nokk- urrar ástæðu. Mér þótti leitt að hafa ekki látið Mörtu um valið. Marta leit á mig undrandi með sínum stóru barnaiegu augum; þegar ég sagði bitur- lega við hana: „Ég vona, að þegar við förum að búa höfum við ekki þessi húsgögn.“ Hún virti hvert orð, sem ég sagð . Hún hélt, að ég hefði gleymt, að ég valdi þessi húsgögn sjálfur og þorði ekki að minna mig á það. En í hjarta sínu var hún hrygg yfir hinu slæma minni mínu. XIX í byrjun júní fékk Marta bréf frá Jacques, þar sem hann í fyrsta sinn talaði um eitthvað annað en ást sína til hennar. Hann var veikur og þeir voru að senda hann til sjúkrahúss í Bourges. Það olli mér ekki neinnar ánægju að heyra að hann væri veikur, en það var léttir að hann skyldi hafa eitt- hvað nýtt að segja. Á morgun eða daginn þar á eftir myndi hann fara í gegnum J...og hann bað Mörtu að hafa gætur á lest hans, þegar hún færi í gegnum stöðina. Marta sýndi mér bréfið. Hún beið eftir fyrir- mælum mínum. Ástin hafði gert hana eins mótstöðulitla og þræl. Þegar ég sá svona full- komna hlýðni, fannst mér erf- itt að segja af og til um það. Ég hélt að þögn mín táknaði samþykki. Hvaða rétt átti ég að aftra henni frá að sjá eiginmann sinn í nokkrar mínútur? Hún þagði líka. Og ég fór ekki heim til hennar næsta dag. Um það hafði verið gert þegjandi samkomulag. Næsta dag þar á eftir um morguninn kom sendiboði heim til foreldra rninna með bréf, sem hann átti að afhenda mér einum. Það var frá Mörtu. Hún beið eftir mér á árbakkanurn. Hún sárbændi mig að koma, ef ég ætti einhverja ást afgangs handa henni. Ég hljóp að bekknum þar sem hún sat og beið. Kuldinn í kveðju hennar, sem var í svo miklu ósamræmi við orðalag bréfsins, kældi í mér hjartað. Ég hélt hún væri hætt að elska mig. Framh. á bls. 40, FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.