Fálkinn


Fálkinn - 13.04.1964, Qupperneq 37

Fálkinn - 13.04.1964, Qupperneq 37
r PANDA DG TÖFRAMAÐURINN MIKLI rr 1x1 Hvarf þeirra Plútanusar og Panda olli miklu fjaðra- foki á lögreglustöðinni. „Hvar eru þeir?“ öskraði lög- reglustjórinn. „Svaraðu, maður!“ „Ég hef enga hug- mynd um það,“ svaraði vesalings yfirlögregluþjónn- inn. „Þeir voru hér og svo voru þeir ekki hér og .. „Ég heyrði gamla manninn eitthvað minnast á ein- hvern Góðgjarn leiðsögumann,“ sagði lögregluþjónn- inn. „Kannski hann geti leiðbeint okkur þangað sem þeir eru.“ „Þvættingur!" greip lögreglustjórinn fram í. „Við vitum ekki einu sinni hver hann er. Ég ætla að taka þetta mál ■ að mér persónulega.“ Hann þreif upp símann og sendi út skipanir. „Stórhættulegir glæpamenn! Allir lögreglumenn til starfa! Lýsing: Langt hvítt skegg, sítt hár, með broddmyndaðan hatt, annar með honum á flóttanum. Sá heitir Panda.“ Um leið og lögreglustjórinn lagði á voru Panda og Plútanus að birtast í öðru borgarhverfi. Þeir lentu í baksæti lítillar bifreiðar, sem þvottakona á rósóttum kjól ók. Þótt einkennilegt sé, virtist þvottakonan ekkert undr- andi þegar þeir félagar skyndilega birtust í aftur- sætinu. En Panda var dálítið ruglaður. „En herra Plútanus,“ stundi hann loksins upp. „Hvað erum við að gera hér? Ég hélt þú færir með okkur til Gogga Góðgjarna." „Hvers vegna ígrundar þú 'ekki betur, ungi ytra-heimsbúi,“ svaraði töframaðurinn. „Sérðu ekki að Það er Goggi Góðgjarni, sem ekur. Hann er dulbúinn í þessum rósótta kjól.“ „Hárrétt, Plútanus, sagði þá Goggi. „Töfraáugun sjá allt.“ Svo bætti hann lágt við. „Ég vona að augu laganna sjái ekki eins vel.“ En til allrar óhamingju fyrir flóttamennina voru augu lögreglunnar galopin. „Sjáið þið! Þarna fara fíóttamennirnir," æpti lögreglumaður á mótorhjóli. „Eltið þá!, menn!“ Og þeir þutu af stað með vælandi sírenur. Flóttamennirnir voru komnir í útjaðar borgarinnar, þegar þeir heyrðu sírenuvælið og mótordrunurnar. „Úff,“ sagði Plútanus og tók höndum fyrir eyrun. „Getur maður hvergi losnað við þennan bannsettan hávaða hér i ytra-heimi?“ „Við erum eltir,“ hrópaði Panda, ,og öll löggan virðist komin af stað. Þeir setja nkkur beint í fangelsið aftur.“ „Ekki víst,“ tautaði Goggi. „Haldið ykkur því nú gef ég fullt inn.“ En allt í einu birtist lögreglumaður fyrir framan þá, og gaf þeim merki um að stanza. „Hvað vill þessi ytra-heimsbúi?“ spurði Plútanus „Hann er tauga- óstyrkur. Hann vill komast á rólegan stað,“ flýtti Goggi sér að útskýra. „Nei, byrjið nú ekki á því aftur,“ bað Panda. En Plútanus hafði þegar veifáð hendi sinni og... lögreglumaðurinn var horfinn. FÁLKINN 37

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.