Fálkinn - 31.05.1965, Blaðsíða 6
KONUNGIJK
OG DROTTNING
Þau eru konungur og drottning í ríki
kvikmyndanna, forrík, umtöluð og eftir-
sótt. Menn og konur af öllum stigum
leitast við að koma sér í mjúkinn hjá
þeim. En þau láta ekki teyma sig. „Vit-
ið þið ekki hver við erum,“ hrópaði
hann eitt sinn. Milljónir manna krefj-
ast stöðugrar vitneskju um hvert fót-
mál þeirra — valtur en óvefengjanleg-
ur vottur um veldi þeirra Burtons-
hjóna.
Fyrir einu ári virtist líf þeirra í megn-
ustu óreiðu. Þau voru í Toronto í
Kanada. Þar unnu þau að sýningum
á Hamlet. Hún barðist fyrir skilnaði
við eiginmann sinn. Hann neitaði að
veita skilnað og hóf málaferli sem
snertu milljónir dollara, til að tefja
fyrir framgangi hans. Þau höfðu í
hyggju að fara inn í Bandaríkin eftir
Toronto-heimsóknina. Bandarískur þing-
maður reis upp og hrópaði: Þið eruð
óvelkomin hér sunnan landamæranna.
Þau börðust hlið við hlið, þrákelknis-
leg og áhyggjufull. Jörðin sýndist leika
á reiðiskjálfi undir fótum þeirra, þau
höfðu þörf fyrir útrétta vinarhönd.
En þau voru saman hverja stund,
og það skipti þau öllu máli. Þau vildu
ekki þurfa að skiljast að. Hún óttaðist
að þau yrðu að fara aðskilin inn í
Bandarikin, búa þar aðskilin, mega
ekki sjást eða hittast. En fyrr en varði
rofaði til og það birti á nýjan leik í
lífi þeirra. Maki hennar lét af andstöðu
sinni. Þau giftu sig strax í Montreal.
Síðan héldu þau inn í Bandaríkin.
í New York biðu þúsundir manna á
götunum til að sjá þau yfirgefa Lunt-
Fontanne leikhúsið eftir sýningar. Hann
vann hvern stórsigurinn eftir annan
á sviðinu. Hún lék ekki sjálf, en var
viðstödd á hverju einasta kvöldi. Hún
stóð í hliðarvængjum leiksviðsins og tók
á móti honum og leiddi hann til bún-
ingsherbergjanna að sýningu lokinni.
Adlai Stevenson bauð þeim í veizlu.
Önnur boð fylgdu í kjölfarið. Sam-
kvæmisheimurinn tók að krefjast þátt-
töku þeirra. En þau voru treg til að
koma. Eitt kvöldið stóðu þau saman
á risastóru sviði og lásu saman upp úr
sígildum verkum. Þetta var góðgerðar-
skemmtun. Aðeins auðugt fólk hafði
efni á að sækja skemmtunina. Þar
voru allir þeir sem máttu sín einhvers.
Burton sagði síðar: „Auðurinn blasti við
okkur, allir þessir minkar og ilmvötn.
Og steinköld þögnin frá áheyrenda-
bekkjunum. Ég hugsaði: Nú handfjalla
þau rýtingana.“ En þegar allt kom til
alls höfðu hjónin ekkert að óttast. Þau
yfirgáfu sviðið við áköf fagnaðarlæti ;
manngrúans.
Er þau héldu brott frá Bandaríkjun-
um sigri hrósandi, stóðu þúsundir á
hafnarbakkanum til að kveðja þau.
Þau sigldu með Curtard-skipinu Queen
Elisabeth áleiðis til Parísarborgar. Með
skipinu var einnig fyrrverandi eigin-
kona fyrrverandi maka hennar, Debbie
Reynolds.
í París sagði Elísabet: „Merkilegt
hvað eitt pappírssnifsi skiptir miklu
máli. Við erum hvorki betra né verra
fólk en fyrir giftinguna. Við erum
sömu manneskjurnar.“
Meðan þau dvöldust í París við kvik-
myndatöku bjuggu þau á litlu sóma-
kæru hóteli skammt frá Champs-
Elysées. Þau greiddu 420 þúsund krón-
ur á viku fyrir 21 herbergi, fæði og
aðra þjónustu allan sólarhringinn.
Burton-hjónin eiga hús í Sviss og
Mexíkó, en una sér bezt á hótelum, sem
geta veitt þeim skjóta og skilyrðislausa
þjónustu.