Fálkinn - 31.05.1965, Page 14
FRÖIMSK DÆGURLAGASTJARIMA
FRANCE GALL er sautján ára, lagleg og
vinsælasta dægurlagastjarna Frakka um þess-
ar mundir. Hún kom fyrst fram fyrir tæp-
lega tveimur árum. Á átján mánuðum flaug
hún upp á stjörnuhimininn. Nú seljast hljóm-
plötur hennar í milljónaupplögum. Hér er
hún stödd í Neapel. Þar vann hún sinn glæsi-
legasta sigur til þessa, í sönglagakeppni á
vegum Eurovision. — France Gall, France
Gall, France Gall — hrópa unglingarnir í
Frakklandi, dansandi og syngjandi.
JAMIES BOIMD STÆLIIMG
Undanfarið hafa sprottið upp margar stæl-
ingar á James Bond, bæði í bókum og
í kvikmyndum. Napoleon Solo er meðal
þeirra, aðalkappinn hjá UNCLE, alþjóð-
legri lögreglu sem á í höggi við glæpa-
félög um allan heim. Sérfræðingar vorir
segja, að Napoleon sé ólíkt sennilegri pers-
óna en Bond, en við fellum engan dóm
um það, að svo stöddu. Okkur virðist á
ýmsu, að Napoleon gefi 007 lítið eftir sem
hörkutól og kvennakarl. Hér er Robert
Vaughn í hlutverki Napoleons Solo. Hve-
nær kemur mynd með honum til fslands?
Orson Welles nýtur sín bezt
þegar hann getur unnið að
kvikmyndagérð í friði fyrir
fréttamönnum og forvitnum
körlum og konum, sem spyrja
um allt, án þess að vita um
hvað það er að spyrja. Hann
hefur heídur ekkert á móti því
að gera tvær kvikmyndir sam-
tímis. Um þessar mundir leik-
ur hann á Spáni, Langa-Jón í
HPP Á LÍF OG DAIJÐA
Hvar í veröldinni berjast konur af slíkum dýrshætti? Katt-
liðugar, sterkar, grimmar heyja þær bardaga upp á líf og dauða.
Áhorfendur fylgjast með bardaganum, æstir og óttaslegnir.
Nema einn. James Bond, spæjari númer 007. Þú getur einnig
orðið vitni að þessum ofsafengna bardaga þegar kvikmyndin
„From Russia with Love“ verður sýnd í Tónabíó, einhvern
tíma á þessu ári.
Gulleyjunni. Milli atriða er
hann á þeytingi yfir í hálf-
fallnar hlöður þar sem hann er
að láta gera kvikmynd sem er
unnin upp úr ýmsum leikritum
Sheakspears. Auk hans leika
Jeanne Moreau og Margaret
Rutherford og John Gielgud.
Welles er sagður ánægður með
hlöðuna, því blaðamenn hafa
ekki hugmynd um hvar hún
er staðsett.