Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1965, Síða 25

Fálkinn - 31.05.1965, Síða 25
Einangrunargler Framleitt cinungis úr úrvals gleri. — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. KORKIÐJAIM H.F. Skúlagötu 57 — Símar 23200 ENDURNÝJUM SÆNGUR OG KODDA FLJÓT AFGREIÐSLA HÖFUM EINNIG EINKASÖLU A REST-BEST KODDUM Póstsendum um land allt. DÚN- 0G FIÐUR- HREINSUNIN VATNSSTÍG 3 (örfá skref frá Laugavegi) Sími 18740. Svo var það nú í vetur, að ég lagði leið mína á „gamla staðinn“, ásamt tveimur félög- um mínum og hafði áður tekið af þeim loforð um að ljóstra ekki upp staðnum. Við tókum með okkur hamra og meitla, að ógleymdum strigapoka, til að bera í væntanlegan „afla“. Þetta var á sunnudegi, í sól- arlausu blíðskaparveðri og vor- um við komnir að fellsendan- um laust fyrir klukkan tvö, eftir hádegi. Frá veginum er stuttur gangur upp á fellið og lögðum við á brattann, eftir að hafa tekið nokkrar ljós- myndir og gónt á umhverfið um stund. Við gengum eins og leið ligg- ul- upp skriðuna neðan við hamrana og staðnæmdumst ekki fyrr en við komum að einu jaspisberglaginu. Þar var óðara tekið til að höggva jaspis- inn úr berginu og gekk það eftir vonum. Einnig fundum við talsvert af steinum í skrið- unni neðan við hamrana, grænum, rauðum og gulum, og marga tóna af hverjum lit. Að lokum gengum við upp á fellið, en þar fundum við einnig nokkra steina. Við vorum ánægðir með afl- ann, hálfan strigapoka. Talsvert af þessum steinum mun fara í skartgripi, enda eru þeir félagar minir gullsmiðir báðir og þóttust hafa aflað vel. Það er von mín, að fleiri leggi leið sína á fjöllin og fell- in í nágrenni sínu, því enginn veit hvað leynast kann af dýr- mætum hlutum í ríki náttúr- unnar. Og þar sem fjörugöngur og fjallaferðir færast í aukana frá ári til árs, (öllum þeim sem unna íslenzkum óbyggðum til mikillar ánægju), er ekki óráð- legt að benda væntanlegum fjallaförum, eða fjörulöllurum á, að steinar eru meðal beztu minjagripa sem menn geta með sér haft úr slikum ferðum. Og svo að lokum... góða ferð. FÁLKINN FLÝGUR IJT Dönsku IMAK gúmmíhanzkarnir ryðja sér braut. Þeir, sem hafa notað IMAK vilja ekki annað. — IMAK ávallt mjúkir og liprir, létta störfin. Það borgar sig að kaupa IMAK. — Fæst í 6 mismun- andi gerðum. . Heildverzlun ANDRÉSAR GUÐNASOIMé*R Hverfisgötu 72. — Símar 16230, 20540. KLÆÐIST FÖTUM FRÁ OKKUR FÁLKINN 25

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.