Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1965, Blaðsíða 32

Fálkinn - 31.05.1965, Blaðsíða 32
HEILDSÖLUBIRGÐIR KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRD H.F. SÍMI 2 4120 hjá Myer-herbúðunum. Ekki var útilokað að Scott væri á fótum, og þá gæti hann sagt honum að forseti brezka herráðsins ósk- aði eftir að viðtal þeirra hæfist klukkan hálfníu í stað níu næsta morgun. Breiðar götur gömlu herbúð- anna í Myer-hverfinu voru auð- ar og dimmar undir álmliminu. Scott bjó í sextán herbergja húsi sem fylgdi embætti her- ráðsforsetans. Gamla Herbúð sex, viðkunnanlegt múrsteins- hús, stóð á hæðarbrúninni og þaðan sá yfir Washington yfir 32 FÁLKINN um Potomacána. Um leið og Casey beygði fyrir hornið og ók upp að framhlið hússins, glampaði í ijóskeilunni frá bíln- um á byssuhlaup varðmanns sem gekk sinum jöfnu skref- um, og afturenda á kyrrstæðum Thunderbird. Einkennisplatan, húðuð endurskinsefni, blasti við augum Casey. Þar stóð Kali- fornía USS 1. Hvert í þó, þetta er bíll Prent- ice, hugsaði hann. Ljós var i skrifstofu Scotts. Að öðru leyti var húsið dimmt. Hann spýtti í og tók stóra beygju út á götuna framhjá bíl Prentice. Væri svo að Scott sæti á ráðstefnu með formanni her- málanefndar öldungadeildarinn- ar, var ólíklegt að honum væri um það gefið að láta trufla sig. Þá var betra að hringja árla morguns. Á heimleiðinni, eftir að búið var að hirða Don og félaga hans tvo upp af dimmu bílastæði við kvikmyndahúsið, snerust hugs- anir Casey enn um Thunderbird- bílinn. Hann hafði ekki gert sér í hugarlund að svona mikið vin- fengi væri milli Scotts og Prent- ice, þó hershöfðinginn hefði sannarlega varið tíma sem nægði til að tengjast tíu ævi- löngum vináttuböndum i að bera vitni fyrir nefnd öldungadeildar- mannsins. Kannski hafði Prent- ice farið rakleitt til að skýra Scott frá niðurstöðu skoðana- könnunarinnar. Scott hafði lýst yfir opinberlega óánægju sinni með stéfnu Lymans forseta. En hvaða ástæða var til að gera þetta um miðja nótt? Nokkuð seint að sitja við stjórnmála- rabb á fyrsta timanum. Marge sneri sér en vaknaði ekki til fulls, þegar Casey skreiddist upp I rúmið. Hann reyndi að komast í ró, bylti sér á báðar hliðar, lagðist á grúfu og loks á bakið. Svefninn lét standa á sér. Ónotakenndin frá morgninum var komin aftur, og nú um lágnættið var hún orðin að óskiljanlegum kvíða. „Er eitthvað að, Jiggs?" Rödd Marge var loðin. „Ég veit það ekki, væna,“ svar- aði Casey. „Veit það ekki.“ Mánudagur. Strax um leið og hann stanz- aði vekjarann fann Casey að þetta yrði erfiður dagur. Hann hafði fengið alltof lítinn svefn, og beizkt bragð í munninum kom honum til að áfellast sjálf- an sig fyrir að reykja alltaf þrisvar sinnum meira i veizlum en kvöldin sem hann var heima. Steypibaðið hressti hann. Með handklæði vafið um sig fór hann niður og hringdi heim til Scott hershöfðingja. Við aðra hring- ingu var svarað. „Casey ofursti hér, hershöfðingi," sagði hann „Ég vona að ég geri ekki ónæði.“ „Síður en svo, Jiggs." Scott talaði fullum rómi. „Hvað er um að vera?“ „Sir Harry Lancaster fór þess á leit að viðtali hans yrði flýtt til hálfníu, herra minn. Ég bjóst ekki við að þér hefðuð neitt á móti því. Ég kem með skjölin yðar klukkan átta." „AUt i fina lagi, Jiggs." „Ég ætlaði að hringja til yðar í gær, herra minn,“ sagði Casey, „en það datt alveg úr mér, og ég rankaði loksins við mér í gærkvöld og var hræddur um að þér væruð sofnaður, svo —" Éramh. í næsta blaði. O Engisin veit sína ævi Framh. af bls. 21. og uppbætur." Hún varð sigri hrósandi í framan rétt eins og þetta væri ekki í sjöþúsund- asta skiptið, sem hún hafði haft þessa setningu yfir. í svip hans birtist máttur endurtekningar- innar. Andlitið togaðist í ýms- ar áttir og afmyndaðist og allt hringsnerist fyrir augum hans. Svitinn spratt fram á enninu, og í stofunni voru ekki leng- ur húsgögn, aðeins litir og svo sá hann móta fyrir konu sinni út við glugga. Þetta var einn af þessum nýtízku stóru glugg- um, og í björtu sáust bæði Esjan og jökullinn í vestri. Eiginkon- an var kampakát, enda vissi hún ekki að fyrir framan hana stóð fullkomlega brjálaður maður. Henni fannst látbragð hans í mesta lagi bera vott um velheppnað skens af henn- ar hálfu. Hann þreif silfur- kertastjaka af flyglinum, sem var níðingslega þungur og bráðum myndu litlu angarnir, börnin þeirra, kannski ekki eiga neina mömmu lengur, bara brjálaðan pabba. Þorkell réðist í áttina að þeirri þoku- móðu, sem hann hélt að væri konan hans. Það glampaði á stjakann, þar sem hann hófst á loft. En hvað var þetta? Nú sá hann ekkert lengur. Allt var hvítt. Hún hlaut þó að vera á sínum stað, hugsaði hann, og hélt áfram þessari heimatilbúnu æðisgengnu morð- tilraun. En svo heyrðist brot- hljóð og þungur líkami hans; steyptist í gegnum gluggann. Kaldur veturinn umlék hann í fallinu, og glerbrotin hrundu allt í kríng. Jörðin var gadd- freðin og þetta var á fjórðu hæð. Skóför hans mynduðust í moldina á meðan hún var ennþá lin, en nú voru þau hörð. Á stöku stað lágu nagla- spýtur, en út úr þeim stóðu kol- ryðgaðar fírtommur og vissu til himins. Það er skömm að því, hvað þeir eru lengi að ganga frá lóðunum í kringum þessi nýju hús. Þvílíkt ástand, eiginmaðurinn svona í lausu lofti og þessi fíni gluggi í mask. Plaff .. . Úff ... En sú kímnigáfa; þegar sjúkrabíllinn kom á vettvang var eiginkonan ennþá með glimt í augunum. Örn H. Bjarnason.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.