Fálkinn - 08.06.1965, Síða 14
JACKIE KEIMÍMEDY
SÍÐAN Jackie Kennedy byrjaði aftur að taka þátt í
samkvæmislífinu fyrir skömmu síðan hefur það verið
stöðugt vandamál hver ætti að fylgja henni á hinar
ýmsu góðgerðarskemmtanir, dansleiki og frumsýningar.
Það þykir ekki viðeigandi að hún sýni sig opinberlega
með hverjum sem er, allra sízt ungum mönnum. Þess
vegna hafa ýmsir kunnir, eldri og virðulegri, forystu-
menn í Bandaríkjunum tekið að sér að fylgja henni
þangað sem hún fer opinberlega. Hér er hún að sækja
hljómleika ásamt Adlai Stevenson, aðalfulltrúa Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Nýlega sótti hún
samkvæmi í New York ásamt Averell Harrimann, fyrr-
um ríkisstjóra í New York og um daginn var hinn hvít-
hærði öldungur hljómsveitarstjórinn Leopold Stokowski,
borðherra hennar í litlu samkvæmi í einum kunnasta
næturklúbb New York-borgar. Hins vegar hefur Jackie
sézt á veitingastöðum, á óformlegum skemmtunum, með
mönnum á borð við Marlon Brando og nokkrum kunn-
um kaupsýslumönnum af yngri kynslóðinni. En á hæl-
um hennar eru alltaf leynilögreglumenn, hvar sem hún
fer, t. d. maðurinn á miðri myndinni.
sumt
GAMAIM FRÁ
GJÖVIK
Hér fer á eftir verðlauna-
skrítla frá Gjövik í Noregi:
Þrjár konur frá Gjövik voru
á skemmtigöngu sólbjartan
sumardag og komu allt í einu
auga á herðabreiðan karlmann
sem lá allsnakinn með dag-
blað yfir andlitinu. Þær lædd-
ust hljóðlega nær, og ein þeirra
hvíslaði:
— Ég er að minnsta kosti
viss um að þetta er ekki mað-
urinn minn.
— Ekki minn heldur, sagði
cnnur.
Sú þriðja, hnellin hnáta,
gætti betur að:
— Hann er ekki frá Gjövik,
sagði hún svo.
LEYIMIVOPIMIÐ
HÚN er kölluð „leynivopn-
ið“. Aliza Gur var kjörin
„ungfrú ísrael“, fékk tafar-
laust aðalhlutverk í nokkr-
um brezkum kvikmyndum
og er nú höfð í „geymslu“
hjá kvikmydajöfri í Holly-
wood, sem ætlar að skjóta
henni upp á stjörnuhimininn
innan skamms. Hún á að
keppa við töfradísir kvik-
myndaborgarinnar um að-
dáun kvikmyndahússgesta,
ekki sízt karlmanna. „Hún
á eftir að slá þær allar út,“
sagði þessi jöfur, sem hefur
tekið Alizu litlu undir vernd-
arvæng sinn.
1
MASERATI
ÞESSI bifreið var „stjarnan" á nýlegri
bílasýningu í Genf. Hún er af Maserati-
gerð og mundi kosta hingað komin um
meira en eina milljón króna. Það væri
gaman fyrir þig að eiga hana einhvers
staðar í Evrópu, þegar þú ert þar á ferða-
lagi.
14
FALKINN