Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Blaðsíða 21

Fálkinn - 08.06.1965, Blaðsíða 21
Fyrir skömmu varð blaðamaður Fálkans þess aðnjótandi að vera farþegi í hringflugi yfir Reykjavík og nágrenni. Farkosturinn var ein af nýjustu flugvélum Þyts, glæsileg tveggja hreyfla vél af Piper gerð. Fyrsta myndin sem fylgir þessum línum er af samferðamönnum hlaðamannsins, þar sem þeir bíða eftir flugmanninum í anddyri flugskýlis Þyts. Fjórða myndin er svo tekin yfir Hafnarfjörð og sér á Vífils- fell í haksýn. Ákveðið hafði verið að vera á lofti í hálftíma og þar sem nægur tími var eftir, var samþykkt að halda á Skaga. Á leiðinni þangað flugum við yfir Seltjarnames, en þá var fimmta myndin tekin og sýnir hún nýbyggingar á nesinu. í baksýn sést Reykjavíkurhöfn, Viðey og fjærst má greina Mos- fellssveitarfjöllin. Þegar flugmaðurinn, Gunnar Guðjónsson var mættur, var þess ekki langt að bíða að vélin hæfi sig til flugs, og var stefnan tekin upp í Mosfellssveit, og er mynd númer tvö tekin yfir hluta sveitarinnar. Glöggt má sjá hve þéttbýlt er orðið þarna. Þegar við höfðum flogið hring um sveitina, var stefnan tekin til Kópavogs, og er þriðja myndin tekin yfir Kársnesið. Sjötta myndin er tekin þegar við vorum staddir utan við Skipaskaga og sér upp eftir honum. Akranes er orðinn myndar- legur hær, enda vel í sveit settur. Akrafjall trónar í baksýn, sterkur bakvörður og traustur, með öll sín veiðibjöllulireiður, scm orðið hafa bitbein eggtínunga og landeigenda sem al- kunna er. LENDINGIN GEKK AÐ OSKUM,“ eins og þar stendur.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.