Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Blaðsíða 16

Fálkinn - 08.06.1965, Blaðsíða 16
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON SKRIFAR UM: AÐ hefur löngum þótt í frá- sögur færandi, ekki sízt við útlendinga, að íslendingar eigi elzta löggjafarþing í heimi. Þetta er rétt í þeim skilningi, að ekkert starfandi löggjafar- þing muni vera eldra, en hinu er ástæðulaust að gleyma, að saga Alþingis er harla slitrótt og í rauninni var það um alda- bil lítið meira en nafnið tómt, unz það var að fullu lagt niður. Þegar Alþingi var endurreist á síðustu öld, var ekki horfið að hinu upphaflega formi, heldur var danska þingið tekið til fyr- irmyndar, þannig að Alþingi er í rauninni stæling á ríkisþingi Dana á síðustu öld, og er form þess því að mörgu leyti úrelt og óhagkvæmt við íslenzkar að- stæður, t. d. deildaskiptingin sem er með öllu marklaus og einungis til trafala við þing- störfin. Oft hefur verið að því vikið í ræðu og riti, að Alþingi njóti ekki tilhlýðilegrar virðingar meðal alþýðu manna í landinu, og er mála sannast, að óvíða á byggðu bóli muni virðingar- leysi manna fyrir æðstu stofn- un ríkis vera meira en hér- lendis. Liggja til þess margar ástæður, sem drepið mun verða á lauslega hér á eftir, en merg- urinn málsins er vitaskuld sá, að engin stofnun nýtur ann- arrar virðingar en þeirrar sem hún sjálf skapar sér á hverjum tíma. Virðingu er ekki hægt að knýja fram; hana verður að vekja. Alþingi fer með æðsta vald í löggjöf og stjórnarrekstri og er þannig sinn eigin húsbóndi. Verksvið þess og starfshættir hafa ekki verið skilgreind til neinnar hlítar í stjórnarskrá eða lögum, heldur ráða þar mestu gamlar hefðir og sið- venjur sem skapazt hafa og mótazt af íslenzkri stjórnmála- þróun síðustu hundrað árin. Þannig má segja, að margt sé á reiki um verksvið Alþingis, hlutverk alþingismanna og starfshætti. Þó mun mega slá því föstu, að meginverkefni Al- þingis séu fernskonar: 1) laga- setning, 2) fjármálastjórn, 3) stjórnarmyndun og mótun stjórnarstefnu, 4) eftirlit með handhöfum framkvæmdavalds og stjórnarrekstri yfirleitt. Þetta mættu þykja ærin verk- efni, ef þeim væri sinnt svo sem vert væri, en reyndin hef- ur orðið sú, að harla lítið ligg- ur eftir hvert þing, og stappar raunar nærri ósvinnu hvernig starfsemi Alþingis er háttað, þegar hliðsjón er höfð af því að alþingismenn eru nú á föstum árslaunum. Þeir koma saman í október og drolla við karp og nudd framundir jól, taka þá sex vikna jólaleyfi, byrja aftur í febrúar og eru lengi að kom- ast að verki, en svo tekur þing- ið venjulega fjörkipp undir vor- ið, og þá er öllum málum hesp- að af á skömmum tíma í maí, einatt þannig að ekki vinnst tími til að ræða einstök mál til hlítar. Þessu veldur m. a. sú ós- vinna, að stór hluti þingmanna er önnum kafinn við önnur störf um þingtímann, og hef ég fyrir satt, að ósjaldan verði að fresta fundum þingnefnda sök- um þess að þingmenn séu útí bæ að sinna embættisverk- um! Það er einnig orðið ein- kennilega títt að sjá þess getið í dagblöðum, að tiltekinn þing- maður sé forfallaður frá þing- störfum vegna embættisanna, og virðist því tekið sem sjálf- sögðum hlut. Þá eru drifnir í þingsalina varamenn, sem eru flestum hnútum ókunnugir og gera fátt annað en láta sér leið- ast þann stutta tíma sem þeim leyfist að verma þingstólana. Það er í augum uppi, að þessi háttur er óþolandi. Séu þing- menn þannig settir að þeir geti ekki sinnt þingstörfum um þingtímann, eiga þeir hreinlega ekki að gefa kost á sér til þing- setu. Hálfkákið sem nú tíðkast er ekki einasta sóun á tíma, heldur lika á dýrmætum fjár- munum, því það eru skattgreið- endur sem leggja til þingfarar- kaup þeirra varaþingmanna sem sífellt eru að hlaupa í skörðin. SEM dæmi um afköst Alþingis má til gamans geta þess, að á liðnum vetri var einungis samþykkt ein þingsályktunar- tillaga fyrir áramót, og var hún þess efnis að fundum Alþingis skyldi frestað framí febrúar. Hitt er samt miklum mun al- varlegra, að eyðurnar í lög- gjafarstarfi Alþingis eru að verða hreint viðundur. Þannig búum við t. d. við fræðslulög- gjöf sem er endurskoðuð á aldarfjórðungsfresti og er löngu orðin úrelt. Iðnlöggjöf íslend- inga er frá árinu 1922 og væri efni í heilt grínleikrit. Vinnu- löggjöfin er meira en aldar- fjórðungs gömul og löngu úrelt. Húsnæðismálalöggjöfin er að minnsta kosti áratug á eftir tím- anum miðað við lönd eins og Noreg. Um áratuga skeið hef- ur Háskóli íslands verið oln- bogabarn Alþingis, að ekki sé minnzt á Landsbókasafnið. Lög- in um Þjóðleikhúsið mun vera algert heimsmet í fávitaskap ábyrgra aðila. Þannig mætti lengi halda áfram að telja ömurleg dæmi um vítavert hirðuleysi stofnunar sem á eðli sínu samkvæmt að fylgjast með og hafa áhrif á þróun þjóð- félagsins. í nútíma þjóðfélagi er lögjaf- arstarfið orðið svo flókið, að þörf er sérfræðinga á flestum sviðum til ieiðbeiningar þing- mönnum. Það hefur færzt í vöxt síðustu árin, að sérfræð- ingar séu til kvaddir, þegar semja þarf lagabálka um mikilsverð efni, en þar er bara sá stóri hængur á,að ríkisstjórn- in ein hefur heimild til að leita til sérfræðinga. Þingmenn eða þingnefndir hafa ekki slíka heimild, og sjá allir hvað af því leiðir, enda hefur það vilj- að brenna við, að stjórnarflokk- arnir notuðu sérfræðinga til acj styðja sig í ýmsum lítt hugsuð^ um málum, en stjórnarand- staðan eða einstakar þingnefnd- ir ekki átt kost á sérfræðilegri aðstoð til að kanna, hvernig um málin sé búið. Af þessu leiðir, að frumvörp, sem sér- fræðingar ríkisstjórnarinnar hafa fjallað um, fara gegnum þingið umræðulítið, afþví þing^ menn skortir öll skilyrði til ad taka raunhæfa afstöðu til þeirra. Gott dæmi um þetta erii lögin um Rannsóknarráð rík- isins, sem hafa mjög alvarlega vankanta vegna þess að ekki var leitað til allra þeirra sér- fræðinga, sem þar eiga réttilega hlut að máli. Átakanlegasta dæmið er þó kannski sjón- varpsmálið margrædda og með- ferð þingsins á því. Þar fékk ríkisstjórnin sérfræðilegt álit, sem reyndist bæði rangt og mjög villandi, með þeim afleið- ingum að sjónvarpsstöðin á Keflavíkurflugvelli var stækk- 16 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.