Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1965, Page 37

Fálkinn - 08.06.1965, Page 37
Toni gefur fjölbreytileika Sama stúlkan. Sama permanentið. Ólíkt útlit TONI lífgar og gerir hár yðar meðfærilegt. Gerir yður kleift að leggja og greiða hár yðar hvernig sem þér óskið. Heldur lagningunni. Sama permanentið heldur hvaða lagningu sem er. Hér eru þrjár ólikar hargreiðslur, sem eru grundvallaðar á einu Toni. En þér getið greitt yður á tugi mismunandi vegu. , . r^ír7.^ð?,ins Toni hefur tilbúinn bindivökva. Engin lynrhom. Tilbuið td notkunar í handhægri plastik íiösku. Vefjið aðems hanð upp á spólumar og þrýstið bindivökvanum í hvem lo*f- þer munið öðlast fullkomið Toni. Engar krullur. Engir stiíir broddar. Tom gerir hár yðar mjúkt og skínandi. Auðveldar hargreiðsluna. Reynið Toni. TRÚLOFUNAR H R I N G A R ULRICH FALKNER guusm LÆKJARGÖTU 2 2. HÆD • 7 dagar í mai Framh. af bls. 33. hringja til þín ef hann segir eitt- hvað merkilegt." Hann stóð upp frá borðinu. „Meðal annarra orða, hvað er að frétta af Doris og Liz?“ „Doris hringdi í gærkvöld frá Lousville. Það er búist við að Liz eigi barnið eftir einn eða tvo daga. Áreiðanlega í þessari viku.“ Einkadóttir Lymanshjón- anna hafði gifzt viku áður en faðir hennar var settur inn í for- setaembsettið. „Fæðing í fjölskyldunni kemur okkur vel eins og nú stendur á," sagði Clark. „Það er rétt af þér að vera ekki að sóa fyrsta barna- barninu á viku þegar skoð- anakannanir eru þér hagstæðar." „Liz er snjall stjórnmálamað- ur,“ sagði Lyman hlýlega. „Hún gat ekki valið betri tíma fyrir pabba sinn.“ „Skilaðu kærri kveðju frá mér til þeirra beggja,“ sagði Clark um leið og hann fór. Lyman kom sér fyrir við stóra : skrifborðið í skrifstofunni, og andartaki síðar skauzt Paul Gir- ard inn úr klefa sínum fyrir enda skrifstofunnar. Hann dró hvítt spjald upp úr vasa sínum og renndi þvi í umgerð á borði Lymans. „Þetta er röðin í dag herra forseti. Fyrstur er Cliff Lindsay. Hans timi er tuttugu mínútur fyrir níu,. eða fyrir hálfri ann- arri mínútu." „Gerðu mér þann greiða, Paul, ; að tefja hann í nokkrar minút- j nr,“ sagði Lyman. „Ég þarf að i síma.“ Um leið og Girard fór út ýtti hann á takka á innanhúss- símanum. „Esther? Viltu gera svo vel og gefa mér samband við varaforsetann." Rautt Ijós kviknaði við sím- ann og hann studdi á annan takka. „Vinee? Jamm, ég sá það líka. Hvernig væri að koma hingað í hádegismat? Þú getur komið mér í gott skap. Ég þarf líka að tala við þig um ferða- lagið. Er hálfeitt í lagi? Gott. Þakka þér fyrir, Vince.“ Cliff Lindsay, forseti AFL-CIO verkalýðssambandsins, hneigði sig lítið eitt fyrir forsetanum um leið og Girard visaði honum inn. „Þér gerðuð boð eftir mér, herra forseti," sagði hann um leið og Lyman benti honum að setjast. „Já, það gerði ég, Cliff.' Ég botna hreint ekkert í þessum verkföllum í eldflaugaverksmiðj- unum á Kyrrahafsströndinni. V erkamennirnir hafa ágætt kaup. Ég fæ ekki séð að um neitt raunverulegt deiluefni sé að ræða. Mig langar til að þér útskýrið fyrir mér hvers vegna þessir merin pru í verkfalli." „Það er ekkert leyndarmál, herra forseti, þetta er deila um réttindi milli verkalýðsfélaga innbyrðis. Plötusmiðunum og al- úmíniðnaðarmönnum lendir sam- an, flutningaverkamenn taka af- stöðu með plötusmiðum og allt i einu er búið að setja verk- fallsvörð. Kröfurnar eru kannski ekki þær réttmætustu sem séö hafa dagsins ljós, en verkalýðs málaráðherrann yðar hefur samt enga ástæðu til að æpa að verka- iýðshreyfingin sýni ábyrgðar leysi. Hann veit fjandans nógu vel að það er ekki ráðið til að fá menn til að hefja vinnu aftur." „Ráðherrann gaf þessa yfir- Framh. á bls. 42. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.