Fálkinn


Fálkinn - 29.11.1965, Side 7

Fálkinn - 29.11.1965, Side 7
Lyftan stöðvaðist. Dyrnar opnuðust og John fór út fyrstur. Hann beið alveg hjá lyftudyrunum. „Allt í lagi,“ sagði Grady. . „Við skiljum hvað þú ert að fara. Þú veizt ekki, á hvaða hæð það er, og þú veizt ekki að þetta er íbúð númer 5-B. Þessa , Ieið, gjörið svo vel hr. Hayward.“ Einkennisklæddur lögregluþjónn stóð við dyr íbúðarinn- . ar og hleypti þeim inn. Fyrst komu þeir inn í litla forstofu og gengu síðan tvö . ’þrep niður 1 dagstofuna. John fannst eins og hann kannaðist við sig. Tröppur niður í stofu höfðp verið í tízku fyrir nokkrum árum. John hafði komið inn í margar íbúðir mjög líkar þessari. „Finnst þér þú þekkja þig hér?“ spurði Grady. „Aldrei komið hér fyrr,“ svaraði John. Á miðju stofugólfinu voru útlínur mannslíkama teiknaðar með krít. „Já,“ sagði Grady. „Þarna lá hún. Sagði hún eitt- hvað, þegar hún sá að þú ætlaðir að drepa hana, hr. Hay- ward? Reyndi hún kannski að hrópa á hjálp?“ ' John horfði á krítarútlínurnar á gólfinu. Hann mundi eftir granna líkamanum, sem hann hafði séð í líkhúsinu. i,Eða vissi hún það ekki nógu snemma?“ spurði Grady. „Kannski hélt hún, að þú ætlaðir að faðma hana að sér? Var það þannig?“ Það gat hafa verið þannig, hugsaði John með sér. Stúlka sem hleypur á móti elskhuga sínum, og heldur að útréttar hendur hans séu ætlaðar til ástaratlota. „Þetta þýðir ekkert, Grady. Það var ekki ég sem drap hana.“ „Komdu og sjáðu, hr. Hayward,“ sagði Grady. Hann gekk þvert yfir stofuna, að borði, sem stóð þar. Á því voru liljur i vasa og mynd í ramma. Grady benti á myndina — stækkuð augnabliksmynd' af John í tennisklæðum. Augun voru sam- ankipruð, og gáfu til kynna, að sólin skein. Bakgrunnurinn var mjög óljós. Þeir horfðu á hann — og þar sem hann vissi, að þeir voru að horfa á hann, reyndi hann að láta ekki sjást hversu ósegj- anlega ruglaður hann var. „Jæja,“ sagði Grady loksins, „er þetta ekki mynd af þér?“ John var ekki viss um að hann gæti talað. Hann var ekki viss um neitt. Spurningar hrópuðu á hann. Hann hristj hóf- uðið. Hann gat ekki neitað, að þetta var mynd af John tley- ward. En hvar var liún tekin — hvenær — og hver hafði tek- ið hana? „Getur þú skýrt þetta?“ spurði Grady. „Þú sást aldrei stúlkuna. Þú hefur aldrei komið i þessa íbúð fyrr. Samt hafði hún stillt upp mynd af þér hérna á borðinu, svo hún gæti . . .“ Hann hætti. John var enn að hrista hausinn. Hann heyrði varla í Grady fyrir spurningunni sm ásótti hann. Ertu viss? hrópaði eitthvað innra með honum. Hefur þú aldiei komið hér áður? Samt fannst þér þú kannast við þig, þegar þú stóðst FÁLKINN 1

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.