Fálkinn - 29.11.1965, Page 16
.
$5
J. - • • ' • , '
og eign þess. Forseti hins bandaríska
hluta Loftleiða er íslenzkur maður,
einkar viðfelldinn og fyrirmannlegur í
allri framkomu, Sigurður Helgason að
nafni.
Sigurður skýrði mér frá því, að Loft-
leiðir hefðu fyrst hafið flug til Banda-
ríkjanna óreglulega árið 1947, aðallega
leiguflug, en reglubundið flug hefði
hafizt í maí 1952, ein ferð vikulega.
Nú eru hins vegar tvær ferðir á dag
frá Bandaríkjunum^ yfir sumarmánuð-
ina, og að auki 6—8 ferðir vikulega í
leiguflugi, sem er vaxandi þáttur í starf-
semi félagsins. Mætti því segja, að Loft-
leiðir flyttu að sumrinu um 800 manns
daglega til og frá Bandaríkjunum, og
það er ekki svo lítið. Sigurður gat þess
í sambandi við leiguflugið, að á þessu
ári væru ráðgerðar um 200 ferðir yfir
Atlantshaf og færðist sífellt í aukana.
Þegar ég spurði hann. við hvaða aðila
Loftleiðir kepptu aðallega, svaraði
hann:
— Við Loftleiðamenn erum þeirrar
skoðunar, að við keppum fremur við
skipafélög en fhigfélög. Við teljum okk-
18 FÁLKINN
ur hafa gert fjölda fólks kleift að fljúga,
sem öðrum kosti hefði annað hvort orð-
ið að ferðast með skipum og eyða þann-
ig dýrmætum tíma sínum eða hrein-
lega sitja heima. Ferðalög hafa aldrei
verið mönnum nauðsynlegri en nú, og
allir eru að keppa við tímann. Hins
vegar skiptir alþýðu manna litlu, hvort
það er sex tímum eða tólf-fjórtán að
komast yfir Atlantshaf. Þess njótum
við ásamt þakklæti þess fólks, sem
sakir fátæktar á þess ekki kost að veita
sér dýr ferðalög. Að því leyti eru Loft-
leiðir flugfélag alþýðu manna, og það
er ánægjulegt að geta veitt því sóma-
samlega fyrirgreiðslu.
Það er miklu meira fyrirtæki en
menn grunar að halda uppi flugferðum
nú til dags. Það krefst mikillar skipu-
lagningar og hagsýni. Fólk, sem sezt
upp í flugvél og kemst innan fárra
stunda í aðra heimsálfu sér fátt af því
starfi sem að baki býr. Við hér í New
York erum nú orðin hundrað talsins,
sem störfum fyrir Loftleiðir Það gef-
ur nokkra hugmynd um, að starfræksla
flúgfélags sé ekki fyrirhafnarlaus,
3
Afgreiðsla Loftleiða á John F. Kennedy i
flugvellinum í New York.
:í
Sigurður Helgason,
forstjóri Loftleiða í New York.