Fálkinn


Fálkinn - 29.11.1965, Blaðsíða 26

Fálkinn - 29.11.1965, Blaðsíða 26
• Litla sagan Framh. af bls. 21. • Pónik Framh. af bls. 5. SÆVAR: Ja, ég hef, nú aldrei komizt lengra en að skrifa á handlegginn á þeirh. ÚLFAR: Hljómsveitarstjór- inn verður að hafa forréttindi. Hafið þið lært á hljóðfæri hjá tónlistarkennurum? MAGNÚS: Ég gekk í píanó- tíma, samfleytt í heilan klukku- tíma, en þá gafst ég upp. ÚLFAR: Það á nú að heita, að ég hafi lært á harmonikku í einkatímum um það bil þrjú ár, svo að ég ætti að vera vel liðtækur í gömlu dönsunum. SÆVAR: Ég var í píanótím- um í þrjár vikur ... Það er al- gert brjálæði. Hver er mesta kvennagullið í hljómsveitinni? ÚLFAR: Það er Sævar. Döm- urnar fá næstum því aðsvif, þegar hann sendir þeim sitt töfrandi augnaráð. SÆVAR: Þetta er fráleitt. Það er enginn vafi á því, að Einar á mestan sjénsinn af okkur. MAGNÚS: Já, Einar er mesta kvennagullið. Þær snarfalla fyrir ómótstæðilegum persónu- töfrum hans, að maður tali nú ekki'um spékoppana. Hafið þið aldrei þurft á lög- regluvernd að halda vegna óláta á dansstað? SÆVAR: Það var eitt sinn, er við vorum að leika 17. júní í Keflavík, að maður um fimm- tugt, vel við skál, æðir upp á hljómsveitarpallinn og sló til Magga, en honum hefur ekki þótt hann árennilegur, því hann sneri sér strax að mér all ófrýnilegur ásýndum. Mér leizt nú ekki á blikuna og hörfaði undan, en í því leggur Einar frá sér hljóðnemann og hjólaði í kallinn. Ekki varð þó neitt um meiri háttar slagsmál, því brátt kom lögreglan og dró kauða burtu. Bragðið þið áfengi á meðan þið spilið? MAGNÚS: Við höfum haft það fyrir reglu að gera það ekki. ÚLFAR: Við erum algerir bindindismenn og brögðum ekki nema messuvín við hátíð- legt tækifæri. SÆVAR: Ég fæ kökk í háls- Og nú varð hann ennþá skrítnari í framan. — Hjálpi mér sá sem vanur er, þetta er alveg furðulegt. .. — Nú er eitt skot í byss- unni, sagði Olfert litli, og á morgun ætla ég að skjóta stóra kú. í því gaf faðir hans honum vænan löðrung. Þú getur bölvað þér upp á að þú færð ekki að skjóta kú á morgun, sagði faðir hans reið- ur. Ertu vitlaus drengur að vera að fikta með svona stór- hættulegt leikfang. Ég tek byssuna af þér, og farðu strax í rúmið. Olfert fór að hátta nauðug- ur. Snemma næsta morgun fór hann út í skóginn til að sjá hvort marzmennirnir væru farnir, og þeir voru farnir. Allan fyrripartinn var hann að leika sér, en svo fór hann heim í matinn. Dauðageisla- byssan lá á eldhúsborðinu. Hann hleypti af ofan í vask- inn nokkrum sinnum, en hún var tóm. Þá henti hann henni frá sér og náði sér í einhvern mat. Þegar hann var búinn að borða fór hann inn í stofu. Þar sat faðir hans og reykti stóran vindil með fæturna uppi á sófaborði, sem var bannað, og með stórt púnsglas fyrir framan sig, sem var líka bann- að. Og Olfert spurði: — Hvar er mamma? iílliiw iiV<. iie IJT inn. Þetta er svo hjartnæmt. Þá ætla ég að lokum að gefa hljómsveitarstjóranum orðið. MAGNÚS: Það sem við höf- um sett okkur að takmarki er að PÓNIK og EINAR gerist at- vinnuhljómsveit á næsta ári. Þá loks gefst okkur nægur tími til að vinna úr okkar mörgu hugmyndum. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka okkar pennaglöðu aðdáendum fyrir að stuðla að því, að PÓNIK varð svona ofarlega á listanum og við munum gera okkar bezta til að valda þeim ekki vonbrigðum. 26 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.