Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 18

Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 18
18 3. október 2009 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR F orseti Íslands sagði við setningu Alþingis á fimmtudag að sóknarskeið fyrir Ísland væri raunhæft haustið 2010 og nú þyrfti að hætta flokkadráttum. Hvernig á að eyða flokkadráttum í þjóðfélagi sem byggir á stjórnmálaflokk- um og mismunandi lífsviðhorfum fólks? Af hverju eigum við að bíða til haustsins 2010 með sóknarskeið? Fjárlagafrumvarpið boðar niðurskurð á útgjöldum og skattahækkanir sem endurspeglar stefnu stjórnvalda. Forsvarsmenn samtaka í atvinnulífinu og fjöl- mörg fyrirtæki og einstaklingar eru langeyg eftir vonarneista og trú á að ástandið sé að lagast. Það er ekki hægt að bíða haustsins 2010 með að spila sóknarleik. Fjárlagafrumvarp næsta árs lofar ekki góðu. Það versta við núverandi aðstæður er að hækka verulega skatta á fyrirtæki og einstaklinga. Það dýpkar kreppuna. Tekjuaukning þjóðarinnar má ekki byggja á því að taka mikla fjármuni af fyrirtækjum og einstaklingum til að auka tekjur ríkissjóðs. Þá er verið að færa fjármuni úr vasa almennings og athafnafólks í vasa ríkissjóðs. Það mun ekki auðvelda sóknarleikinn og atvinnuuppbyggingu. Fjöldi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og einstaklinga er með frábærar hugmyndir um atvinnuuppbyggingu og tekjuöflun með útflutningi á vöru og þjónustu. Mörg þessara fyrirtækja hafa tengst rannsóknum innan háskólanna og það er oft vanmetið hve stórt hlutverk háskólarnir geta leikið í nýsköpun og þróunarstarfi. Þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki og starfsfólk þeirra eru mikilvægur hluti sóknarleiksins enda eru vel yfir 90 prósent fyrirtækja í land- inu með færri en 50 starfsmenn. Þarna eru þúsundir starfsmanna, yfirleitt vel menntað fólk sem er að bera ávöxt vegna góðrar mennt- unar og dugnaðar. Við eigum nokkur fyrirtæki í sömu sporum og Marel og Össur fyrir 10 til 15 árum og þurfum að hlúa að þeim. Það eru einstaklingar og lítil og meðalstór fyrirtæki sem þurfa að vera drifkraftur íslensks atvinnulífs um þessar mundir. Atvinnu- uppbygging verður ekki til við ríkisstjórnarborðið eða í ríkisbönk- unum, en ríkisvaldið, bankarnir og lífeyrissjóðirnir þurfa að veita stuðning og vinna með í endurreisninni. Lagning vega og jarðganga og bygging háskólasjúkrahúss eru áhugaverð verkefni, en búa ekki til nýjar útflutningstekjur og nýtt sóknarskeið. Þjóðin þarf atvinnu- uppbyggingu sem byggir á útflutningstekjum, öflun gjaldeyris, til að koma okkur út úr vandanum. Við þurfum sóknaráætlun strax, en ekki starf sóknarnefnda sem skila skýrslum síðla árs 2010! Sókn- arnefndir gegna mikilvægu hlutverki í kirkjulegu starfi, en við þurfum annars konar vinnulag við endurreisn atvinnulífsins. Hvar eru hugmyndir um atvinnuuppbyggingu? Þjóðin þarf nýtt sóknarskeið strax ÞORKELL SIGURLAUGSSON SKRIFAR Hvað þýðir afsögn Ögmundar Jónasson-ar? Sjálfur segist hann hafa vikið af ráðherra- bekknum til þess að verða ekki viðskila við samviskuna. Er það rétt? Á sama tíma heitir hann full- um stuðningi við ríkisstjórnina. Forystumenn hennar segja hins vegar að hún fari frá fái hún ekki meirihluta Alþingis til að rjúfa samkomulagið um lyktir Icesave- málsins frá því í ágúst. Fari svo að Ögmundur Jónas- son og fylgismenn hans í þing- flokki VG neiti að rjúfa Icesave- samkomulag Alþingis nema í sátt við alla þá sem að því stóðu segir hann satt um vegferðina með sam- viskunni. Greiði hann fyrir fram- gangi nýju Icesave-niðurstöðunnar með atkvæði sínu eða hjásetu segir hann ósatt. Þá er afsögnin í besta lagi friðþæging gagnvart samn- ingsrofi. Enginn vafi er á að Ögmundur Jónasson styrkti pólitíska stöðu sína með því að hafa forystu um breiða sam- stöðu á Alþingi um Icesave - málið. Svarið við þeirri spurningu hvort afsögnin efli hann sem stað- fastan stjórnmálamann fer alfarið eftir því hvaða afstöðu hann tekur þegar málið kemur til kasta þings- ins á ný. Það er einfaldlega óskýrt enn sem komið er. Veikti forsætisráðherra stöðu sína með því að þvinga Ögmund Jónasson til afsagnar? Krafan um einingu í ríkisstjórninni var rétt- mæt. Hún kom hins vegar of seint fram. Ríkisstjórnin lenti í hafvill- um með málið þegar á frumstigi. Annars vegar hefði forsætisráð- herra í vor sem leið átt að taka málið upp við forsætisráðherra Bretlands og Hollands. Hins vegar hefði sú eðlilega krafa þá þegar átt að liggja ljós fyrir að einingar væri krafist í ríkisstjórninni. Icesave-málinu þurfti að ljúka með samningum. Vinnubrögðin sem nú hafa leitt til þess að ríkis- stjórnin þarf að ganga á bak orða sinna bæði gagnvart viðsemjend- unum og Alþingi munu á hinn bóg- inn hafa margvíslegar afleiðing- ar. Eftir þessa atburði er stjórnin líkari skipi bundnu við bryggju en fleyi á siglingu. Um réttmæti þess að semja á ný er ekki unnt að dæma fyrr en stað- reyndir málsins eru opinberaðar. Glíman við samviskuna Augljósasta afleiðingin af Icesave-óförunum er sú að stjórnarflokkarn-ir munu eiga mun erfið- ara með að ná saman um mark- vissar ráðstafanir í mikilvægum málum. Það helgast af því að örð- ugra verður fyrir VG að víkja frá grundvallarstefnu sinni eftir að andófshópurinn í Icesave-málinu hefur verið knúinn til að breyta samkomulaginu sem gert var á Alþingi. Þegar fyrir afsögn Ögmundar Jónassonar var komið upp á yfir- borðið að VG ætlaði að bregða fæti fyrir allar framkvæmdir í orkunýtingarmálum sem kostur væri á, jafnvel með ólögmætum stjórnvaldsákvörðunum. Samfylk- ingin hefur þegar þurft að kyngja tafaleikjum á þessu sviði og mun þurfa að ganga lengra eftir því sem líður á stjórnarsamstarf- ið. Það væri í góðu lagi ef þessar framkvæmdir væru ekki einn af hornsteinum endurreisnarinnar. Við afsögn sína tók Ögmundur Jónasson tvennt fram sem lýtur að grundvelli stjórnarstefnunn- ar: Segja yrði upp samkomulag- inu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og hverfa yrði frá stefnunni í rík- isfjármálum á miðju næsta ári. Ólíklegt er að Ögmundur Jón- asson hafi styrk til þess að knýja fram slíka kúvendingu á stjórnar- stefnunni með formlegum hætti. Hitt er sennilegt að honum muni takast að hafa forystu fyrir því að í samningum stjórnarflokkanna um framgang efnahags- og ríkis- fjármálastefnunnar verði veittur svo mikill afsláttur að þau mark- mið náist ekki sem að er stefnt. Pólitískar undirstöður endurreisn- arstarfsins eru því mun veikari nú en við stjórnarmyndunina. Málefnalegur afsláttur Við afsögnina hert i Ögmundur Jónasson mjög á þeirri einangrunar-hyggju sem lengst af var einungis borin uppi af sósíalistum lengst til vinstri. Þessir atburðir munu því dýpka gjána milli stjórn- arflokkanna varðandi umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Aðildarspurningin er framtíð- armál fremur en augnabliksmál. Hún hefur þó að einu leyti bein tengsl við endurreisn efnahagslífs- ins. Stöðugleiki á fjármálamarkaði með frjálsum og haftalausum við- skiptum er borin von með svo lítinn gjaldmiðil sem krónan er. Stólparót efnahagshrunsins ligg- ur í ofrisi og síðar falli gjaldmiðils- ins sem var undanfari bankahruns- ins. Úrslitin í endurreisnarglímunni ráðast af því hvort fólkið og fyrir- tækin fá samkeppnishæfa mynt. Enginn stjórnmálaflokkur hefur enn sem komið er kynnt trúverð- uga stefnu í peningamálum með íslenskri krónu. Eini sjáanlegi möguleikinn í þeim efnum er evran. Það aukna málefnavægi sem VG fær i kjölfar síðustu atburða veikir baráttuna fyrir samkeppnishæfum gjaldmiðli. Þá vaknar spurningin: Hvar er miðjan í íslenskri pólitík? Er ekki meirihluti á miðjunni fyrir nauð- synlegri aðhaldspólitík í ríkisfjár- málum, brýnum orkunýtingar- framkvæmdum, mikilvægi þess að fá samkeppnishæfa mynt og gildi þess að Ísland eigi aðild að öflug- ustu samtökum Evrópuþjóða? Ríkisstjórnin var beinlínis mynd- uð til að skerpa andstæður í pólit- íkinni. Hún hefur öruggan þing- meirihluta til að sitja áfram í þeim tilgangi. Atburðir liðinnar viku gætu hins vegar leitt til þess að á næstu misserum verði það sjónar- mið ríkara í grasrót samfélagsins að miðjunni í íslenskum stjórnmál- um beri að taka höndum saman til að tryggja samstöðu og stjórnfestu við endurreisnina. Hvar er miðjan? ÞORSTEINN PÁLSSON Þarna eru þúsundir starfsmanna, yfirleitt vel mennt- að fólk sem er að bera ávöxt vegna góðrar menntunar og dugnaðar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.