Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 36

Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 36
36 3. október 2009 LAUGARDAGUR S tærstur hluti þeirra Pólverja sem búsett- ir eru hér á landi skoð- ar íslenska fjölmiðla reglulega. Meirihlutinn notar íslenska fjölmiðla daglega en fimmtungur tvisvar til þrisvar í viku. Þetta er niðurstaða rannsóknar Helgu Ólafs í MA- námi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Notkunin er meiri og almennari en Helga hafði búist við áður en hún tók til við úrvinnslu könnunar sem hún lagði fyrir ríf- lega 600 pólska innflytjendur. Áhuginn kviknaði í Alþjóðahúsinu Helga starfaði um tíma í Alþjóða- húsinu og fékk þannig áhuga á fjöl- miðlanotkun innflytjenda. Hún afréð að beina sjónum sínum ein- ungis að Pólverjum vegna þess að þeir eru langstærsti hluti innflytj- enda; um 45 prósent þeirra. Í tölum þýðir það að um ellefu þúsund Pól- verjar búa hér á landi. „Það eru tengsl á milli íslenskukunnáttu Pól- verja og notkunar á íslenskum fjöl- miðlum; hún verður meiri eftir því sem að íslenskukunnáttan eykst. Segja má að kunnátta í íslensku sé lykillinn að íslenskum fjölmiðl- um enda hafa þeir að litlu leyti birt efni á öðrum tungumálum.“ Undantekningin hér er fréttir dv.is á pólsku sem voru vinsælar á meðal Pólverja en þeirri þjónustu var hætt nýverið í sparnaðarskyni. Einnig gaf Alþjóðahúsið út blaðið Fólk á pólsku, sem er lesið af meiri- hluta þátttakenda. „Svo hafa verið birtar auglýsingar í fjölmiðlum á erlendum tungumálum og þær hitta greinilega markhópinn fyrir miðað við mínar niðurstöður.“ Þess má geta að tæp þrjátíu pró- sent þátttakenda telja íslensku- kunnáttu sína vera góða eða sæmi- lega, tæp fimmtíu prósent telja hana vera slæma og 22 prósent segjast ekki skilja íslensku. Mikill meirihluti vill bæta kunnáttu sína í íslensku. Dagblaðanotkun er mikil Helga spurði þá sem sögðust skoða dagblöð hvað þeir skoðuðu og kom í ljós að yfir sextíu prósent skoð- uðu auglýsingar. Þar fyrir utan voru fréttir af gengi, veðurfrétt- ir, fyrirsagnir og myndir á meðal vinsælustu liða. Fréttablaðið hafði mikla yfirburði í dagblaðalestri en næst því kom fríblaðið 24 stundir sem var til þegar könnunin var framkvæmd. „Það kom mér á óvart hve mikil dagblaðanotkunin var, en erlendis hefur mest verið fylgst með sjónvarpsnotkun inn- flytjenda. Annars er samanburður erfiður því rannsóknir á fjölmiðla- notkun innflytjenda eru skammt á veg komnar.“ Lifa í þverþjóðlegu rými Helga bendir á að Pólverjarnir fylgist flestir einnig með pólsk- um fréttamiðlum og lifi í því sem í fræðunum er kallað þverþjóð- legt rými. Yfir 94 prósent þátttak- enda eru með aðgang að netinu og þar eru hæg heimatökin að fylgj- ast með fréttum a pólsku. Ríflega sextíu prósent eru með aðgang að pólskum sjónvarpsstöðvum. Helga segir eina af ályktun- unum sem draga megi af niður- stöðunni þá að mikilvægt sé fyrir íslenska fjölmiðla að endurspegla það fjölmenningarlega samfélag sem sé orðið til á Íslandi, en það geri þeir ekki eins og sakir standi. „Það hefur gerst til dæmis í Dan- mörku að sumir hópar innflytj- enda eru hættir að nota danska fjölmiðla vegna þess að umfjöll- unin um þá er svo neikvæð í fjölmiðlunum.“ Helga segir að líklega geri forystumenn fjölmiðla sér ekki grein fyrir því hversu fjölmiðla- notkun innflytjenda er mikil, í íslenskum fjölmiðlum í dag sé að minnsta kosti lítið gert til að höfða til þessa hóps. „Það er til að mynda engin fjöl- menningarleg dagskrá og engin skoðanaskipti en fjölmiðlar á Norðurlöndum hafa brugðist við breyttum samfélögum með útgáfu dagblaða, sjónvarpsþátta og fleira. Vissulega eiga þeir lengri sögu um innflytjendur við. Reyndar er fjölmenningarlega samfélagið á Íslandi ungt og eflaust gera blaða- og fréttamenn ekki sér grein fyrir hve samfélagið er fjölbreytt.“ Tengsl vantar við innflytjendur Helga segir að ef miðlarnir ættu að endurspegla þjóðfélagið þyrftu þeir að vera í betri tengslum við innflytjendur. „Ég hef til dæmis orðið vör við það í gegnum starf mitt í Alþjóðahúsi að blaða- og fréttamenn vantar tengsl við inn- flytjendurna sem búa í landinu. Þeir vita ekki hvar og hvernig hægt er að ná í þá. Ein leiðin til þess að brúa þetta bil er að fólk er erlendum uppruna starfi á miðlun- um og þannig fást betri tengsl við fólkið í landinu og möguleikar fjöl- miðla aukast með að endurspegla fjölmenningarlegt samfélag.“ Helga bendir á að hugmynda- fræðin sem ráði ríkjum í dag bygg- ist á samþættingu eða gagnkvæmri aðlögun. Samkvæmt henni sé reynt að koma á móts við þarfir innflytj- enda til að gera þeim kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Einnig sé mikilvægt að þeir missi ekki tengsl við sína menningu og tungumál, heldur eiga þessir þætt- ir að fá að njóta sín í samfélagi sem einkennist af fjölmenningu. Samþætting virki í báðar áttir að því leyti að samfélög þurfi að sjá til þess að innflytjendur hafi jafn- an rétt á við aðra íbúa samfélags- ins, og að gera þeim kleift að hafa þau tækifæri. „Það er ekki mótsögn að Pólverjar fylgist með pólskum sjónvarpsfréttum og fylgist með pólskum fréttum í gegnum netið. Það væri aftur á móti neikvætt ef þeir myndu sniðganga íslenska fjölmiðla,“ segir hún. „En ef við lítum á íslenska fjöl- miðla þá er ekki hægt að segja að þeir endurspegli fjölmenningarlegt samfélag. Það er til að mynda eng- inn að því er ég best veit sem vinn- ur á fjölmiðlum sem er af erlendum uppruna og við sjáum ekki marga viðmælendur af erlendum uppruna í þjóðmálaumræðunni og erum því ekki vön að heyra útlendinga tala íslensku.“ Pólskir innflytjendur fylgjast vel með íslenskum fjölmiðlum Yfir sjötíu prósent Pólverja skoða íslenska fjölmiðla á degi hverjum. Þetta er meginniðurstaða nýrrar rannsóknar Helgu Ólafs í námi í blaða- og fréttamennsku í Háskóla Íslands. Sigríður Björg Tómasdóttir rýndi í rannsóknina og ræddi við Helgu, sem sagði henni meðal annars frá því að flestir Pólverjar skoðuðu dagblöð í hverri viku og að Fréttablaðið væri vinsælasta dagblaðið. HELGA ÓLAFS Ætlar að halda áfram rannsóknum sínum á notkun innflytjenda á fjölmiðlum. Notkunin er meiri en hún hafði búist við fyrir fram. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 649 tóku þátt í könnun Helgu Ólafs og endurspeglar hópurinn búsetu og aldur Pólverja hér á landi, Fleiri konur tóku hins vegar þátt í könnuninni hlutfallslega en búa hér á landi. Til að fá þátttakendur í könnunina hafði Helga samband við fyrirtæki um land allt þar sem margir Pólverjar starfa og fékk leyfi til að leggja könnunina, sem var á pólsku, fyrir þá. Einnig útbjó hún rafræna könnun. Þegar fjölmiðlanotkunin er greind nánar kemur í ljós að meðal mest lesnu liða í dagblöðum eru gengis- fréttir með 72 prósenta lestur, auglýs- ingar, þar með talið smáauglýsingar, með 66 prósenta lestur, veðurfregnir með 58 prósenta lestur og myndir og fyrirsagnir með 55 prósenta lestur. Í sjónvarpi voru fréttir vinsælasta efnið með sjötíu prósenta áhorf, þá afþreying með tæp fimmtíu prósenta áhorf og loks íþróttir með 44 prósenta áhorf. Tónlist var langvinsælasta efni útvarpsstöðvanna. Helga bar notkun þátttakenda saman við notkun þeirra á pólskum fjölmiðlum og er meginniðurstaðan þar að lestur á fréttum í blöð- um er meiri í pólskum blöðum en íslenskum. 85 prósent þeirra sem að lesa pólsk blöð lesa til dæmis innlendar fréttir en einungis 41 prósent þeirra sem lesa íslensku blöðin lesa í þeim innlendu fréttirnar. Slúður og menningarfréttir eru líka mun meira lesnar í pólskum miðlum svo dæmi séu tekin. Notkun á sjónvarpi var líkari að uppbyggingu í íslenskum og pólskum miðlum. Fréttir eru vinsælasta efnið og svo afþreying. Fróðleikur er hins vegar vinsæll meðal innflytjenda í pólskum sjónvarpsstöðvum en ekki íslenskum og hefur tungumálakunnátta þar eflaust sitt að segja. Dagblöðum 68% Sjónvarpi 35% Útvarpi 46% Internetinu 54% Hvaða íslensku fjölmiðl- um fylgist þú með? Hvaða dagblöð verða fyrir valinu? Fr ét ta bl að ið 6 9% 24 s tu nd ir 42 % M or gu nb la ði ð 17 % D V 8% Vi sk ip ta bl að ið 2 % 70 60 50 40 30 20 10 0% Notar þú íslenska fjölmiðla? 55 % 23 % 12 % 9% Daglega eða nær daglega Tvisvar til þrisvar í viku Nokkrum sinnum í mánuði Sjaldnar LESA AUGLÝSINGAR OG FYRIRSAGNIRÞað hefur gerst til dæmis í Dan- mörku að sumir hópar innflytj- enda eru hættir að nota danska fjölmiðla vegna þess að umfjöll- unin um þá er svo neikvæð í fjölmiðlunum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.