Draupnir - 01.05.1906, Page 14
530
DRAUPNÍB
dorf í Þrándheimi, sem tók vel undir málið,
stefndi öllu andlega ráðinu saman og fékk
staðfestingu þess upp á biskupsvalið 15.
nóvember 1521, sömuleiðis lét hann Ögmund
sverja Kristjáni konungi II. hollustueið og
])að bæði munnlega og skriflega, og tilkynnti
honum jafnframt samþykki sitt fullkomið.
Þegar málinu var svona komið, var ekki
annað eftir en að fá vígsluna. Erkibiskup-
inn lét sér vera mjög ant um að Ityta fyrir
henni, en þóttist ekki getað framið hana í
Þrándheimi nema tveir af undirbiskupum
sínum væru við athöfnina staddir, og þar
sem þeir ættu mjög eríitt með að koma, þar
sem veturinn væri í nánd, þá urðu þeir á
það sáttir, að Ögmundur skyldi fara til Björg-
vinar, og erkihiskup gefa biskupi Andór,
Höskuldi biskupi í Stafangri og Magnúsi
biskupi á Hamri umboð sitt til að vígja liann,
og liann lagði ríkt á við þá að gera það fyrir
hinn 10. febrúar, eða áður en fastan byrjaði.
Ögmundur Pálsson lét ekki standa á sér
en ferðaðist undir eins til Björgvinar og alt
var reiðubúið, því með komandi vori ætlaði
hann að leggja á stað út til íslands að taka
við ltalli sínu, og var nú í sjöunda himni.
Það leið að hinum tilsetta vígsludegi og eng-
inn skýhnoðri var enn þá sjáanlegur á ham-
ingiuhimni hans. Þannig leið tíminn og liann