Draupnir - 01.05.1906, Page 63
DRAUPHffi.
579
ert hygginn maður og framsýnn, hafir ekki
getað komist að innilialdi þess? Þá fyrir
niunn þeirra sem rituðu undir það«.
»Það er dagsanna, herra biskup, ég réði
í innihaldið, þó þeim sem lásu hréfið hæri
ekki sem bezt saman, þá liefi ég samt getið
mér til liins rétta. Aðal-innihald þess mun
hafa verið á þá leið, að það væri ljóst af
gömlum skilríkjum, að Hólakirkja haíi jafn-
an lilolið skaða af Skálholtsbiskupum, þegar
þeir hafi haft hennar forráð, og hafi rænt
hana á ýmsan hátt«.
»Munu þeir þá liafa gleymt þeim frænd-
um Ólafi og Gottskálki, sem allra síðast
liöfðu forráð hennar? Þcir voru þó ekki
sunnlenzkir. Annar þeirra safnaði ógrynni
fjár fyrir frillu sína og hórdómsbörn — all
saman af fé kirkjunnai^. Og hinn — guð komi
til. Hann átti livorki konu né hörn, en hvað
varð af öllum peningum lians? Þess er hvergi
getið, að hann hafi skilið kirkjunni eftir
neinar hrúgur af gulli og dýrgripum, sem
allir vissu þó að hann rakaði saman. Hvað
gerði hann af því öllu saman, þegar hann
fór af landi burt? Hvað varð af því?«
»Já, lrvað varð af því?« varð presti
sömuleiðis að orði. »Þá man ég það, að
þeir sökuðu yður um, herra! að þér lialdið
fyrir Hólakirkju fé því, sem Guðmundi bisk-