Draupnir - 01.05.1906, Síða 95
DRAUPNIR.
611
Að þeir þýzku væru ekki við hann smeikir,
lofuðu honum hlýkúium o. s. frv. Við þetla
espaðist biskup enn þá meir, æckli innanum
menn sína, skipaði einum þelta, öðrum hitt,
sendi menn i ýmsar áttir um Skagafjörðinn,
þó helzt á hæi þá sem næstir voru Ósnum,
og lét fyrirbjóða öllum, nær og ljær að veita
þeim Jóni Arasyni og skipshöfn lians kost
eða nokkra aðra lijálp, og hótaði hverjum
sem það gerði, banni hinnar heilögu kirkju.
Að aíloknu öllu þessu umstangi og sendiferð-
um, tók biskup á sig náðir, á meðan hann
og menn lians voru að hvila sig eftir ferðina.
Allur þorri þeirra hafðist við í tjöldum, en
hann sjálfur tók sér aðsetur í Arnarstofunni
og lét 12 af sveinum sínum halda um sig
vörð sérliverja nólt.
Þannig liðu. nokkrar nætur, að ekkert
bar nýstárlegt til tíðinda. Smámsaman fóru
biskupssveinarnir að slá slöku við varðveizl-
una, þóttust ekkert hafa að óttast þar sem
staðurinn var á valdi þeirra. Nóttin var
farinn að verða nokkuð björt, og náttúran
sein þar er lögur og aðlaðandi, var farin að
sýna jaðarinn á vorlijúp sínum. Þeim leidd-
ist þess vegna að halda svona kyrru lyrir,
en fundu upp á að ganga inn lil heim^-
manna, fyrst einn og einn i senn og svo í
stærri hópum, og er þeir urðu öruggari, fengu