Draupnir - 01.05.1906, Page 103
DRAUI’NIR.
619
Jóni Arasyni, um að hann boðaði Ögmund
biskup fram fyrir erkibiskupinn í Niðarósi
innan tiltekins tíma, til að verja gerðirsínar.
Magnús prestur vitnaði undir stefnuvotta
sína að rétt væri lesið og að stefnan hefði
verið lesin yfir Ögmundi biskupi sjálfum.
Svo burfu þeir frá glugganum og fóru til
skips, en Magnús slapp nauðulega inn í
stöpulinn á kirkjunni.
Nú röknuðu allir úr rotinu og fóru upp
til handa og fóta.
»Hafið gætur á þessum, sem inn í kirkj-
una komst!« hrópaði biskup, »og látið tvo
vopnaða menn lialda vörð um hana meðan
hinir matast« Þetta var gert, og meðan á
því stóð var fátt annað gert en að vakta
kirkjuna allan daginn og næstu nótt. En
hvernig sem þeir vöktuðu, slapp prestur úr
höndum þeirra og komst til skipsins. Biskup
ætlaði ekki að trúa því og bélt um það vitna-
leiðslu á staðnum, eftir að búið var að leita
í kirkjunni og stöplinum og prestur var hvergi
sjáanlegur. Þá kom einn af fjósamönnunum
til og sagðist hafa séð prest um nóttina fara
riðandi áleiðis til Kollcuóss. Fjósakonur, sem
liöfðu vakað yíir kú, báru það, að þær hefðu
séð mann smjúga út um gluggann á stöpl-
inum, síðan komast á útbrotin og svo renna
sér niður kirkjustoðina; sögðu þær að slíkar