Fréttablaðið - 20.10.2009, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 20. okt-
óber 2009, 293. dagur ársins.
8.33 13.12 17.50
8.24 12.57 17.29
H E I L S U R Ú M
ERGOMOTION 100
með þrýstijöfnunar-
dýnum (2x97x203)
Verð 681.000 kr.
NÚ 476.700 kr.
= 30% AFSLÁTTUR
ERGOMOTION
ERGOSPORT
með þrýstijöfnunar-
dýnum (2x97x203)
Verð 488.800 kr.
NÚ 342.160 kr.
= 30% AFSLÁTTUR
ERGOMOTION 400
með þrýstijöfnunar-
dýnum (2x97x203)
Verð 840.800 kr.
NÚ 590.660 kr.
= 30% AFSLÁTTUR
ERGOMOTION 400 LÍNAN
• Ergomotion er ei
stillanlegi botnin
• Botninn er inndra
er að nýta ljósið
• Lyftigetan er gífu
2 mótorar. Einn f
• Öll tannhjól og lið
ískur og óþarfi a
• Hljóðlátt og öflug
• 3 mm. tvíhert stá
• 400 línan er með
hraðastillingum o
• 20 ára ábyrgð á
• Þráðlaus fjarstýring með útvarpssendi svo ekki þarf að
beina fjarstýringunni á móttakara.
• Rúmið fært niður í flata stöðu með einum takka.
• Þyngdarleysistakkinn (Zero G) færir rúmið í þyngdarleysis-
stöðuna. Njóttu þægindanna og upplifðu þyngdarleysis-
tilfinninguna. Staðan hjálpar blóðrásinni og minnkar pressu
á mjóbak og axlir.
ERGOMOTION 100 LÍNAN
• Ergomotion er einn öflugasti og sterkasti
stillanlegi botninn sem er fáanlegur í dag.
• Botninn er inndraganlegur á sleða svo hægt
er að nýta ljósið á náttborðinu.
• Lyftigetan er gífurleg þar sem í botninum eru
2 mótorar. Einn fyrir höfuðgafl og annar fyrir fótgafl.
• Öll tannhjól og liðamót eru úr hágæða næloni svo ekkert
ískur og óþarfi að smyrja.
• Hljóðlátt og öflugt.
3 íh ál i d di ll b i
ERGOMOTION ERGOSPORT
ATH! VIÐ EIGUM FLEIRI TEGUNDIR AF DÝNUM Á ERGOMOTION HEILSURÚMIN
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
VORUM AÐ FÁ Í VERSLUN OKKAR, NÝ OG GLÆSILEG FJÖLSTILLANLEG
HEILSURÚM FRÁ BANDARÍSKA FRAMLEIÐANDANUM ERGOMOTION
Á TILBOÐI Í ÖRFÁA DAGA!
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
Fyrir nokkrum mánuðum rændi Svíi hjarta mínu. Já, þetta gerð-
ist þrátt fyrir að ég sé vel að mér
um Íslendingasögur og viti að Svíar
eru undantekningarlaust vondir
menn, göldróttir og jafnvel ber-
serkir. Ég var stödd úti í bókabúð,
ákveðin í að kaupa mér skemmti-
legt léttmeti og komin með kilju
í hönd. Í biðröðinni hitti ég fyrir
annan viðskiptavin. Honum þótti
augljóslega lítið til bókarinnar í
höndum mér koma en ýtti að mér
annarri bók. Bókin hét Karlar sem
hata konur og hafði ég verið þess
fullviss að þar væri á ferð femín-
ískt fræðirit en ég var ekki á hött-
unum eftir slíku riti þennan eftir-
miðdag. En af því að þessi maður
í bókabúðinni var nú sjálfur Egill
Helgason, sem margir telja nestor
íslenskrar bókmenntaumræðu, og
af því að röðin var komin að mér
við kassann gerðist ég meðvirk
mjög og skipti umhugsunarlaust
um skruddu. Þegar út var komið
sá ég samstundis eftir skiptunum
og var skapi næst að bíða eftir því
að Egill og önnur gáfumenni sem
höfðu hreiðrað um sig inni í búð-
inni færu burt svo ég gæti skilað
henni.
Á FJÓRÐU síðu hafði höfundurinn
Stieg Larsson stolið hjarta mínu.
Ég skildi ekki hvað hafði gerst,
hvernig gat saga haft þau áhrif
að ég varð eins og reykingamaður
á mannamóti. Alltaf með hugann
við annað og í leit að útgönguleið
svo ég gæti sinnt því sem hugurinn
kallaði eftir. Já, aðalpersónan var
nefnilega áhugaverður karl sem
svaf hjá öllum konum sem hann
hitti fyrir og lét skúrka fá það
óþvegið líkt og Bond gerir en var
þó ekki óáhugaverður og leiðinleg-
ur hálfviti eins og sá breski held-
ur blíður og vel lesinn femínisti.
Ó, ég skildi þessar konur sem féllu
unnvörpum fyrir honum ljómandi
vel. En undarlegri áhrif hefur hún
Lisbeth. Já, hvern hefði grunað að
hægt væri að heillast af húðflúr-
aðri manneskju með gaddaól um
hálsinn.
MIG grunar samt að það sem heill-
ar lesendur mest í bókum Stígs
vinar míns, eins og ég kýs að kalla
hann, sé að í þeim kemur fram ein-
skær fyrirlitning á jakkalökkum,
sem líta á konur sem söluvöru og
eru með skúffufyrirtæki á afl-
andseyjum, en ást á hreinskiptni,
mannúð og heiðarleika. Bækurn-
ar eru því ótrúleg blanda femín-
ískra viðhorfa, frábærrar dægra-
styttingar auk þess sem þær veita
reiði lesenda útrás og ekki hefur
veitt af slíku eftir fréttatíma síð-
ustu missera.
Stieg vinur
minn