Iðnneminn - 01.05.1989, Blaðsíða 4
4
IÐNNEMINN
Vöðvabólga,
nei takk
Við hjá Iðnnemanum lásum í
blaði fyrir skömmu að hægt væri
að læra rétta líkamsbeitingu í
svokölluðum “Bakskóla". Við
hugsuðum með okkur að þar sem
margir iðnaðarmenn væru með
vöðvabólu og bakverki hlytu þeir
að vera frekar slakir í réttri beit-
ingu líkamans. Þótti okkur því til-
valið að falast eftir fáeinum upp-
lýsingum um vöðvabólgu hjá Sif
Friðleifsdóttur sjúkraþjálfara,
sem er kennari í Bakskólanum
hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur.
Vöðvabólga lýsir sér þannig að
bólgnu vöðvarnir verða sárir,
þreyttir og stífir. Algengustu
vöðvarnir sem bólgna eru í hálsi,
herðum og baki.
í nútíma þjóðfélagi eru mjög
margir með vöðvabólgu. Ástæð-
urnar eru margar, en nefna má
einhæfa vinnu, mikið vinnuálag
og slæma vinnuaðstöðu. Þessar
ástæður ýta undir það að viðkom-
andi beitir sér rangt við vinnuna,
síspennir vöðvana þannig að
blóðrás þeirra verður léleg, þeir
stífna og bólgna. þeir sem eru
með vöðvabólgu ættu að athuga
hvort þeir sjálfir geti haft áhrif á
orsakir vöðvabólgunnar. Oft er
hægt að bæta vinnuaðstöðuna
með því að t.d. hækka eða lækka
viðfangsefnið svo ekki þurfi að
beita sér rangt. Einnig mættu
margir bæta líkamsbeitingu sína.
T.d. þarf hársnyrtifólk að muna
eftir því að hafa axlir slakar við
hárskurð eða hárblástur, en ekki
spenna þær upp að óþörfu.
Fyrir þá sem eru með vöðva-
bólgu má einnig benda á fáein
heilræði til viðbótar því að bæta
vinnuaðstöðu og líkamsbeitingu
s.s. að:
— gera æfingar og teygjur
með bólgnu vöðvunum.
— nota heita bakstra, fara í
heit böð.
— faraísundeðastundaaðra
líkamsrækt.
Að lokum er vert að minna á að
best er að byrja strax á því að
beita sér rétt til að komast hjá því
að næla sér í vöðvabólgu.
Siv Friðleifsdóttir sjúkraþjálfari
Viktoría Guðnadóttir
P.S. Situr þú rétt núna þegar þú
lest þessar línur?
Myndin er sótt í bæklinginn Rétt
líkamsbeiting sem Vinnueftirlit
ríkisins gaf út í samstarfi við Félag
íslenskra sjúkraþjálfara.