Iðnneminn - 01.05.1989, Blaðsíða 20
20
IÐNNEMINN
Það var
Það var fyrir rúmum 50 árum.
Nánar tiltekið í október 1932, að
nokkrir iðnnemar hittust uppi á
lofti í gamla Fjalakettinum og
stofnuðu Iðnnemann. Fyrsti rit-
stjóri Iðnnemans var Guðjón
Guðmundsson og gengdi hann
því embætti í tvö ár. Þetta var á
þeim tíma þegar Iðnskólinn í
Reykjavík var kvöldskóli og voru
nemendur því búnir að vinna níu
tíma og vera í skólanum fjóra tíma
þegar þeir loks gátu farið að
sinna sínum hugarefnum, en sem
beturferfyrirokkur hin sem áeftir
komum tókst þeim ætlunarverk
sitt. Ekki voru allir jafn hrifnir af
þessari útgáfu, hvorki forráða-
menn skólans né sumir nemend-
anna, en þeir töldu það sína
mestu gæfu að hafa komist í
iðnnám og vildu ekki hrófla við
neinu. En það var jú einn tilgang-
urinn með þessar útgáfu að berj-
ast fyrir bættum aðbúnaði og
betri kjörum.
Þeim, sem verst var við þessa
útgáfu, vildu tengja þetta við
kommúnista og fékk það svo á
suma unga menn að þeir hættu
afskiptum af blaðinu.
Það var svo ári eftir stofnun
blaðsins að Málfundafélag Iðn-
skólans var stofnað og var blaðið
þá fært undir þann félagsskap,
sem á vissan hátt var sá sami.
Það er svo haustið 1937 að þetta
sama málfundafélag klofnar og
nemendafélag Iðnskólans verður
til. Nemendafélag þetta réðist
einnig í útgáfu blaðs sem nefnd-
ist „Birtir að degi“ og voru þá tvö
blöð í gangi í skólanum. Árið 1938
auglýsti svo skólastjóri Iðnskól-
ans stofnfund Skólafélags Iðn-
skólans í Reykjavík (SIR) og vildi
með því sameina félögin. Það
gekk eftir og var ákveðið að Iðn-
neminn yrði blað Skólafélagsins.
Árið 1944 tók svo Iðnnema-
sambandið við Iðnnemanum og
hefur gefið hann út að mestu leyti
óslitið fram að þessum degi.
Það hefur ávallt verið tilgangur
Iðnnemans að vekja athygli á
málum iðnnema, svo sem: Kjara-
málum, iðnfræðslu, áhugamálum
og öðrum hugðarefnum iðnnema
á hverjum tíma.
f þessum pistli munum við
reyna að gefa lesendum blaðsins
innsýn í sögu Iðnnemans með því
að taka gullkorn úr gömlum blöð-
um sem komið hafa út gegnum
árin.
I.tbl. Iðnnemans 1932.
ÁVARP!
Við sem réðumst í að gefa út
þetta litla blað, sáum hvílík nauð-
syn á því var, að iðnnemar opn-
uðu augu sín og annarra fyrir því,
sem ábótavant er á sviði iðnaðar-
námsins...
Guðjón Guðmundsson fyrsti ritstjóri Iðnnemans.