Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Blaðsíða 30

Iðnneminn - 01.05.1989, Blaðsíða 30
30 IÐNNEMINN Vísnaþáttur Jæja þá kemur hann aftur óþekki iðnneminn. Heldur lítið fór fyrir viðbrögðum við fyrsta þætt- inum (var það nema von*) sem óþekka fannst mjög undarlegt. En þá er bara að reyna aftur og halda áfram að yrkja. Óþekki lenti í hinu mesta basli í vetur, sem rekja má til stórgallaðs iðnfræðsl- ukerfis. Hann var hrakinn lands- hornanna á milli eftir að Iðnskól- inn í Reykjavík úthýsti honum og var hann snauðari að fé eftir þau viðskipti en fyrr. Við Iðnskólann ég illa kann illur var hann við mig þar ég enga fræðslu fann svo fjandi góður með sig. arfull persónavarð mjög umtöluð á fundinum. Hann er sagður sambandsstjórnarmaður en fáir eru gæddir þeim hæfileikum að sjá hann. Huldumaður hjá oss er Bender mun sá heita Snorri Geirdal einn hann sér og mun því svörin veita Hér er svo ein vísa sem varð til í seinustu stjórnarmyndunarvið- ræðum. Ríkisstjórnin styrkt af Stebba stöðugleika þarf ei meir Berta, Steina og slíka plebba út í hafsaugað sparka þeir. Óþekki iðnneminn Óþekki sat í vetur fund sam- bandsstjórnar í Ölfusborgum. Á svona helgarstundum getur margt skeð, en það sem mesta undrun vakti var tímavilltur jóla- sveinn sem unni þreyttum iðnn- emum engra hvíldar á morgn- anna. Bæst hefur í hópinn þann er jólasveinar heita Morgunhrellir nefnist hann fyrstur að heiman að leita. Þegar fólk í svefni föstum í fönninni læðist sveinki þá upp að húsum í hendings köstum dyr og glugga hann lemur á. En það voru fleiri en jólasveinar sem angruðu fundarmenn. Dul- Og svo einn léttur flippari um vorið. Þreyja skal þorra þögul líður góa vinum til vorra á vori kemur lóa. Og svo endum við á einni sem datt út úr óþekka við konu sína er hann uppgötvaði að frúin væri þunguð og það ekki í fyrsta sinn. Bág mér þykir þróun sú að þykkni undir belti í hvert það sinn sem að nú ég þér á bakið velti. Ingólfur Þórsson (*innskot skrifara)

x

Iðnneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.