Iðnneminn - 01.05.1989, Side 9
IÐNNEMINN
9
Vidtal við Lindu Ósk
Húsnæði Iðnnemasambands íslands
blm: “Nú eruð þið með félags-
Linda Ósk Sigurðardóttir er
annar tveggja starfsmanna Iðn-
nemasambandsins og fyrrum
formaður þess. Iðnneminn hitti
hana að máli og byrjaði á að
spyrja hana hvað gert sé á skrif-
stofunni.
“Það er nú ótrúlega fjölbreyti-
legt starf, hingað koma mjög
margir með fyrirspurnir og klögu-
mál, sum smávægileg sem leys-
ast með einu símtali eða bréfi til
meistara en önnur alvarlegri sem
jafnvel tekur marga mánuði að
leysa með aðstoð lögfræðinga.
Eins er mikið um fyrirspurnir er
varða iðnnemat.d. um iðnfræðsl-
umál, kjarasamninga, o.f.l. Það
má segja að Pálmar Halldórsson
framkvæmdastjóri sé í fullri vinnu
eingöngu við að vinna í þessum
málum. Mitt starf felst aðallega í
innheimtu félagsgjalda fyrir fé-
lagssjóð aðildarfélaga Iðnnema-
sambandsins, útsendingu fé-
lagsskírteina og fréttabréfa og
öðru því sem til fellur og þarf að
vinnast á skrifstofunni".
blm: “Getur þú gefið okkur dæmi
um þau mál sem fyrir ykkur eru
lögð"?
“Öll þau mál sem koma upp á
borð til okkar eru trúnaðarmál
þannig að það er ekki hægt að
tilgreina eitt sérstakt mál frekar
en annað. Aftur á móti get ég
nefnt það að í fyrra vorum við að
taka til í gömlum skjölum og rák-
umst á bréf frá 1946 þar sem hár-
greiðslunemi var að leita til INSÍ
vegna þess að hann var látinn
sópa og passa barn meistarans í
vinnutímanum, og er þetta lýs-
andi dæmi fyrir mál sem komið
hafa til INSÍ gegnum árin".
blm: “Heldur þú að nemendur
fái góða kynningu á Iðnnema-
sambandinu"?
“Á hverju hausti reynum við að
fara í flesta iðn- og verknáms-
skólana en það hefur verið upp
og ofan hvað við höfum komist
yfir. En það er alltaf farið í Iðnskól-
ann í Reykjavík.
Annars er það eins og iðnnem-
ar skilji ekki tilganginn með INSÍ
fyrr en brotið hefur verið á þeim“.
málaskóla. Eru námskeiðin hjá
ykkur vel sótt“?
"Já það er starfræktur hjá okk-
ur félagsmálaskóli þar sem
kennd eru ræðuhöld, fundarsköp
o.fl. Vanalega eru haldin helgar-
námskeið þar sem kennt er
grunnefni, það er ræðumennska,
fundarstjórnun, skráning minnis-
atriða og ýmislegt annað sem við
kemur félagsstarfi. Þessi nám-
skeið okkar eru opin öllum iðn-
nemum á landinu og er stefnt að
námskeiðum eftir áramót. Það er
von okkarað iðnnemartaki sig nú
á og skelli sér á námskeið næst
þegar tækifæri gefst“.