Iðnneminn - 01.05.1989, Page 22
22
IÐNNEMINN
ur sagt mömmu að ég fari stund-
um í K.F.U.M......
2.tbl. Iðnnemans 1965.
Þann 6. janúar s.l. varð Iðnnema-
félag Akraness 20 ára. Var í því
tilefni efnt til hófs að Hótel Akran-
es....
2.tbl. Iðnnemans 1966.
Afsökunarbeiðni.
f síðasta tölublaði Iðnnemans á
síðasta ári, skrifaði ég grein um
Prentnemafélagið í Reykjavík.
Þessi grein hefur orðið til þess að
ég hef mátt hafa mig allan við að
verjast árásum gagnrýnenda. Ég
sé mig því tilneyddan til að bæta
fyrir mistök mín, þar eð nýendur-
kjörinn formaður Prentnemafé-
lagsins hefur hótað að gera mig
höfðinu styttri ef ég ekki geri
það...
2. tbl. Iðnnemans 1966.
Vitið þér?
Að einn prentnemanna, sem fór
til Parísar, fór með sex nærbuxur
með sér, og keypti fimmtán, en
kom aðeins heim með tvennar.
Hvað skeði?
1. tbl. Iðnnemans 1967.
Viðtal við Sæmund Pétursson.
Er blaðamaður Iðnnemans var á
ferð í Keflavík, hitti hann að máli
Sæmund Pétursson, formann
Iðnnemafélags Suðurnesja.
Komdu sæll, Sæmundur, er
nokkuð að frétta að sunnan?
Komdu blessaður, héðan er allt
gott að frétta.
1. tbl. Iðnnemans 1969.
Viðtal við Guðmund Ketil Guðf-
innsson.
Ég valdi 02 á símaskífunni og
pantaði Guðmund Ketil Guðfinn-
sson á ísafirði. Eftir svo sem
stundarfjórðung hringdi síminn: -
14410, Guðmundur Guðfinnsson
gjörið svo vel. -Sæll Guðmundur,
það er aldeilis langt síðan maður
hefur heyrt í þér. -Já það er orðið
nokkuð síðan. Því er nú andskot-
ans ver að ég skildi ekki komast á
þingið til ykkar eins og ég ætlaði
mér.
1,tbl. Iðnnemans 1968.
Hárgreiðslunemar í norrænni
greiðslukeppni.
Það er ekki á hverjum degi sem
íslenskir iðnnemar taka þátt í
keppnum erlendis, en í nóvemb-
er sl. tóku tveir hárgreiðslunem-
ar, þær Elsa og Svava Hara-
Idsdætur (þó ekki systur), þátt í
norrænni hárgreiðslukeppni eða
Nordisk mesterskap í frisering í
Oslo...
Linda Ó. Sigurðard.
Margrét Halldórsd.