Iðnneminn - 01.05.1989, Side 32
32
IÐNNEMINN
INTERNATIONALINN
Fram þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök.
Nú bárur frelsis brotna á ströndum.
Boða kúgun ragnarrök.
Fúnar stoðir burt vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag!
Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag!
Fó að framtfð sé falin.
Grípum geirinn f hönd.
Því Internationalinn
munn tengja strönd við strönd!
Bókagerðarnemar
Þann 9. febrúar síðastliðinn var aðal-
fundur Félags bókagerðarnema haldinn í
húsnæði Iðnnemasambands íslands að
Skólavörðustíg 19. Þó fundurinn hafi ekki
verið vel sóttur var heilmikið rætt og mest
um þá breytingu sem á sér stað í bóka-
gerðardeildinni um þessar mundir. Það
var einnig kosið í stjórn félagsins og voru
eftirtalin kosin:
María H. Kristinsdóttir, Rósa M. Grét-
arsdóttir, Silja Ástþórsdóttir, Sigurður
Kjartansson, Birgir Már Georgsson, Ey-
vör Halldórsdóttir, Herdís Jónsdóttir og
Orri Kristinn Jóhannsson. María og Rósa
eru einnig fulltrúar okkar í þeirri nefnd
Menntamálaráðuneytisins sem er að
endurskoða bókagerðardeildina.
Vormót
iðnnema
Skákmót Iðnnemasambands íslands verður haldið
þriðjudaginn 17. maí í húsnæði sambandsins að
Skólavörðustíg 19, 2. hæð. Verðlaun verða veitt fyrir 3.
efstu sætin. Skráning fer fram í síma 10988 alla virka
daga milli 13.00-17.00. Þátttakendur eru beðnir að hafa
tafl og klukku meðferðis.
Félagsmálanefnd.