Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Side 10

Iðnneminn - 01.05.1989, Side 10
10 IÐNNEMINN Idnfrædslumál Mikil gróska er í iðnfræðslu- málum í dag og heilmikil endur- skoðun á sér stað í hinum ýmsu málum. Það er afar slæmt hvað iðnnemar láta það sig litlu máli skipta þrátt fyrir það að þeir geti haft heilmikið um þau mál að segja. Það er t.d. verið að end- urskoða námskrá og allt skipulag í bókagreinum, en hæst ber þó að eftir að framhaldsskólafrum- varpið öðlaðist gildi þann 19. maí 1988 féllu iðnfræðslulögin úr gildi. Þar með þurfti iðnfræðslu- kaflinn að fa.lla undir framhalds- skólafrumvarpið sem reglugerð. Mikil vinna hefur verið lögð í þessa reglugerð sem heitir “ Reglugerð um starfsmenntun." Reglugerðin hefurverið unnin að miklu leyti með hliðsjón af gömlu iðnfræðslulögunum, en þó hafa miklar breytingar verið gerðar í drögunum. Enn hefur reglugerð- in ekki verið borin upp til sam- þykktar, því endanlegri niður- stöðu hefur ekki verið skilað frá nefndinni sem menntamálaráð- herra skipaði. Það eru ekki allir á einu máli hvað þessi reglugerð á að heita, en margir eru á þeirri skoðun að hún eigi að heita Reglugerð um iðnfræðslu. Það er von okkar iðnnema að öll sú um- ræða og þær miklu breytingar sem í uppsiglingu eru verði til þess að bæta aðstöðu til náms og iðnfræðsluna í heild sinni. Georg Páll Skúlason formaður INSf Nemendur athugið Starfsþj álfunarsamningur Þeim iðnnemum sem fara í starfsþjálfun og fara ekki á námssamning skal bent á að þeir þurfa að gera starfsþjálfunarsamning sem staðfestur skal af viðkomandi skóla. Starfsþjálfunartími til sveinsprófs verður héðan í frá ekki metin nema gerður hafi verið starfsþjálfunarsamningur. Samningseyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans nemendum til afhendingar. IDNFRÆDSLURÁÐ

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.