Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Side 19

Iðnneminn - 01.05.1989, Side 19
IÐNNEMINN 19 Opid bréf Kæri Iðnnemi Mér datt í hug að senda ykkur línu með hörmungasögu minni. Þannig er mál með vexti að ég er hárgreiðslunemi á 3ja ári og er í sambúð með húsasmíðanema á 2. ári. Við eigum eitt barn sem er 2ja ára og leigjum einstaklings- íbúð í Breiðholti. Þar sem við er- um skráð í sambúð hefur okkur gengið mjög illa að fá dagvistun fyrir barnið okkar svo hún er hjá dagmömmu á daginn. Ég hef ,JV!ér finnst ómetanlegt að geta gengið að öllum upplýsingum vísum: ÁnægðurviðskiDtavinur. UPPLÝSINGAR ERU VERÐMÆTI EIMSKIP alltaf fengið borgað samkvæmt taxta en maðurinn minn hefur alltaf verið yfirborgaður og fengið mikla yfirvinnu, en nú er sagan önnur því um áramótin var honum sagt upp yfirborguninni og fær ekki að vinna meira en 40 stunda vinnuviku vegna samdráttar hjá fyrirtækinu. Ég veit að það hafa margir sömu sögu að segja en mér finnst að það ætti að koma fram í Iðnnemanum hvað við höf- um lág laun. Hér á eftir koma reikningar fyrir venjulegan mán- uð hjá okkur að frádregnum mat- arkostnaði. Ég fæ laun í skóla en maðurinn minn ekki. Mánaðarlaun. Hún: 20.808.90 Hann: 33.764.04 Samtals: 54.572.94 Útgjöld. Húsaleiga: 25.000 Dagmamma: 20.000 Rafmagn: 1.115 Hiti: 500 Sími: 1.500 SVR: 3.000 Alls: 48.115 Ég tók bara það helsta enda eigum við aldrei fyrir öllum reikn- ingum. Kæra ritnefnd ég vona að þið birtið þetta fyrir mig, og að ég hljómi ekki eins og þreytt hús- móðir úr vesturbæ. Kær kveðja, Júlla.

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.