Ljósberinn


Ljósberinn - 20.12.1924, Qupperneq 6

Ljósberinn - 20.12.1924, Qupperneq 6
408 LJÓSBERINN Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagðl hann í jötu. Lúk. 2,7 Ú kemur hún ennþá þessi dýrðlega liátíð, sem öld eftir öld og ár frá ári flytur boð- skapinn um það, að konungur dýrðarinnar tók á sig þjóns mynd, — að guðs sonur gjörðist mað- ur. Jólin eru sem vagga Jesú. Mai’gir hafa mikinn undirbúning með að prýða hana. Stór er sá skari, sem er önnum kafinn við það. Hefir þú ekki tekið þátt í því verki? Gott er að prýða vögguna — en þar við má ekki láta staðar numið. Það er liann, er fæddist og „var í jötu lagður lágt, en ríkir þó á himnum háttu sem þarf að vera innihald jólafagnað- arins og til hans eigum við að beina huga okkar. Yið eigum að prýða heimilin okkar, tendra Ijósin og syngja jólasöngvana til þess að bjóða Jesú' velkom- inn. Það gagnar ekkert jólaundirbúningur og hátíða- víðhöfn, ef við gefum ekki Jesú húsrúm. Herskarar himnanna veita honum lotningu og tilbiðja hann; þeir bíða eftir hverri hans bendingu, til þess að hlýða með fögnuði og reka erindi hans. Beygjum kné okkar fyrir honum! Þökkum honum og bjóðum hann velkominn. Hann er konungur vor og frelsari. Honum eigum við að hlýða og hans er- indi eigum við að reka. Þannig eigum við að halda jól. Y.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.