Ljósberinn


Ljósberinn - 20.12.1924, Blaðsíða 17

Ljósberinn - 20.12.1924, Blaðsíða 17
LJÓSBERINN 419 Hans, og Elín litla systir hans, ólust upp hjá þess- ari gömlu konu. Foreldrar þeirra voru bæði dáin, en gamla konan var föðursystir þeirra. Þau áttu engan ættingja að annan en þessa frænku sína. Af því að þau voru ómagar, þá fékk hún dálitla meðgjöf með þeim úr bæjarsjóði. Þeim systkinum leið alt annað en vel hjá þessari frænku sinni. Hún var svo dæmalaust köld við þau í orði og verki, að varla var liægt að hugsa sér verra. „Það grær ekki annað en tómir þyrnar og þistlar í kotinu því“, sagði fólkið. Já, fólkið hafði í fullu tré með að segja þetta, því að það hafði ekkert. saman við hana að sælda. Öðru máli var að gegna með veslings munaðarlausu systkinin. Þau urðu að reyna að gera eins og henni líkaði, þó að þeim tækist það því sem næst aldrei. ílvað lítið sem þeim varð á, þá lamdi hún þau og skammaði. Þau máttu ekki tala saman, þá hafði kerling vöndinn á lofti. „Það er nóg, að eg verð að burðast með þau“, sagði hún, „þó að eg sé laus við masið í þeim“. Það voru því engin undur, þó að veslings syst- kinin yrðu utan við sig og létu helzt aldrei til sín heyra. Þau urðu að hugga hvort annað í laumi, með því að segja, hvað þeim þætti vænt hvoru um ann- að. Hans varð líka að laumast til að kyssa veslings veiklulegu systurina sína og telja henni trú um að einhverntíma mundu þau sjá betri daga. Það vissi hann, að einhversstaðar væri heldur betra að vera í heiminum en hjá gömlu frænku, svona geðvond eins og liún var. En þó var mesta

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.