Ljósberinn - 01.11.1944, Blaðsíða 24

Ljósberinn - 01.11.1944, Blaðsíða 24
160 LJÓSBERINN HECTOR MALOT: ÓSKILABARN Fyrstu dagana, sem við dvöldum í Var- ses skemmtum við okkur með því að virða fyrir okkur starfið í bænum, sem var svo gerólíkt því, sem við höfðum áður haft kynni af. Alexis líkaði lífið vel, hann var „tilvalinn moldvarpa“, eins og Kasper frændi sagði í gamni. En gleðin sú stóð ekki lengi. Daginn áður en við ætluðum að leggja af stað, kom Alexis heim fölur og útgrátinn með hægri höndina reifaða. Kolastykki hafði dottið ofan á hann og lent á einum fingri hans. Kasper frændi sótti strax lækni. Fingurinn var athugað- ur, og til allrar hamingju var hann þó ekki brotinn; en Alexis var bannað að snerta handartak í nokkurn tíma. Þetta var mjög raunalegt, og þegar Kasper frændi, sem í fyrstu hafði verið mjög óttasleginn, fékk að vita, að engin hætta væri á ferðum, varð hann gramur og ávítaði Alexis fyrir' óvarkárni lians. Hvaðan átti hann nú að fá dreng til þess að aka vögnunum? Hver hafði sitt sér- staka starf, og hann vissi ekki, hvernig hann ætti að ráða fram úr því. „Er það mjög erfitt að ýta vögnunum?“ spurði ég. „Nei, alls ekki, þeir ganga á teinum“ var svarið. „Þá skal ég hjálpa þér, þar til Alexis verður hress aftur“, sagði ég. „Ég get þá ef til vill launað þér að einhverju leyti þá vinsemd, sem þú hefur sýnt mér“. „Þú ert ágætis drengur“, sagði Kasper frændi, og það birti yfir andliti hans. „Þú gerir mér mikinn greiða með þcssu, og það getur líka orðið þér sjálfum til gagns. Ef þér geðjast vinnan í námunum skal ég koma þér þar fyrir. Það er betra en að reika um á þjóðvegunum“. En þar var ég ekki á sama máli. Mig langaði ekki að ala aldur minn neðan- jarðar og sjá næstum aldrei bláan liiin- ininn og grænu trén og auk þess vildi ég ekki yfirgefa Carlo. Næsta dag klæddist ég bláum verka- fötum og fór með Kasper frænda til nám- unnar. Mér var leitt í skapi, þegar ég steig niður í myrka, þrönga ganga, sem lágu að henni, en nú var það of seint að snúa við. Langt niðri eygði ég ljós, sem smátt og smátt fjarlægðist, unz það að lokum hvarf. Það voru námumennirnir, sem gengu á undan okkur, hver með sinn lampa í höndunum. Frændi og ég feluð- um sífellt lengra niður á við. Frá fyrsta stiganum lágu stórar tröppur og loks kom- um við í hvelfdan gang, og var gólfið í honum allt lagt brautarteinum fyrir litlu vagnana. En mitt á milli teinanna rann lækur svartur og gruggugur. „Þessi lækur ber burtu allt vatnið, sem síast úr veggjum námunnar“, sagði frændi, „og hinum megin námunnar er gat sem opnar því leið niður Varsesdal- inn. Á þennan hátt losnum við við allt vatn sem annars er mjög hættulegt í kola- námum“.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.