Ljósberinn - 01.06.1947, Síða 3
Til fermingarbarna
Mörg börn hafa unnið sitt fermingar-
heit í vor, bæði hér í Reykjavík og úti um
byggðir landsins. Til ykkar, kæru ferm-
ingarbörn, sem Ljósberann lesið, vil ég
segja þetta: Munið ykkar hátíðlega heit,
sem þið unnuð frammi fyt.? altari Drott-
ins. Nú liggur leið ykkar út í heiminn,
þar liggja fyrir ykkur freistingasnörur
Satans. I ljóssengilslíki kemur hann til
ykkar og býður ykkur sína leiðsögn, bend-
ir ykkur á breiða veginn, sem liggur til
glötunar; þann veg ganga nú margir æsku-
ttienn, því miður. í glaðværð og gjálífi
heimsins gleyma þeir Guði og liinum góða
lífsleiðtoga Jesú Kristi. — Það hefur
aldrei verið meiri þörf á að brýna fyrir
íslenzkum æskulýð að gleyma ekki Guði,
en einmitt nú.
Hinn vonda soll varast, en vanda Jiitt mál,
og geymdu nafn Guðs þíns í grandvarri sál.
Ver dyggur, ver sannur, því Drottinn þig sér,
haf daglega Jesúm í verki með þcr.
En því aðeins getur Jesús lijálpað þér,
að þú trúir á liann sem Guð þinn og
frelsara. Hann dó fyrir þig, kæra barn,
liann friðþægði fyrir syndir þínar með
dauða sínum á krossinum. Hann reis upp
frá dauðum og sté upp til himna og sit-
ur nú við hægri hönd Guðs föðurs al-
máttugs og mun þaðan koma að dæma
lifendur og dauða.
Þessi verður að vera játning þín, ef
þú átt að geta komist í lifandi lífssam-
band við Jesúm.
Og mundu svo þetta:
Hver sá, er hér sigrar, skal sigurkrans fá,
í trúnni vér vinnum, þótt verði margt á,
því sá er oss hjálpar, við hrösun oss ver.
Ó, hafðu þinn Jesúm i verki með þér. —
J. H.