Ljósberinn - 01.06.1947, Síða 5

Ljósberinn - 01.06.1947, Síða 5
LJÓSBERINN 77 sáu varla nokkur ráð til þess að afla sér og firnm börnum sínum viðurværis og þar að auki var María litla alltaf veik. Og svo ættu þau að eyða peningum fyrir nýtt reikningsspjald. Hinrik skyldi ekkert í þögn skólabróð- ur síns og spurði: „Hvers vegna svarar þú mér engu?“ Lúðvík hafði stranglega hlýtt fyrirmæl- um foreldra sinna um að minnast aldrei á örbirgðina heima fyrir, en nú létti hann á hjarta sínu og sagði frá því að faðir sinn væri verksmiðjuverkamaður og liefði áð- ur haft góða atvinnu, en upp á síðkastið hefði vinnan minnkað svo mikið, að nú ætti liann fullt í fangi með að sjá sér og sínum fyrir fæðinu. Þessa sorgarsögu sagði Lúðvík þeim smám saman og í ósamanhangandi setn- ingum. „En pabbi sagði í gær, að þetta batn- aði með vorinu og því býst ég líka við og því verð ég feginn. Bara að spjaldið mitt hefði ekki brotnað!“ sagði Lúðvík að lokum. Hinrik sárkenndi í brjósti uin Lúðvík litla. Svona bláfátækt fólk var þá til í raun og veru! Hann hafði aldrei getað hugsað sér það, hann, barnið frá efnaheimilinu, þar sem ávallt var nægur matur á borðum. Það varð að hjálpa Lúðvík, en hvernig átti að fara að því? Skyldi veslings fátæki drengurinn hafa nokkuð smurt brauð með sér í skólann? Ekki var svo að sjá. ‘„Hefurðu líka tapað morgunmatnum þínum ofan í forina á götunni?“ spurði Hinrik. Lúðvík roðnaði upp í hársrætur. — „Nei, ég hafði engan mat með mér“, sagði hann í hálfum hljóðum, „en segðu hin- um ekki frá því, Hinrik!“ Meðan þessu fór fram, voru drengirn- ir komnir að skóladyrunum og samstund- is var skólabjöllunni liringt. Gengu börn- in þá inn í skólann í skipulegri röð. Svo vel vildi til að reikningsspjöldin voru ekki notuð þenna dag í skólanum og fagnaði Hinrik því sérstaklega. Á eftir fór hann að athuga morgunverð- arböggulinn sinn og olli því bæði matar- listin og sjálfsafneitunartilhneiging, en þegar að frímínútunúm kom gekk liann með Lúðvík út og stakk böggliniun í lófa hans. Lúðvík færðist alvarlega undan því, að taka við honum, en honum heppnaðist það ekki. „Eg verð þér reiður ef þú tekur ekki við honum“, sagði Hinrik. „Það væri skárra ef maður ekki niætti gera félaga sínum greiða! Ég hef matast áður í dag, svo að þú getur verið áhyggjulaus mín vegna!“ Veslings Lúðvík þrýsti þakklátlega liönd vinar síns. Hann var glorhungrað- ur og snæddi matinn með góðri lyst eins og geta má nærri. En Hinrik var gagnteknari af innilegri gleði en hann hafði nokkurn tíma fundið til áður. Hann fann það, að sjálfsafneit- un og sjálfsfórn færir mikla blessun með sér, þó að liann kæmi ekki orðum að því. Þegar kennslu var lokið hljóp liann lieim til sín. Pabbi hans og mamma voru önnum kafin við að afgreiða viðskipta- menn í búðinni, svo að Hinrik flýtti sér upp í svefnherbergið. Sparibaukurinn hans var þar. Hann tók fimm tíeyringa úr honum og hafði frænka hans gefið

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.