Ljósberinn - 01.06.1947, Qupperneq 15

Ljósberinn - 01.06.1947, Qupperneq 15
LJÓSBERINN 87 ana á borðinu; „þér megið ekki láta mig gera yður ónæði“. Og hann hélt áfram að ympra á þessu, þangað til hún sagði lionum allt eins og var. Þegar Palli kom aftur með hestinn járnaðan, þá bjóst gesturinn þegar til ferðar, en fyrst stakk liann einhverjum peningi í lófa Palla litla. „Þú skalt fá að frétta af mér seinna“, sagði hann um leið og hann reið af stað. Palli litli hljóp nú himinlifandi glað- ur inn í baðstofu til mömmu sinnar til að sýna henni, hvað Guð hefði sent hon- um. En þá veittist honum meiri gleði en honum hafði getað í hug komið. Móðir lians breiddi út fyrir honum stærðar bankaseðil með feginstár í augum og liróp- aði upp yfir sig: „Ó, hundrað króna seð- ill! En sú blessuð sending! Ó, drengur- inn minn. Hvernig gæti ég efað misk- unnsemi Drottins eitt augnablik? Þú hef- ur rétt fyrir þér, barnið mitt! Guð efnir loforð sín við þá, sem treysta honum!“ Og nú féllu þessi hamingjusömu mæðg- in bæði á kné og þökkuðu sínum himn- eska föður fyrir gæzku hans við þau og umliyggjuna fyrir þeim. „Ég vissi það, að hann mundi senda okkur eitthvað“, sagði Palli litli grátglað- ur, „því að hann hefur lofað því í orði sínu: Sá fær, sem biður“. „Ef sálirnar þyrstir, þú svölun þeim lér, þær saÚning fá hungraðar frá þér. Vor Guð þínu’ í ljósinu, ljós sjáum vér, og lífsins er uppspretta hjá þér“. r n dordraumur I\ú kemur vor og varmi, er vetur kveúur fold; nú vaknar vor í barmi, sem vakni frœ í mold. Ur su'Sri vorfugl svífur og syngur vorsins óð: Lóunnar dirrindí hrífur oss þá, eins og himneskt sólarljóS; þá syngjum vér líka vor sólarljóS hátt og dátt. Mig dreymir sólskinsdaga mig dreymir um þá tíó er gramka grös í haga um grundir, móa og hlíS — er grœnar grundir taka aS glitra blómum af, lyftandi höfSum hátt sólunni móti, sem blikar þá svo blífi og vorperlan skœr upp úr grjótinu grœr — og hlcer. B. J. j

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.