Ljósberinn - 01.06.1947, Side 23

Ljósberinn - 01.06.1947, Side 23
LJÓSBERINN 95 ungur, „þeir þekkja ekki ljós heimsins, þó að bjartari og heitari sól skíni á þá en oss. En þeir skulu ekki glatast, þeim skal ljós tendrað verða, skærara Ijós en vitaljósin á hinum hættulegu ströndum, þar sem þeir búa. Ég ætla að senda menn til að boða þeim kristni, til að bjarga sálum þeirra frá dauðanum til lífsins“. Að svo búnu sendi konungur eftir Dr. Liitkens, hirðpresti sínum. Þegar Liitkens gekk inn til konungs, mælti hann: „Það er gott, að þér komuð“. „Ég er alltaf viðbúinn, þegar þér kall- ið, herra“, svaraði Lutkens. „Já, ég vissi það nú alltaf“, sagði kon- ungur, „en í dag er það ekki ég, sem kalla á yður, heldur er það Drottinn sjálfur, sem kallar, Guð himnanna. Nú þarf hann yðar við, enda þótt boðin komi frá mer . Að svo mæltu sýndi konungur Lútkens landsuppdráttinn, sem lá fyrir framan hann og breiddi hann út, benti á Tranke- bar, og mælti: „Þetta land gaf Drottinn Kristjáni konungi fjórða, og þér vitið, að ég hef sent þangað landvarnarlið til að vernda þetta ríki mitt. Takið þér nú eftir því, sem ég segi, dr. Lútkens. Ég ætla að senda menn til að greiða Drottni veg rneðal lieiðingjanna, sem þar húa. Hvað segið þér um það? Viljið þér útvega mér hina réttu menn til þeirrar farar?“ Lútkens þóttist aldrei hafa lifað sælli stund en þá, er liann stóð þarna frammi fyrir konungi sínum. Hann hellti ineð fögnuði olíu í þann eld, er liann sá bála upp í brjósti konungs síns, eins og hann sjálfur kemst að orði. „Konungur minn og lierra!“ sagði hann, „þessari hugsun liefur Drottinn sjálfur blásið yður í brjóst, Guð blessi yður ríkulega! En liverja ætlið þér að senda þangað? Hvar eru nú þeir prestar vor á meðal, er eigi vilja hliðra sér hjá þeim hættum, er þeim mundu mæta fyr- ir handan liöfin? Ég veit þó af einum, er væri fús til að fara að köllun Drottins, til þeirrar þjóðar, sem situr í skugga dauðans. Sendið þér mig!“ En konungur vildi ekki fyrir nokkurn mun sjá af þessum trúa þjóni sínum, og þar að auki var hann hniginn að aldri, og þess vegna svaraði hann: „Nei, aldrei! Nei, verið þér hjá mér, vinur minn og ráðunautur, eins og áður. Aldrei skal ég liætta hærunum yðar undir klær tígranna í fenjaskógunum þar eystra eða stofna lífi yðar í háska í svo banvænu loftslagi. En — útvegið þér mér menn! llugsið nú þetta mál vandlega, og liafið Bornemann biskup í ráðum með yður. Og ef þér finnið engan í voru ríki, er fús sé til þeirrar farar, þá skrifið til Þýzkalands eftir mönnum“. Dr. Lútkens gerði nú sem konungur bauð. Hann fékk Bornemann til liðs við sig. Þeir leituðu nú fyrst fyrir sér í Dan- mörku, en fundu engan. Lútkens sagði þá konungi, hvernig farið hefði. „Það tekur mig sárt, að ekki skuli finn- ast nokkur slíkur maður í ríki voru. Það er enginn sannnefndur kristindómur hjá þeirri þjóð, þar sem enginn ber kærleika í brjósti til vesalings manna, sem lieiðnin blindar nótt og dag. En — skrifið þér þá til Þýzkalands“. Framh.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.