Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 12
Albert Schweitzer
Hann er doktor í fjórum vísindagreinum. ★ Einn
mesti orgelleikari í heimi. ★ Fékk friðarverðlaun
Nóbels. ★ Kristniboði í Afríku í 40 ár.
Nú skuluð þig fá að heyra sögu um mann-
inn, sem margir telja einn fjölhæfasta snill-
ing vorra tíma. En þegar hann var ungur,
fékk hann köllun til að þjóna öðrum, og hann
hefur með einstakri trúfesti og fórnfýsi þjón-
að þeirri köllun alla æfi.
Albert Schweitzer fæddist 14. janúar 1875
í Elsass, sem Frakkar höfðu orðið að láta af
hendi við Þjóðverja 1871. Faðir hans var
prestur í litlu þorpi, þar ólst hann upp á góðu
heimili og átti bjarta bernskudaga.
Strax í bernsku sýndi hann ríka samúð með
öllum, sem bágt áttu. Eitt sinn var hann með
öðrum börnum að hæða Gyðing nokkurn, sem
öðru hvoru lagði leið sína um þorpið. En brátt
sá hann eftir tiltæki sínu og gerðist síðar
góður vinur Gyðingsins.
Einu sinni sá hann gamlan, haltan hest
barinn hrottalega. Hann lýsti því síðar, hvern-
ig sú mynd hefði hvað eftir annað komið aftur
fram í huga hans og vakið þar hryllingu.
Áður en Albert litli komst á skólaaldur,
hafði hann notið tilsagnar í hljóðfæraleik.
Níu ára gamall var hann orðinn það fær, að
hann var fenginn til að leika
á kirkjuorgelið við guðsþjón-
ustu. Síðar komst hann það
langt á þeirri braut, að hann
var talinn einn af mestu org-
elsnillingum nútímans.
Er hann hafði lokið stúd-
entsprófi, tók hann að lesa
guðfræði með það fyrir aug-
um að gerast prestur. En
jafnframt lagði hann stund á
heimspeki og lauk á skömm-
um tíma háskólaprófi í báð-
um þessum greinum. Árið
1899 tók hann doktorspróf i
heimspeki, og síðar varð
hann líka doktor í guðfræði
og tónlist.
Árið, sem hann varð
doktor í heimspeki, gerðist
hann prestur í Strassburg,
og árið 1903 varð hann há-
skólakennari í guðfræði þar
í borg.
Á Ogowefljótinu.
120
LJÚSBERINN