Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 24

Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 24
Pabbi þinn verður áreiðanlega þreyttur eftir langt dagsverk. — Já, mamma, svaraði Jim. Hann gleymdi því, hve þreyttur hann var sjálfur. Hann þreif öxina og fór út. Langur tími leið. — Við ættum að fara að drekka teið, Jim. Pabbi þinn hefur tafizt eitthvað. Hann er aldrei vanur að koma svona seint heim. Stormurinn var aftur tekinn að hvína úti. Mamma var óvenju föl í kinnum í kvöld. Það hlaut að hafa komið eitthvað fyrir Ike. Það voru margar mílur til næsta bæjar og i slíku veðri sem í kvöld var ógerningur að sækja hjálp. En hefði maður hennar orðið fyrir einhverju slysi, yrði hann örendur áður en dagur rynni. — Hvað er þetta Jim? spurði hún allt í einu. — Það hlýtur að vera hundur úti, svaraði Jim. Hann hafði ekki tekið gjörla eftir hljóð- inu. Hann var svo niður sokkinn við að borða. Nú lagði hann við hlutsir. — Þetta er Hvíti-refur, mamma. Þetta hljóð mundi ég þekkja hvar sem væri. Hann spratt á fætur og flýtti sér til dyra. Hann bjóst við, að pabbi væri að koma. En enginn pabbi svaraði, er hann hrópaði út í myrkrið. Stórt loðið dýr stökk glefsandi upp um hann. — Leggstu niður, seppi, leggstu! Hvar er pabbi? En hundurinn svaraði engu öðru en ýlfri, sem átti að þýða: — Komdu með mér! Hvíti-refur hafði verið forystuhundur í þrjú ár. — Mamma, þetta er Hvíti-refur. Hann er kominn aktýgjalaus. Ég ætla að skreppa út og gá hvort ég sé hina hundana. — Jim kom brátt inn aftur. — Þeir eru allir komnir heim nema Curley. Þeir eru með aktýgin á sér en hafa greini- lega nagað í sundur sleðaólarnar. Pabbi hlýt- ur að vera eftir einhvers staðar úti í skógi. Enn hvar er Curley? Hvers vegna er hann ekki með hinum? Mömmu brá svo við þessar fréttir, að minnstu munaði, að hún hnigi niður. Enga hjálp var hægt að fá, og sjálf gat hún ekki komist svo mikið sem fáa metra frá bænum í þessum byl og 20 stiga frosti. Jim var úrvinda af þreytu, og auk þess var hann alltof ungur til þess að geta nokkuð að gert undir slíkum kringustæðum. Hann gæti tekið við störfunum heima. Það væri því óráð að láta hann fara út í tvísýnu. Jim hafði gefið' hundunum að éta. En hann var ekki fyrr kominn inn en tekið var að krafsa aftur við dyrnar. Ýlfrið úti gaf greinilega til kynna, að skepnan var ekki ánægð. Það var eitthvað, sem hún vildi. Jim fór aftur út í dyrnar. Snjórinn þyrl- aðist inn, er hann opnaði. í dyragættinni stóð stóri loðni hundurinn. Jim var nú ekki í neinum vafa um hvað hann vildi. — Hann vill fá mig út með sér, mamma! kallaði Jim inn til mömmu sinnar. Hvað á ég að gera? Ég er viss um, að hann vill fá mig til að hjálpa pabba heim. — Komdu inn Jim svaraði hún. Mér finnst ég ekki geta látið þig fara. Þið pabbi þinn eruð allt, sem ég á á þessari jörð, ef þú verður líka úti get ég ekki lifað það af. Nú varð allt hljótt um stund. En eftir andartak heyrðist aftur sama ýlfrið í hund- inum. Hvíti-refur ætlaði ekki að gefast upp við skilaboðin, þó að honum hafi verið neitað um áheyrn. Enn varð hljótt. Svo heyrðist enn á ný sama ýlfrið, og glöggt móðureyrað þóttist greina skýr vonbrigði í hljóðinu. Hún gat ekki orða bundist lengur. — Þú verður að fara, Jim, það er ekki annað hægt. Annars mun þetta ýlfur kveða við í eyrum mér á meðan ég lifi. Klæddu þig nú vel, drengurinn minn, taktu luktina hans pabba þíns og Guð veri með þér! Ég þarf víst hvort eð er ekki að bíða lengi, ef þú kemur ekki aftur. Jim var langt kominn að klæða sig í ferða- fötin, er mamma hans þagnaði. Hún tók nú til ýmislegt smávegis, sem nauðsynlegt var að hafa með sér, ef slys hefði borið að höndum. Jim var komin út í dyrnar. — Kysstu mig ennþá einu sinni áður en þú ferð. Þetta er ef til vill í síðasta skipti, sem ég sé þig. Nú skulum við krjúpa á kné og biðja Guð, sem elskar þig enn meir en ég get elskað, að vera með þér í nótt og leiða þig heim aftur ásamt föður þínum. Loks lokuðust dyrnar á eftir drengnum. 132 LJDSBERINN

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.