Ljósberinn - 01.12.1955, Side 25

Ljósberinn - 01.12.1955, Side 25
Jim fann aukaaktýgi og batt þau á Hvíta- ref. Því næst kallaði hann á hina hundana og hélt af stað. Hann vissi ekkert hvert hann átti að halda, og því lét hann hundana ráða ferðinni. Hann hélt í taumana og fylgdi hund- unum eftir. Til allrar hamingju voru ekki nema 4 km. þangað, sem Ike var vanur að fara til skógar- höggs þennan vetur. En inni í skóginum var snjórinn laus og illur yfirferðar. Jim treysti Hvíta-ref algjörlega. Honum fannst sjálfsagt að hundurinn vissi bezt, hvað gera skyldi og gæti hann fylgt honum eftir væri öllu borgið. . . . Aftur og aftur festist hann í sköflunum, og bjóst hann hvað eftir annað við, að öllu væri lokið. Hann var orðinn örmagna af þreytu, og það var erfitt að standast freist- inguna að hvíla sig rétt aðeins andartak. Það var eins og Hvíti-refur skildi hættuna, sem drengurinn var í. Þegar Jim festist í sköfl- unum reyndi hann að troða snjóinn í kring um hann, svo að hann ætti auðveldara með að brjóta sér leið áfram. Ekkert hljóð heyrðist annað en þyturinn í storminum. Allt í einu heyrðist greinileg hundgá skammt undan. Hvíti-refur tók svo mikið viðbragð, að Jim missti fótanna og datt kylliflatur í snjóinn. Hann lét það ekki á sig fá. Þar var Curley, sem var að gelta! Hann reis á fætur aftur og hrópaði af öllum mætti: — Pabbi, pabbi! Eina svarið, sem hann fékk var samstillt ýlfur hundanna og þyturinn í storminum. Nú vissi Jim ekki, hvað til bragðs skyldi taka. Þá kom Hvíti-refur enn til hjálpar. Hann dró drenginn með sér inn á milli trjánna og tók að krafsa í snjóinn. Jim fylgdist með honum, og honum var órótt innanbrjósts. En brátt lá hann á hnjánum við hlið pabba síns. — Pabbi, pabbi, það er ég! Það er Jim. Ekkert svar. En hann andaði, það var alveg greinilegt. Hann var heldur ekki al- veg kaldur að minnsta kosti ekki þar sem Curley hafði legið upp við hann. Það var að- eins eitt ráð til bjargar. Tækist honum að finna sleðann, væri ef til vill von um, að hægt yrði að bjarga pabba. Honum kom til hugar, að hundurinn kynni enn að vera bundinn við sleðann. Hann tók að róta í snjónum, og eftir stutta stund fann hann annan kjálkann á sleðanum. Það tók Jim víst heilan klukkutíma, að grafaupp sleðann ogkoma meðvitundarlausum föður sínum fyrir á honum. Hann batt hann vandlega, svo að hann dytti ekki af á leið- inni og brauzt því næst af stað. Það er ekki á neins manns færi að stöðva hunda með sleða, sem eru á heimleið um þetta leyti sólarhrings. Jim þurfti að hafa sig allan við að halda sleðanum á réttum kili. Það tókst, og undir dögun vaknaði Rakel við hundgá úti. Hún hljóp út i myrkrið á móti þeim og laut yfir manninn sinn með- vitunarlausan á sleðanum. Nú þurfti hún að taka á öllu, sem hún átti til. Þegai- Jim sá, að stsirf hans hafði borið árangur, óx honum kraftur. Hann tók til óspilltra málanna að stumra yfir föður sín- um. Þau hlýjuðu honum og helltu volgum drykk á milli vara hans. Eftir dálitla stund opnaði hann augun og brosti til þeirra. Hann þekkti þau aftur! Ike hresstist brátt. Fyrir frábæra vizku Hvíta-refs og dugnað Jims, fékk fjölskyldan að halda saman gleðileg jól. LJDSBERINN 133

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.