Ljósberinn - 01.12.1955, Síða 34
jólasveinar, en aðstoðarmennirnir eru i hvitum
serkjum, með pappagrímur og langa pípuhatta.
r
Jólasiðir
í öðniin lwndiim i(
V. /
Margir undarlegir siðir hafa myndast um
jólahald víðsvegar um lönd. Það er gaman að
heyra ofurlítið um þá siði. Þeir eru margir
œrið ólíkir íslenzkum jólasiðum.
4
Holland
Á aðfangadag þvo börnin tréskóna sína,
fylla þá af heyi og setja þá fyrir utan dyrnar
hjá sér fyrir hesta Sánkti Nikulásar eða jóla-
sveinsins. Næsta morgun er heyið horfið úr
skónum, og þeir eru orðnir fullir af leikföng-
um og sælgæti.
Frakkland
í Frakkalndi heitir jólasveinninn, sem heim-
sækir börnin, „Bonhomme Noél“. Hann kemur
niður um skorsteininn á jólanóttina. Börnin
eiga að raða skónum sínum fyrir framan
arininn, og um morguninn eiga þeir að vera
orðnir fullir af gjöfum.
4
Mexíkó
í Mexíkó er siður að halda jólaboð á hverju
kvöldi níu daga fyrir jól. Jólamátíðin hefst
klukkan 10 á aðfangadagskvöld. Uppáhalds
leikur barnanna er þannig, að hengd er upp í
herberginu stór karfa full af ávöxtum. Bundið
er fyrir augun á einu barninu og því er fengið
prik í hönd. Með prikinu á það að reyna að
hvolfa ávöxtunum úr körfunni. Þegar ávext-
irnir detta á gólfið, rjúka allir upp til handa
og fóta.
Italía
Á nær hverju heimili í ítalíu er búin til jata
með mynd af Jesúbarninu, Maríu mey, Jósef,
englunum og hirðunum. Stundum eru þessar
myndir haglega skornar í tré og ganga þá oft
í arf kynslóð eftir kynslóð. Gjöfum til allra í
fjölskyldunni er komið fyrir í stórri krukku.
Sumir pakkarnir eru ekkert nema umbúðirnar
— í gamni gert, — en allir fá einhverja smá-
gjöf áður en lýkur.
4
Sviss
Svissnesku börnin kalla jólasveininn „Sami-
chlaus'1. Hann þrammar um göturnar með að-
stoðarmenn sína. Þeir kringja bjöllum og blása
í lúðra. Samichlaus er líkt búinn og aðrir
Bandarikin
Santa Kláus ekur þar um í hreindýrasleða.
Hann á annríkt á jólanótt. Þá þarf hann að
koma á hvert heimili og skila gjöfunum. Þar
byrja jólin á jóladag en ekki á aðfangadags-
kvöld eins og hjá okkur. Annars eru margir
jólasiðir þar svipaðir og hér.
4
England
í Englandi eru jólin haldin með miklum
glaum og gleði. Þar er siður að skreyta hýbýli
með mistilteini og jólarós. — Á jólakvöldið
fara söngvarar um bæina og syngja jólasálma
fyrir dyrum úti. Börnin hengja upp sokkana
sína fyrir jólagjafirnar, sem jólasveinninn
kemur með.
♦ SVÖR ♦
SVÖR VIÐ KROSSGÁTU í NÓVEMBERBLAÐI:
Lárétt: 1 sendill, 7 afi, 8 fái, 9 LF, 10 þys,
11 bær, 13 rör, 14 þá, 15 fór, 16 þur, 17 æsku-
þrá.
Lóðrétt: 1 salt, 2 eff, 3 ný, 4 yfir, 5 lás, 6
Lí, 10 þær, 11 börk, 12 fará, 13 rós, 14 þur,
15 fæ, 16 ÞÞ.
SVÖR VIÐ HEILABROTUM Á BLS. 141:
Hvað mundir þú gera? Ég mundi kveikja
fyrst á eldspýtunni.
Gizkaðu á: 1. 200 kg. — 2. 20 km. — 3. ca.
19000 — 4. ca. 200 km. — 5. Róm. — 6. 16 tíma.
Spurning og svör: 1 strúturinn, — 2 H. C.
Andersen, — 3 Melbourne, — 4 Arkímedes, —
5 Thomas Alva Edison, — 6 Kanada, — 7
úlfaldinn, — 8 leðurblakan, — 9 Ólafur kon-
ungur Tryggvason í Svoldursorustu.
Hvernig stóð á því? — Smith var dvergur
og náði ekki nema upp á 5. takka í lyftunni.
SVÖR VIÐ KROSSGÁTU I ÞESSU BLADI:
Lárétt: 1 Halldór, 7 afl, 8 Óla, 9 ný, 10 Ari,
11 asi, 13 oft, 14 fá, 15 afl, 16 sól, 17 utan frá.
Lóðrétt: 1 hann, 2 afi, 3 LL, 4 Dóri, 5 Óli,
6 rá, 10 ást, 11 afla, 12 sala, 13 oft, 14 fór, 15
au, 16 SF.
,___________ LJDEBERINN ____________________
Barna- og unglingablað mcð myndum. — útgefandi
'er útgáfunefnd Ljósberans. Ritstjóri er Ástráður
Sigursteindórsson, kennari. Utanúskrift cr Ljós-
berinn, Pósthólf 276, Rvík.
Formaður útgáfunefndar er ólafur ólafsson, Ás-
vallagötu 13, sími 3427; annast liann afgreiðslu
blaðsins ásamt Guðmundi Agnarssyni.
Ljósberinn kemur út sem svarar 12 síðu blaði a
rnánuði, þar af tvöfalt sumarblað og þrefalt jóla-
blað. Áskriftargjald kr. 25.00. Gjalddagi cftir út-
komu fyrsta blaðs ár livert.
Prentaður í Félagsprentsmiðjunni li.f.
v.__________________________________________j
142
LJDSBERINN