Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
19. nóvember 2009 — 274. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
BURBERRY stendur líkt og mörg önnur tískufyrirtæki höllum
fæti eftir efnahagsþrengingar síðasta árs. Fyrirtækið hefur nú
ákveðið að breyta um áherslur og leggja meira upp úr fylgihlutum
en fötum til að bregðast við breyttu viðskiptaumhverfi.
„Ég er í kjól sem ég keypti fyrir tólf árum á kílóamarkaði í Spút-ník og er svo heppin að passar enn á mig,“ segir Sigríður Ásdís Jóasdóttir se á
hjá JM design. „Stúkurnar eru úr þæfðri ull með bómullarfóðri ogstinga því ekki Mé
Við kjólinn er Sigga Dí íhlíf
Huggulegheit og praktíkSigríður Ásdís Jónasdóttir er hagkvæm í sínum tískuinnkaupum. Hún notar það sem til fellur og er dug-
leg að nýta sér útsölulagera og Rauða krossinn auk þess sem hún býr til eigin fylgihluti í vinnunni.
Sigga Dís í kjól sem hún keypti fyrir tólf árum á kílóamarkaði í Spútník.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
• Dregur úr vöðvaspennu• Höfuð- háls- og bakverkjum• Hefur góð áhrif gegn streitu• Er slakandi og bætir svefn
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð frá 9.750 kr.
Nálastungudýnan
VEÐRIÐ Í DAG
Á ártíð hrunsins
„Á ártíð hrunsins er þess krafist
af stjórnmálamönnum að þeir
slíðri sverð og vinni sem sam-
stilltur hópur að lausn þeirra
mála sem á okkur hvíla,“ skrifa
átta guðfræðingar.
UMRÆÐAN 30
fyrirtækjagjafirFIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2009
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Sérsniðnar gjafir,
handverk og kræsingar
Sérblað um fyrirtækjagjafir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÆVISÖGUR
Sjálfsævisögur, játning-
ar og endurminningar
Sérblað um ævisögur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
SIGRÍÐUR ÁSDÍS JÓNASDÓTTIR
Hefur hagsýnina að
leiðarljósi við fatakaup
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
Opið til 21
Í herferð fyrir
Óskarinn
Sigurjón Sighvatsson
setur þrjár milljónir dala
í að kynna nýjustu
mynd sína fyrir
Akademíunni.
FÓLK 66
AF VETTVANGI Lögregla hafði mikinn viðbúnað í miðborginni þær mínútur sem ræninginn var ófundinn. Konan var ein í
afgreiðslunni þegar ránið var framið, en gullsmiðurinn Símon, sem hér sést, var baka til. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Maður á þrítugs-
aldri réðst inn í skartgripa-
verslunina Jón Sigmundsson við
Laugaveg síðdegis í gær, spark-
aði í kvið þungaðrar afgreiðslu-
konu og stal 390 þúsund króna
úri.
Maðurinn flúði af vettvangi
en var handtekinn fimmtán
mínútum síðar á skyndibita-
staðnum Aktu taktu við Skúla-
götu með úrið í fórum sér. Hann
hefur oft komið við sögu lög-
reglu áður.
Konan, sem er rúmlega tvítug,
var flutt á spítala í skoðun eftir
árásina. Símon Ragnarsson,
gullsmiður í versluninni, sagði
í gær að henni hefði eðlilega
verið afar brugðið en taldi ekki
að henni eða barninu hefði orðið
meint af árásinni, þótt hann
þyrði ekki að fullyrða það. - sh
Réðst inn í skartgripaverslun:
Rændi dýru úri
og sparkaði í
þungaða konu
ATVINNUMÁL Vinnumálastofnun
hefur aðeins ráðið þrjá náms-
og starfsráðgjafa frá hruninu
þrátt fyrir að atvinnulausum hafi
fjölgað um mörg þúsund manns.
Atvinnulausir í október voru tæp-
lega þrettán þúsund en spár um
þróun atvinnuleysis gera ráð fyrir
að þeim fjölgi hratt á næstunni.
Ráðgjafar á höfuðborgarsvæðinu
voru sjö fyrir hrunið en eru nú tíu
talsins. Fjöldi viðskiptavina hefur
tífaldast frá því í október 2008 og
eru þeir um tíu þúsund á höfuð-
borgarsvæðinu.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að
þegar allt er talið starfi um tut-
tugu ráðgjafar á fimmtán stöðum
á landinu. Þeir séu hins vegar allt
of fáir. „Það má orða það sem svo
að hver einasti náms- og starfsráð-
gjafi sem bætist við væri vel þeg-
inn.“ Starfsmönnum stofnunarinnar
hefur verið fjölgað um hátt í þrjá-
tíu frá áramótum. Þeir sinna hins
vegar bótaútreikningi og greiðsl-
um til atvinnulausra en ekki svo-
kölluðum virkniúrræðum. Gissur
segir það skjóta skökku við að á
meðan stofnunina sárvanti náms-
og starfsráðgjafa gangi margir með
slíka menntun um atvinnulausir.
Hins vegar hefur stofnunin ekki
fjármagn til að ráða þá í vinnu.
Þórdís Guðmundsdóttir, náms- og
starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun,
segir vonlaust að tíu ráðgjafar geti
sinnt öllum þeim fjölda fólks sem nú
er atvinnulaust. „Við náum 800 til
1.000 einstaklingsviðtölum á mán-
uði sem þýðir að það tæki okkur tólf
mánuði að ná til allra þeirra sem eru
á skrá í dag.“
Þórdís bendir á að fjöldinn allur
af starfshópum hafi farið yfir vand-
ann og fyrir liggi rannsóknir sem
sýni skaðsemi atvinnuleysis. „Á
meðan fjárvana stjórnmálamenn
stofna nefndir vantar okkur fólk
og peninga til að lágmarka skaðann
sem langtímaatvinnuleysi veldur,“
segir Þórdís. Hún segir að ef vel
ætti að vera ættu að starfa fjörutíu
ráðgjafar á höfuðborgarsvæðinu.
Árni Páll Árnason, félags- og
tryggingamálaráðherra, segir ekki
mögulegt að fjölga starfsfólki stofn-
unarinnar í takt við óskir þeirra
sem þar starfi. Til þess sé ekki til
fjármagn. „Það er hins vegar óska-
staðan og við vinnum að því með
öllum ráðum að skapa það svigrúm.“
- shá / sjá síðu 4
Einn starfsráðgjafi á hverja
þúsund á atvinnuleysisskrá
Vinnumálastofnun getur engan veginn sinnt öllum sem nú eru atvinnulausir. Ráðgjöfum stofnunarinnar
hefur verið fjölgað um þrjá en tíu þúsund manns hafa bæst við hóp atvinnulausra á sama tíma.
Strekkingsvindur verður víða á
landinu í dag en hvassviðri á Vest-
fjörðum. Rigning eða slydda um allt
land. Hlýnandi veður.
VEÐUR 4
5
5
4
23
STJÓRNMÁL Tímabundinn auðlegðar-
skattur á stóreignafólk á að skila
allt að fjórum milljörðum króna á
ári næstu þrjú árin.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði á blaðmanna-
fundi í gær talsverðan hóp fólks í
„prýðilegum færum til að leggja
nú samfélaginu lið næstu þrjú
árin með því að greiða þenn-
an auðlegar skatt og bera það að
verkum að við getum haft hærri
vaxtabætur og komist hjá skerð-
ingu barnabóta“.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði breytingar
á skattkerfinu sem kynntar voru
í gær gera kerfið sanngjarn-
ara. Meðal annars á að taka upp
þriggja þrepa tekjuskattskerfi.
Sagði ráðherrann það þýða að
tekjuskattur myndu lækka hjá
þeim sem hafa undir 270 þúsund
krónur á mánuði en hækka hjá
öðrum. Efsta þrepið verður um
46 prósent að meðtöldu útsvari
og leggst það á þann hluta mán-
aðartekna sem er yfir 650 þúsund
krónum.
Þá verður lagt nýtt orkugjald á
rafmagn sem felur í sér að stór-
iðja þarf að skila 1.600 milljónum
aukalega í ríkissjóð. Bensín og
áfengi hækkar einnig og virðis-
aukaskattur sömuleiðis.
- gar / sjá síðu 18
Tekjuskattar hækka á alla með meira en 270 þúsund krónur í mánaðarlaun:
Sérstakur skattur á eignafólk
Talað um
tækifærin
Sóknarfæra verður leitað
á nýsköpunarfundi í Blöndu-
virkjun.
ATHAFNAVIKAN 16
Jafntefli í
toppslagnum
Valur og Stjarnan skildu
jöfn í N1-deild kvenna.
ÍÞRÓTTIR 60
Athafnavika