Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 68
48 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Félagarnir Edgar Smári og Símon
Hjaltason hafa sent frá sér plötuna
Simon and Clover. „Hún er búin að
vera í vinnslu í svona þrjú ár. Við
vorum ekkert voða mikið að flýta
okkur,“ segir Edgar Smári. „Þetta
er hrátt kassagítarpopp, svolítið
Turin Brakes og smá Crosby,
Stills and Nash. Þetta er voða vina-
legt.“
Edgar Smári og Símon voru áður
í hljómsveitinni Stoneslinger. Eftir
að hún lagði upp laupana hafa þeir
gert nokkuð af því að spila saman
á mannamótum. „Það var kominn
tími á að gefa þetta út til að losa
okkur við þetta. Maður nennir
ekki að spila lögin aftur og aftur
og hafa ekki gefið neitt út.“
Edgar Smári gaf árið 2006 út
sína fyrstu sólóplötu, Ferðalangur.
Hann er meðlimur í Gospel kór
Reykjavíkur og hefur sungið
töluvert með Fíladelfíukórnum.
Útgáfutónleikar Edgars Smára
og Símonar verða í Ýmishúsinu í
kvöld. - fb
Vinalegt gítarpopp
EDGAR OG SÍMON Edgar Smári og
Símon Hjaltason hafa sent frá sér
plötuna Simon and Clover.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Schumann og Brahms í Laugardalslauginni
Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Tilvalið að slaka á í heitum potti og hlýða á
fagra tóna. Tónleikarnir hefj ast kl. 19.30 í kvöld.
Franskir straumar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
André Kértesz: Frakkland – landið mitt/Ma France.
Sigurður Páls son, rithöfundur, les upp ljóð og Tríó
Vadim Forov spilar franska tónlist. Fimmtudaginn
26. nóv. kl. 20.00, Tryggvagötu 15, 6. hæð.
Barnadagar á Borgarbókasafninu
Valgerður Ólafsdóttir les upp úr bók sinni Saga um
tilfi nningar, sunnudaginn 22. nóvember kl. 15.00.
Sunnudagar eru barnadagar í Aðalsafni,
Tryggvagötu 15.
Nánari upplýsingar á
www.reykjavik.is/ljomandi
Grínveldið Baggalútur heldur áfram að stuðla að gleði í lífi
landsmanna. Nú á að taka stíft á fyrir jólin.
„Það er allt að verða tryllt,“ segir Bragi Valdimar Skúlason
Baggalútur. „Við sjáum um Jóladagatal Rásar 2 sem verður
á hverjum degi til jóla í Popplandi. Á hverjum sunnudegi
frumflytjum við nýtt jólalag og þau verða að sjálfsögðu öll
stolin. Við höfum fyrir sið að stela á jólunum. Þessi lög koma
úr ýmsum áttum og eitt þeirra er að sjálfsögðu ítalskt. Vilji
fólk byrja að hita sig upp bendi ég því á að horfa á Dirty
Dancing.“
Jólatónleikar Baggalúts verða í Borgarleikhúsinu 20.
desember. „Það stefnir allt í að það verði uppselt og þá
höldum við aukatónleika. Það heldur enginn jólatónleika
í dag án þess að halda aukatónleika. Það er klárt mál.“
Baggalútur fékk viðurkenningu á degi íslenskrar tungu.
„Við fengum engan pening, glatað,“ segir Bragi. „Þetta var
meira svona „bjartasta vonin“. Við fengum reyndar lista-
verk sem ég veit ekki hvað er. Mér sýnist þetta vera neðri
tanngarðurinn af Jónasi Hallgrímssyni. En við fengum að
tjilla á Akureyri. Og þetta er vitanlega mikill heiður.“ - drg
Baggalútur stelur á jólunum
GERA FJÖGUR NÝ JÓLALÖG Í ÁR Mikill jólafílingur er fyrirhugaður hjá
Baggalúti.
Ofurfyrirsætan Adriana Lima
og eiginmaður hennar, serbneski
körfuknattleiksmaðurinn Marko
Jaric, eignuðust
sitt fyrsta barn
á mánudag.
Hjónin eignuð-
ust lítið stúlku-
barn sem hefur
hlotið nafnið
Valentina Lima
Jaric. „Adriana
og Marko eru
himinlifandi.
Móður og barni
heilsast vel og föðurnum sömu-
leiðis,“ sagði í fréttatilkynningu
sem hinir nýbökuðu foreldrar
sendu frá sér.
Andriana Lima er þekktust
sem fyrirsæta undirfatarisans
Victoria‘s Secret og hefur tekið
þátt í sýningum fyrirtækisins allt
frá árinu 2000.
Fyrirsæta
verður móðir David Letterman er fluttur
út af heimili sínu og eigin-
konu sinnar og dvelur nú
í íbúð sinni á Manhattan.
Stutt er síðan upp komst um
framhjáhald Letter mans, en
hann hafði þá haldið við
unga aðstoðar konu
sína um nokkra
hríð.
„ D a v e e r
fluttur út eftir
að Regina lét
hann hafa það
óþvegið. Hann
tók sér nokk-
urra daga frí
frá vinnu til að
reyna að bæta
sambandið en
það gerði sam-
ba ndið aðei ns
verra ef eitthvað
er. Regina heimt-
aði að hann væri
algjörlega hreinskilinn við
hana en hann tók því heldur
illa. Regina varð mjög ósátt
og bað hann um að koma sér
út,“ var haft eftir innanbúðar-
manni. Regina á nú að vera
að íhuga framhaldið
og vill að endan-
leg ákvörðun
ver ð i tek i n
áður en árið er
liðið. „Hún vill
ekki skilja en
hún vill heldur
ekki láta særa
sig aftur. Henni
finnst sem Dave
hafi gert hana að
athlægi.“
Letterman fluttur út
FLUTTUR ÚT David
Letterman býr einn
í íbúð sinni á Man-
hattan.
ADRIANA LIMA
> EKKI AÐDÁANDI
Söngkonan Miley Cyrus við-
urkenndi í nýlegu viðtali að
hún væri ekki aðdáandi Twi-
light-kvikmyndanna. „Mér
finnst ég ótrúlega hallæris-
leg af því að allir eru svo
hrifnir af þessari mynd. Ég
nenni ekki einu sinni að
ræða þetta,“ sagði Miley.
Drottning íslenskra glæpa-
sagna, Yrsa Sigurðardóttir,
fékk hugmyndina að sinni
nýjustu bók, Horfðu á mig,
eftir að hafa lesið frétt um
að þjóðkirkjan hefði fram-
kvæmt sína fyrstu særingu
í meira en öld er hún reyndi
að kveða niður draug í
heimahúsi.
Þetta var í byrjun ársins þegar
Yrsa var þegar byrjuð á nýrri bók.
Hætti hún snarlega við hana og
ákvað að byrja á nýrri eftir að hún
las fréttina um særinguna. „Mér
tókst að grafa upp hvað þarna var
á ferðinni en hæfilega lítið samt
því ég vildi ekki vita of mikið.
Það er raunverulegt fólk á bak við
málið sem ég vildi ekki blanda í
bókina,“ segir Yrsa. „Ég kynnti
mér þetta nægilega mikið til að
átta mig á því í grófum dráttum út
á hvað þetta gekk og nýti mér það
í bókinni.“
Bókin er þó ekki draugasaga eins
og margir kynnu að halda heldur
eru særingarnar hliðarsaga í bók-
inni. Aðalpersónan er sú sama og
í síðustu fjórum bókum Yrsu, lög-
maðurinn Þóra Guðmundsdóttir.
En finnst Yrsu alltaf jafngaman
að skrifa um Þóru eftir öll þessi
ár? „Nei, alls ekki. Það er rosalega
erfitt að halda áhuga sem höfundur
og hvað þá sem lesandi, þótt ég viti
það ekki. En það er mjög erfitt að
skrifa bækur um sama karakter-
inn. Ég hugsa að ég taki næst það
sem kallast á bókamálinu „Stand
alone“,“ segir Yrsa og á þar við bók
sem stendur ein og sér og tengist
engum öðrum bókum sem hún
hefur skrifað. „Ég held að höfund-
ar þurfi þetta hlé, bara til að prófa
annað. Það er hverjum manni hollt
að þróa sig.“
Í bókum Yrsu hefur aðalpersónan
Þóra átt kærasta sem hefur unnið
í Kaupþingi. Eftir að bankahrunið
varð fannst höfundinum ekki passa
að tengja söguþráðinn við hrunið.
„Hann gat ekki verið að vinna í
banka lengur og mig langaði ekki
að skrifa um banka. Hann er bara
atvinnulaus.“
Yrsa starfar sem verkfræðingur
og viðurkennir að minna sé að gera
nú en fyrir hrunið. Í staðinn getur
hún eytt meiri tíma í skriftirnar
og útilokar hún ekki að senda frá
sér tvær bækur á næsta ári, eina
fullorðins og eina barnabók. Hún
hefur einmitt gefið út fimm barna-
bækur á ferli sínum.
freyr@frettabladid.is
Særingafrétt breytti
söguþræðinum
YRSA SIGURÐARDÓTTIR Yrsa Sigurðardóttir fékk hugmyndina að sinni nýjustu bók
eftir að hafa lesið frétt um særingar þjóðkirkjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON