Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 44
19. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR
Víða erlendis er það
viðtekin venja að rita
æviágrip þekktra lif-
andi einstaklinga án
þess að viðkomandi
umfjöllunarefni séu
höfð með í ráðum.
Slík iðja hefur enn
ekki náð að festa
rætur hér á landi,
en undantekningar
eru þó til.
Skemmst er að
minnast bókarinnar
Davíð: Líf og saga, sem Eiríkur
Jónsson blaðamaður skrifaði um
Davíð Oddsson, þáverandi borgar-
stjóra í Reykjavík, árið 1989. Einn-
ig má telja til bók sem sagnfræð-
ingurinn Guðni Th. Jóhannesson
skrifaði um Kára Stefánsson árið
1999 og hét Kári í
jötunmóð, en sú bók
var gefin út í óþökk
sjálfs vísindamanns-
ins.
Þá gaf rithöfundur-
inn Óttar M. Norð-
fjörð út ævisögu
Hannesar Hólmsteins
Gissurar sonar fyrir
fáum árum. Bindin
voru þrjú og nefndust Hann-
es, Hólmsteinn og Gissurarson.
Skömmu áður hafði prófessor-
inn ritað ævisögu Nóbelsskálds
Íslendinga í bindunum Halldór,
Kiljan og Laxness. - kg
Ævisögur gefnar
út í leyfisleysi
Kári Stefánsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Davíð Oddsson voru ekki
hafðir með í ráðum þegar æaviágrip þeirra voru gefin út.
Elfa Gísla og hinar sögurnar eftir
Önnu Ólafsdóttur Björnsson kemur
út í lok nóvember. Þar segir Elfa
frá dramatísku lífi sínu á Íslandi
og í Bandaríkjunum.
Elfa Gísla var mest í sviðsljós-
inu á meðan hún tók þátt í stofnun
Stöðvar 2 og síðar þegar þau Elfa
og Jón Óttar Ragnarsson gengu í
hjónaband. Elfa var mikið vestan
hafs fyrstu átján ár ævi sinnar og
síðastliðin átján ár en þess á milli
bjó hún á Íslandi. Ævintýri henn-
ar í Bandaríkjunum og Kanada eru
víst ekkert minni en þegar hún
bjó hérlendis eins og blaðamaður
komst að raun um, þegar hann
skrifaðist á við Elfu sem er stödd
í Seattle.
„Ég hugsa að Anna Björnsson
hafi viljað skrifa sögu mína vegna
þess að minn lífsferill hefur verið
mjög litríkur. Sjálf hefði ég ekki
tíma til að skrifa hana á þessum
annasama tíma í lífi mínu. Ég er að
vinna við að koma á fót skemmti-
stað sem samanstendur af leik-
húsi, listasafni og tónleikahúsi í
gamalli hlöðu sem við Tom, eigin-
maður minn, höfum verið að gera
upp,“ upplýsir Elfa.
Í væntanlegri ævisögu sinni
kemur Elfa inn á marga erfiða
hluti, meðal annars samskiptin við
móður hennar. Blaðamanni liggur
því forvitni að vita hvort gerð bók-
arinnar hafi reynt á hana. „Það var
stundum erfitt að rifja upp sumar
minningar. Núna er erfitt að bíða
og sjá hvernig henni verður tekið,
því ég segi margt í henni sem ég
hef ekki upplýst áður. Ég vona að
fólk verði ekki hneykslað, en ef
svo er þá verður svo að vera því
það er of seint núna að hætta við,“
segir Elfa og tekur fram að bókin
sé hins vegar vel skrifuð. Hún
hafi ekki getað hugsað sér að neita
Önnu þegar hún bað um að fá að
skrifa söguna því henni sé sýndur
svo mikill heiður.
„Þess vegna vildi ég vera eins
hreinskilin og ég var til þess að
gefa rétta mynd af sjálfri mér með
öllum mínum kostum og göllum.
Ég hefði eflaust getað sagt meira
um gallana en ég gerði,“ segir
Elfa.
Þess má geta að á Snjáldursíðu
(e. Facebook) bókarinnar er hægt
að fá örlítinn forsmekk að sögunni
og skoða myndir úr henni.
Litríkur lífsferill
Elfa Gísladóttir er hreinskilin í nýrri ævisögu sem ber titilinn Elfa Gísla og hinar
sögurnar.
Óttar M. Norðfjörð
gaf út ævisögu
Hannesar í þremur
bindum.
Skipholti 50 c, www.salka.is
Enska glamúrgellan Katie Price,
sem einnig er þekkt undir nafninu
Jordan, hlýtur að teljast einn ötul-
asti ævisagnaritari síðari tíma.
Jordan, sem fæddist fyrir 31 ári í
Brighton, vakti fyrst athygli um-
heimsins sem stúlkan á síðu þrjú
í hinum ýmsu götublöðum, enda
hafði hún þá nýlega gengist undir
viðamikla aðgerð sem færði skála-
stærð hennar úr B í F. Engu minni
athygli slúðurþyrsts almennings
vöktu sambönd hennar við menn
á borð við knattspyrnukappann
Dwight Yorke og söngvarann Peter
André, sem fóru mikið til fram í
fjölmiðlum.
Hingað til hafa útgefendur talið
lífsreynslu Jordan efni í þrjár
sjálfsævisögur og ekki er loku
fyrir það skotið að enn bætist við.
Bækurnar þrjár, Being Jordan
(2004), Jordan: A Whole New
World (2006) og Jordan: Pushed
to the Limit (2008) geyma sam-
tals 944 síður af lífreynslusögum
módelsins, og þykir víst mörgum
nóg um. - kg
Alls 944 blað-
síður af Jordan
Katie Price, eða Jordan, hefur gefið út
þrjár sjálfsævisögur.